Fréttablaðið - 27.12.2012, Síða 26
27. desember 2012 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Söngsveitin Fílharmónía heldur
jólatónleika í kvöld klukkan átta.
Á efnisskránni eru jólalög af ýmsu
tagi, meðal annars þjóðlagið Hátíð
fer að höndum ein í útsetningu Jóns
Ásgeirssonar, Ave María Sigvalda
Kaldalóns, gömul erlend lög eins
og Hin fegursta rósin er fundin og
franska 16. aldar lagið Opin standa
himins hlið. Þá syngur kórinn Ave
Maria eftir Caccini með styrku lið-
sinni einsöngvarans, Hallveigar Rún-
arsdóttur sóprans, sem flytur Ecco
aríu úr Jólaóratóríu Bach með organ-
istanum Steingrími Þórhallssyni, en
öllu saman stjórnar Magnús Ragnars-
son.
Hátíðabragur verður yfir stundinni
í Kristskirkju á þriðja í jólum og kjör-
ið tækifæri fyrir tónleikagesti að fá
hvíld og öðlast hugaró eftir annasama
aðventuna, góð og gleðileg jól.
Fílharmónía í Kristskirkju
Söngsveitin heldur tónleika í kvöld og eru jólalög af ýmsu tagi á efnisskránni.
SÖNGSVEITIN FÍLHARMÓNÍA Heldur jólatónleika í kvöld.
„Það gerir mann svolítið gamlan,“
segir Hörður Áskelsson, stofnandi og
stjórnandi Mótettukórs Hallgríms-
kirkju, um þrjátíu ára afmæli kórs-
ins. Í tilefni þess verða stórtónleikar
í Eldborgarsal Hörpu dagana 29. og
30. desember klukkan 17.
„Þetta er eitt af mínum börnum og
mér bregður hvað tíminn hefur verið
fljótur að líða í þessu skemmtilega
starfi. Mér finnst eins og starfið og
uppbyggingin sé rétt að byrja,“ segir
Hörður, en kórinn sem séð hefur
um messusöng Hallgrímskirkju frá
upphafi var stofnaður þegar aðeins
kirkjuskipið hafði verið reist.
Á dagskrá tónleikanna er Jólaóra-
tóría J.S. Bachs, eitt af stórvirkj-
um barokktímans. Hún var samin
fyrir jólahátíðina 1734 til flutnings
á stórhátíðar dögunum frá jóladegi
til þrettándans. Hana flytur kórinn
ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í
Haag, konsertmeistaranum Tuomo
Suni og alþjóðlegum og íslenskum ein-
söngvurum af yngri kynslóðinni.
Það eru sópransöngkonan Herdís
Anna Jónasdóttir, kontratenórinn
Daniel Cabena, tenórinn Benedikt
Kristjánsson og bassinn Stephan
MacLeod.
„Við höfum lagt áherslu á það seinni
árin að flytja barokktónlistina með upp-
runalegum hljóðfærum. Þau hafa öðru-
vísi boga og strengirnir eru úr girni
í stað stáls,“ telur hann upp. Þannig
framkalla þau hljóm sem er nærri upp-
runalegum hljómi tónverksins. „Það eru
heilu deildirnar og skólarnir erlendis
sem kenna hvernig menn spiluðu á Bar-
okktímanum.“ Dóttir Harðar nam bar-
okkvíólu í Hollandi og í gegnum hana
komst kórinn í samband við Alþjóðlegu
barokksveitina frá Haag.
„Við gáfum þeim reyndar þetta
nafn en þau eru aðeins hljómsveit í
Íslandsheimsóknum sínum.“ Hópur-
inn kynntist við nám í einni bestu deild
fyrir upprunaflutning í Konunglega
tónlistar skólanum í Haag í Hollandi.
