Fréttatíminn - 13.07.2012, Side 12
Fer með brúðarkjól frá ömmu
sinni í fegurðarsamkeppni
Verð áður: 3.073 kr.
Verð nú: 2.458 kr.
Voltaren Gel 100g
15% afsláttur
Stífar æfingar í ræktinni
„Ég hef ekkert verið voðalega dugleg í ræktinni en ég
hef passað að borða hollan mat, hreyfa mig og sofa
nóg,“ segir Íris sem kveðst hafa snúið lífi sínu á hvolf
þegar henni bárust gleðifregnirnar fyrir tveimur
vikum. „Það fór allt á fullt þegar ég fékk að vita þetta.
Ég er búin að vera hjá einkaþjálfaranum, Aðalheiði Ýr
í Laugum, og það er ýmislegt búið að gerast á þessum
stutta tíma.“
Auk þess að æfa stíft í ræktinni er að mörgu að huga
í undirbúningi fyrir mánaðardvöl í Kína. Íris Telma fór
í myndatöku hjá ljósmyndaranum Arnold Björnssyni
en meðfylgjandi mynd af henni er úr þeirri töku. Mikill
tími hefur líka farið í að velja réttu fötin. „Þetta er rosa-
lega mikið af kjólum sem ég þarf að hafa með mér. Mig
langaði að vera í öðrum kjól en ég var í á keppninni hér
heima svo ég reddaði mér honum sjálf að utan. Það eru
120 stelpur í keppninni og maður þarf að vera áberandi
og í flottum kjól,“ segir Íris.
Hún pantaði aðalkjólinn að utan og hefur því enn
ekki getað mátað hann. „Ég fæ hann sendan – það
er eins gott að hann passi!“ segir hún og hlær.
Íris segir að kjóllinn sé „nude“ og það sama
gildi um skóna sem hún fái frá Gyðju.
Kjóllinn er alsettur steinum og skórnir
eru úr roði. „Þeir eru rosalega flott-
ir“ segir fegurðardrottningin.
Þegar mikið liggur við er gott
að eiga góða að. Það sannast
hjá Írisi Telmu því ef kjóllinn
sem hún pantaði að utan
passar ekki er hún með
varakjól sem amma
hennar lét henni í
té. „Amma gaf
mér gamlan
brúðarkjól
sem er verið
að breyta.
Hún átti
brúðar-
kjóla-
leigu í
gamla
daga og
ég fékk
einn flott-
an sem ég
er að vísu að
gjörbreyta.“
Foreldrarnir fylgja
með til Kína
Það getur ekki verið
auðvelt að rífa sig upp
fyrir mánaðarferð með litlum
fyrirvara. Íris Telma er ein-
hleyp og gat því stokkið til. Hún
starfar sem snyrtifræðingur á
snyrtistofunni Caritu í Hafnarfirði
og tók sér langt sumarfrí frá störfum
þar. Hún segir að samstarfskonurnar
þar styðji vel við bakið á sér og hún
sé þegar farin að sakna þeirra. For-
eldrar Írisar ætla að koma út til Kína
og styðja við bakið á henni. „Þau koma
út tíu dögum fyrir keppnina. Þetta er
náttúrlega bara eitthvað sem maður
gerir bara einu sinni.“
Framundan er langt ferðalag í
austurveg. „Flugið er 29 tímar og það
er ekki skemmtilegt fyrir mig sem er
ein sú flughræddasta. Þetta verður eitt-
hvert ævintýri,“ segir Íris Telma.
Íris Telma kveðst ekki gera sér háleit-
ar hugmyndir um árangur í keppninni,
hún ætli bara að taka þátt og gera sitt
besta. „Ég er voða hógvær með þetta,“
segir hún. Keppendur í Miss World
mega ekki vera á Facebook meðan á
keppninni stendur en Íris ætlar að greina
frá ævintýrum sínum á bloggsíðunni iris-
telma.blogspot.com.
Íris Telma Jónsdóttir er á leið í 29 tíma ferðalag
til Kína í næstu viku. Þar fara í hönd æfingar og
undirbúningur fyrir Miss World sem fer fram 18.
ágúst. Ljósmynd/Arnold Björnsson
É
g bjóst alls ekki við
þessu. Mig hefur
alltaf langað að fara
út til að keppa en ég
bjóst kannski ekki
við að komast í Miss
World,“ segir Íris Telma Jónsdóttir,
21 árs Hafnarfjarðarmær sem er
á leið til Kína í næstu viku til að
keppa í Miss World.
Íris Telma lenti í öðru sæti
í Ungfrú Ísland árið 2010
og því var ekki ráðgert að
hún yrði fulltrúi Íslands að
þessu sinni. Miss World fer
fram 18. ágúst næstkomandi
en ný Ungfrú Ísland verður
ekki krýnd fyrr en í sept-
ember og þess vegna var
leitað til hennar. „Ég fékk
rosa stuttan fyrirvara, það
er bara rúm vika síðan talað
var við mig. Sem betur fer
var ég í þokkalegu standi.“
Tvö ár eru liðin síðan Íris Telma
Jónsdóttir varð í öðru sæti í
keppninni um Ungfrú Ísland. Hún
var því ekki alveg í gírnum þegar
hún var beðin með skömmum
fyrirvara að taka þátt í Miss World
fyrir Íslands hönd. Íris sló samt til
og er á leið í mánaðarferð til Kína.
12 viðtal Helgin 13.-15. júlí 2012