Fréttablaðið - 27.12.2012, Blaðsíða 20
27. desember 2012 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
N
efnd fulltrúa allra þingflokka, sem stofnuð var til að
skoða leiðir að afnámi gjaldeyrishaftanna, skrifaði
formönnum stjórnmálaflokkanna bréf fyrir jól. Þar
er lagt til að svokallað sólarlagsákvæði í núverandi
lögum, um að höftin renni út í lok næsta árs, verði
fellt úr gildi og afnám haftanna fremur bundið efnahagslegum
skilyrðum sem þurfi að vera fyrir hendi. Nefndin er sömuleiðis
á því að ekki sé ráðlegt að samþykkja nauðasamninga Glitnis og
Kaupþings nema fyrir liggi heildræn stefna um afnám haftanna.
Um þessa niðurstöðu, sem hefur legið í loftinu alllengi, ríkti
samstaða í nefndinni og miðað við viðbrögðin við henni á það
sama við í pólitíkinni. Það þýðir í raun að það er sameiginlegt mat
stjórnmálaflokkanna að áætlun stjórnvalda og Seðlabankans um
afnám haftanna hafi ekki reynzt raunhæf. Aðrar áætlanir um að
ganga enn hraðar til verks, eins
og sú sem Samtök atvinnulífsins
lögðu fram, eru ekki trúverðugar
heldur, enda eru höfundarnir
hættir að tala um þá áætlun.
Ef „snjóhengjan“ brysti og
erlendir krónueigendur færu út
úr hagkerfinu með eignir sínar
yrði afleiðingin líklega sú að
gengi krónunnar hryndi enn á ný, með skelfilegum afleiðingum
fyrir almenning í landinu; verðbólgu og hækkun lána heimilanna.
Það sama gæti gerzt ef kröfuhafar gömlu bankanna fengju borgað
út á skömmum tíma. Þá áhættu vill enginn taka.
Enginn vill orða það þannig, en þessi niðurstaða felur líka í sér
pólitíska samstöðu um að næstu árin er ekki búandi við krónuna
nema í höftum. Það felur jafnframt í sér að Ísland er ekki þátt-
takandi í alþjóðahagkerfinu á jafnréttisgrundvelli.
Þegar skýrsla Seðlabankans um kosti Íslands í gjaldeyrismálum
kom út sagði seðlabankastjórinn að tækist ekki að losa gjaldeyris-
höftin á meðan við byggjum við krónuna yrði að fara í „plan B“
eins og hann kallaði það, að afnema höftin í samstarfi við Evrópu-
sambandið.
Raunar er vandséð af hverju sá kostur ætti ekki að vera plan A
við núverandi kringumstæður. Áætlanir um að afnema höftin án
þess að vera með skýrt plan um upptöku nýs gjaldmiðils hafa ekki
gengið eftir. Afnám haftanna í samstarfi við ESB, með upptöku
evrunnar að markmiði, er áætlun sem er bæði líklegri til að ganga
upp og að njóta einhvers trúverðugleika meðal erlendra fjárfesta
en þau plön sem hingað til hafa mis tekizt. Evrópusambandið hefur
lýst sig reiðubúið til viðræðna um slíkt og hefur stofnað starfshóp
með Íslandi til að skoða málið sem lið í aðildarviðræðunum.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurði á
Alþingi fyrir jól: „Er verið að tala um að Evrópusambandið ætli
að lána fjármuni til að við getum greitt kröfuhöfum út? Er verið
að tala um faglega aðstoð, tæknilega aðstoð? Hvers konar aðstoð
er verið að tala um?“ Óyggjandi svör við þessum spurningum
fær hann ekki nema aðildarviðræðum við Evrópu sambandið
verði lokið. Formaður Sjálfstæðisflokksins vill hins vegar slíta
við ræðunum, sem hann taldi sjálfur fyrir fáeinum árum að ætti
að fara í, einkum vegna óvissu um að krónan væri hentugur
framtíðar gjaldmiðill þjóðarinnar.
Það er ágætt að flokkarnir hafi sameiginlega sýn á núverandi
stöðu í gjaldeyrismálum. En sameiginlega framtíðarsýn skortir
alveg og raunhæft „plan B“ um krónu án hafta á enginn til.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og
í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
Um hver áramót skjóta Íslendingar upp
hundruðum tonna af flugeldum sér og
öðrum til ánægju. Af og til blossar upp
umræða hvort setja eigi allt þetta púður í
hendur almennings með þeirri slysahættu
sem því fylgir, þar sem hitinn getur til að
mynda orðið allt að 1.200 °C. Fæstir litu
sennilega áramótin sömu augum ef flug-
eldanna nyti ekki við og mörgum þætti
tímamótin heldur litlaus þannig.