„Það myndast ævintýralegt andrúms-
loft þegar hópurinn sameinast í flutn-
ingi og þess vegna sækjumst við eftir
því að fá þau hingað til að flytja með
okkur tónlist Bachs.“
Hörður segir Jólaóratóríuna vera
einn af hápunktum jólatónlistar. „Bach
skrifaði verkið, sem brýtur jólaguð-
spjallið upp í sex kantötur. Á fyrri
tónleikunum flytjum við fyrstu fjór-
ar kantöturnar og á þeim síðari tvær
fyrstu og svo tvær seinustu þegar vitr-
ingarnir færðu Jesúbarninu gull, reyk-
elsi og myrru.“
En hvers vegna eru tónleikarnir
í Hörpu í stað Hallgrímskirkju, sem
þið hafið löngum sagt vera besta tón-
listarhús sem til er? „Harpa hefur
mikið aðdráttarafl fyrir áhorfend-
ur. Hún tekur helmingi fleiri í sæti
og okkur langar að fleiri heyri. Svo
langar okkur líka að upplifa tónlist-
ina á nýjum stað,“ segir hann um kór-
inn síunga. „Við stofnun árið 1982
voru haldnar áheyrnarprufur fyrir
ungt fólk og meðlimir máttu ekki
vera undir tuttugu né eldri en fer-
tugir. Hámarksaldurinn var lengi vel
fjörutíu ár. Það er að segja áður en
ég varð fertugur. Ég hélt að þá væri
maður orðinn öldungur og gæti ekki
sungið lengur en nú er ég að nálgast
að vera sextugur og finnst þeir sem
eru fertugir kornungir,“ segir Hörður
og bætir við að aldurstakmarkið hafi
fylgt kórstjórnandanum.
hallfridur@frettabladid.is
Fagna þrjátíu árum
með stórtónleikum
Mótettukórinn fl ytur Jólaóratóríu J. S. Bachs með barokksveit og einsöngvurum.
JÓLAÓRATÓRÍA Hörður Áskelsson stýrir hér hluta Mótettukórsins, en sextíu kórmeðlimir flytja jólaóratóríu Bachs í Hörpu dagana 29. og 30.
desember ásamt alþjóðlegum hópi tónlistarfólks. MYND/VILHELM
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn var stofnaður 27. desember 1945
og var Ísland eitt af þeim 29 ríkjum sem komu að stofnun
sjóðsins. Í dag eru aðildarríkin 185.
Hlutverk sjóðsins er að auka samvinnu milli ríkja og sjá til
þess að alþjóðafjármálakerfi þeirra séu stöðug. Hann fylgist
með gengi gjaldmiðla
og greiðslujöfnuði milli
ríkja heimsins. Einnig
er hlutverk sjóðsins að
minnka atvinnuleysi og
skuldir ríkja en auka hag-
vöxt. Veitir sjóðurinn því
aðildarríkjum sínum lán
þegar þau þurfa á aðstoð
að halda.
Ísland hefur fjórum
sinnum fengið lán hjá
sjóðnum. Fyrsta lánið var
tekið árið 1960 þegar viðreisnarstjórnin var við völd, annað
lánið var tekið árið 1967 til 1968 þegar aflabrestur varð í
landinu, 1974 til 1976 þegar olíuverð hækkaði, árið 1982
vegna útflutningsbrests og svo að síðustu í nóvember 2008
þegar Ísland tók að láni 2,1 milljarð Bandaríkjadala, 294
milljarða íslenskra króna á þeim tíma.
ÞETTA GERÐIST: 27. DESEMBER 1945
Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn stofnaður
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
VIKTOR DAÐI BÓASSON
Malarási 7, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 19. desember. Útför hans fer
fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
28. desember nk. kl. 13.00.
Guðrún Þorsteinsdóttir
Aðalheiður Eva Viktorsdóttir
Þorsteinn Viðar Viktorsson Helga Hrönn Lúðvíksdóttir
Elvar Örn Viktorsson Sigríður Ólafsdóttir
Elísabet Björk og Karen Lind.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SVANHVÍT STELLA ÓLAFSDÓTTIR
húsmóðir,
Grundargerði 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut
þriðjudaginn 18. desember. Jarðarförin fer
fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
28. desember klukkan 13.00.
Helena Á. Brynjólfsdóttir Valur Waage
Ólafur Brynjólfsson Hrefna Björnsdóttir
Eyjólfur Brynjólfsson Steinunn Þórisdóttir
Kristín Brynjólfsdóttir Kristján Jónasson
Sverrir Brynjólfsson Guðríður Ólafsdóttir
Dagný Brynjólfsdóttir Gunnar Óskarsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Við höfum lagt áherslu á
það seinni árin að flytja
barokktónlistina með upp-
runalegum hljóðfærum.
Hörður Áskelsson
stjórnandi Mótettukórs Hallgrímskirkju