Fréttablaðið - 27.12.2012, Qupperneq 58
27. desember 2012 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380 • KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
ht.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
NÝTT SENSEO KAFFI OG NÝTT KAKÓ
EKKI ÞARF LENGUR AUKA KAKÓ HÖLDU
FRÁBÆRT ÚRVAL AF LJÚFFENGU GÆÐA KAFFI
ER FÁANLEGT FYRIR SENSEO VÉLARNAR
SENSEO
CLASSIC KAFFI OG
TVÖ SENSEO GLÖS FYLGJA
ÚRSLIT
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
EVERTON - WIGAN 2-1
1-0 Leon Osman (52.), 2-0 Phil Jagielka (77.), 2-1
Arouna Koné (82.).
FULHAM - SOUTHAMPTON 1-1
1-0 Dimitar Berbatov (8.) 1-1 R. Lambert (85.).
MANCHESTER UNITED - NEWCASTLE 4-3
0-1 James Perch (4.), 1-1 Jonny Evans (25.), 1-2
sjálfsmark Jonny Evans (30.), 2-2 Patrice Evra
(58.), 2-3 Papiss Cissé (68.), 3-3 Robin van Persie
(71.), 4-3 Javier Hernández (90.).
NORWICH - CHELSEA 0-1
0-1 Juan Mata (39.).
QPR - WEST BROM 1-2
0-1 Chris Brunt (29.), 0-2 Sjálfsmark Robert
Green (50.), 1-2 Djibril Cisse (68.).
READING - SWANSEA 0-0
SUNDERLAND - MANCHESTER CITY 1-0
1-0 Adam Johnson (53.).
ASTON VILLA - TOTTENHAM 0-4
0-1 Jermain Defoe (58.), 0-2 Gareth Bale (61.),
0-3 Gareth Bale (73.), 0-4 Gareth Bale (84.).
STAÐA EFSTU LIÐA Í DEILDINNI
Man. United 19 15 1 3 48-28 46
Man. City 19 11 6 2 34-16 39
Chelsea 18 10 5 3 37-17 35
Tottenham 19 10 3 6 34-25 33
Everton 19 8 9 2 32-23 33
WBA 19 10 3 6 28-23 33
Arsenal 18 8 6 4 32-18 30
Aron hetja Cardiff
Aron Einar Gunnars-
son kom inn á sem
varamaður og skoraði
sigurmark Cardiff í
2-1 sigri á Crystal
Palace í ensku
b-deildinni í
gær, en sigurinn
færði liðinu
fimm stiga for-
skot. Aron kom
inn á í hálf-
leik og skoraði
sigurmarkið á 73.
mínútu með skalla
eftir stoðsendingu frá
Craig Bellamy. Þetta er
í fjórða sinn í vetur sem
Aron skorar eftir að hafa
byrjað leikinn á bekknum.
2. september 3-2 sigur á Southampton
Robin van Persie á 90.+2 mínútu
23. september 2-1 sigur á Liverpool
Robin van Persie á 81. mínútu
28. október 3-2 sigur á Chelsea
Javier Hernandez á 72. mínútu
10. nóvember 3-2 sigur á Aston Villa
Javier Hernandez á 87. mínútu
SIGURMÖRK MANCHESTER UNITED Í VETUR
28. nóvember 1-0 sigur á West Ham
Robin van Persie á 1. mínútu
1. desember 4-3 sigur á Reading
Robin van Persie á 34. mínútu
9. desember 3-2 sigur á Manchester City
Robin van Persie á 90. mínútu
26. desember 4-3 sigur á Newcastle
Javier Hernandez á 90. mínútu
Robin van
Persie
5 sigurmörk
Javier Hernandez
3 sigurmörk
FÓTBOLTI Annar dagur jóla var
góður fyrir Manchester United,
sem er komið með sjö stiga for-
skot á toppnum eftir úrslit 19.
umferðinnar í gær. United vann
enn einn endurkomusigurinn
á sama tíma og nágrannarnir í
City töpuðu fyrir Sunderland.
Chelsea, Tottenham, Everton og
West Brom unnu öll sína leiki og
gefa ekkert eftir í baráttunni um
að halda sér meðal fjögurra efstu
liðanna. „Desember er alltaf
mikil vægur mánuður. Við töpuð-
um tveimur stigum á móti Swan-
sea en bættum fyrir það í dag.
Þetta var sönn meistaraframmi-
staða,“ sagði Sir Alex Ferguson
eftir 4-3 sigur á Newcastle í gær.
Newcastle komst þrisvar sinnum
yfir í leiknum en United jafnaði
í öll skiptin og Javier Hernán-
dez skoraði síðan sigurmarkið
á 90. mínútu. Þetta var áttunda
sigurmark United-liðsins í deild-
inni og enn einn leikurinn þar
sem liðið kemur til baka. United
hefur nú náð í 24 stig í leikjum
þar sem liðið hefur lent undir í
fyrstu 19 umferðunum.
Adam Johnson, fyrrum leik-
maður Manchester City, skoraði
sigurmark Sunderland á móti
sínum gömlu félögum og City
er nú aðeins fjórum stigum á
Chelsea, sem vann 1-0 sigur á
Norwich City þökk sé sigurmarki
Spánverjans Juan Mata.
„Þeir unnu bæði Manchester
United og Arsenal og þetta var
því erfiður leikur. Ég er mjög
ánægður með frammistöðuna og
liðið er farið að sýna karakter,“
sagði Rafa Benitez, stjóri Chel-
sea.
„Það alltaf sama sagan hjá
okkur á móti Sunderland. Ætli
við sleppum því ekki að koma
hingað á næsta ári en við megum
samt ekki gleyma því að við
töpuðum hérna á síðasta tíma-
bili en unnum samt titilinn,“
sagði Roberto Mancini, stjóri
Manchester City.
Tottenham-maðurinn Gareth
Bale var maður dagsins, en hann
skoraði þrennu í seinni hálfleik
þegar Tottenham vann 4-0 úti-
sigur á Aston Villa. Gylfi Þór
Sigurðsson kom inn á sem vara-
maður ellefu mínútum fyrir
leikslok og lagði upp síðasta
mark Bales fimm mínútum síðar.
ooj@frettabladid.is
Sjö stiga forysta hjá United
Manchester United vann 4-3 sigur á Newcastle þrátt fyrir að lenda þrisvar undir og Man. City tapaði á sama
tíma fyrir Sunderland. Gareth Bale skoraði þrennu í sigri Tottenham, þar af eitt eft ir stoðsendingu frá Gylfa.
ÞRENNAN Í HÖFN Gareth Bale fagnar hér þriðja og síðasta marki sínu á móti Aston
Villa, en það kom eftir stoðsendingu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. NORDICPHOTOS/GETTY