Að baki hverjum flugeldi liggja ítarleg-
ar prófanir og rannsóknir sem tryggja að
hann sé sem öruggastur. Ef átt er við hann
og eiginleikunum breytt bjóða menn hætt-
unni heim því engan veginn er hægt að
vita hvernig flugeldurinn springur, hversu
hratt eða hver krafturinn verður. Ungir
drengir eru í mesta áhættuhópnum og
mikilvægt að foreldrar lofi þeim ekki að
meðhöndla flugeldavörur. Seljendur þurfa
einnig að ganga úr skugga um að aldurs-
mörk séu virt því foreldrar mega síns lít-
ils ef börnin geta keypt vörurnar sjálf.
Ef allir fara eftir leiðbeiningum í einu
og öllu og gæta fyllsta öryggis ættu ára-
mótin að geta orðið slysalaus.
• Gætið vel að börnum, þau þekkja ekki
hætturnar eins og fullorðnir.
• Lesið vel allar leiðbeiningar sem fylgja
flugeldum.
• Notið alltaf hlífðargleraugu jafnvel þótt
þið séuð aðeins áhorfendur.
• Verjið hendur með skinn- eða ullar-
hönskum ef meðhöndla á flugeldavörur.
• Geymið flugeldana fjarri þeim stað sem
skotið er upp á.
• Ekki geyma flugeldavörur í vasa, ekki
einu sinni rokeldspýtur.
• Skjótið upp á opnu svæði og í a.m.k. 20
m fjarlægð frá húsum, bílum og fólki og
látið þá sem fylgjast með standa vind-
megin við skotstað.
• Aldrei má kveikja í flugeldum sem hald-
ið er á, það má eingöngu með sérmerkt
handblys.
• Rakettur verða að vera á traustri undir-
stöðu þegar þeim er skotið upp.
• Stöðugt undirlag er nauðsynlegt fyrir
standblys og skotkökur sem þurfa mikið
rými.
• Aldrei má halla sér yfir vöru þegar
kveikt er í. Tendra skal á kveiknum með
útréttri hendi og víkja strax frá.
• Ef flugeldur springur ekki má ekki
nálgast hann í nokkrar mínútur. Ekki
reyna að kveikja aftur í heldur hellið
vatni yfir hann.
• Munið að áfengi og flugeldar fara aldrei
saman.
Ánægjuleg og slysalaus áramót
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
Áætlanir um að afnema höftin hafa ekki virkað:
Plan A
FLUGELDAR
Sigrún A.
Þorsteinsdóttir
sérfræðingur í for-
vörnum hjá VÍS
Borgarstjórinn og byssurnar
Jón Gnarr borgarstjóri er ekki
hræddur við að láta gamminn geisa
um stærri mál og minni og hefur
meðal annars vakið athygli á mann-
réttindarmálum í Kína og Rúss-
landi og stöðu samkynhneigðra um
heim allan. Á Facebook-síðu sinni
í gær mæltist hann til þess að
byssulöggjöf í Bandaríkjunum
yrði hert. Jón segir Banda-
ríkjamenn hafa val milli ótta og
ástar og vonast til þess að ástin
verði fyrir valinu.
Ástþór og Jón
Ástþór Magnússon,
friðar frömuður, athafna-
maður og fyrrum
forsetaframbjóðandi,
styður orð borgar-
stjórans, í ummælum við frétt Vísis
um innlegg Jóns. Þar segir Ástþór að
„ofbeldismenningin sem ræktuð er
frá Hollywood,“ sé önnur rót þessa
vanda. Ólíkustu menn virðast því geta
fundið samleið um eitthvað.
Formannsfjör
Samfylkingarfélagið í Reykja-
vík getur ekki breytt reglum
sínum varðandi kosninga-
rétt í formannskosningu
flokksins fyrr en á aðal-
fundi í febrúar,
segir
formaður stjórnar félagsins. Félagið
krefst þess að áhugasamir flokks-
menn greiði félagsgjald fyrir áramót,
eitt aðildarféalga. Fram hafa komið
hávær mótmæli úr flestum áttum,
meðal annars frá báðum formanns-
efnum. Væri ekki ráð að aðildarfélög
stjórnmmálaflokka tækju sig
saman, áður en kosninga-
barátta hefst, um verklag og
reglur í þessum málum til
að koma í veg fyrir brigsl um
hyglingar á einn veginn
eða annan? Þetta
er alltént ekki
leiðin til að auka
trú almennings
á áreiðanleika
flokkakerfisins.
thorgils@frettabladid.is