Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.07.2012, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 13.07.2012, Blaðsíða 14
S igga Beinteins er feimin að eðlisfari og þótti erfitt að verða á skömmum tíma þekkt andlit sem gat ekki farið út í búð án þess að fólk velti því fyrir sér hvað væri í innkaupakörfunni hennar. Hún byrjaði að syngja þriggja ára og átti þá ósk sem barn að standa á sviðinu í Euro- vision og syngja fyrir hönd Íslands. Hún segist vera mikil tilfinningavera og þver heima fyrir þótt það sé alveg hægt að tala hana til. Stærsta gjöfin er hins vegar börnin tvö sem hún og sambýliskona hennar, Birna María Björnsdóttir, eignuðust fyrir fimmtán mánuðum. Hún segir að fæðing tvíburanna, Alexöndru Lífar og Viktors Beinteins, þann 24. apríl fyrir rúmu ári, hafi verið stærsta stund lífs síns. „Það var stórkostlegt að sjá þau fæðast. Þau komu að vísu með keisara, en það var dásamleg stund. Ég gat ekki annað en grátið, þetta var svo stórfeng- legt,“ segir Sigga. Hún segir að líf sitt hafi tekið algjöra kúvend- ingu með fæðingu barnanna. „Þetta er dásamlegt en ég hefði ekki verið tilbúin í þetta fyrr. Ég hef alla tíð verið mikið með börn systkina minna og alltaf þótt rosalega gaman að vera með börnum og vinna með börnum. Innst inni langaði mig alltaf í mín eigin börn. Það var alltaf draumurinn. Og svo þegar við ákváðum að prófa að eignast börn komu tvö frekar en eitt! Og það náttúrulega toppaði allt að fá strák og stelpu. Þetta er toppurinn á öllu. Þetta er sko besta gjöf sem ég hef á ævinni fengið. Þetta er það yndislegasta í heimi.“ Aldurinn er afstæður Aðspurð segist hún ekkert hafa velt því fyrir sér hvort hún væri of gömul til að eignast börn, 49 ára. „Ég hugsaði það aldrei þannig, því það skipti ekki máli. Aldurinn er svo afstæður. Ef maður getur gefið af sér eins og maður þarf, og gert það sem þarf að gera, er aldurinn aukaatriði. Og ég held að því seinna á ævinni sem maður eignast börn, því betra, myndi ég segja. Þegar maður er kominn á minn aldur er maður kominn á svo góðan stað í líf- inu, búin að eignast allt sem maður þarf á að halda, hús og bíl og innbú og allt það, og maður er orðinn svo tilbúinn. Annars var það bara mjög sniðugt hjá mér að gera þetta svona seint. Ég framleiddi fyrst barnaefnið og svo börnin“, segir hún og hlær. „Kannski var ég bara ómeðvitað að undirbúa þetta allan tímann sem ég hef verið með Söngvaborg.“ Tvíburunum finnst skemmtilegast af öllu að syngja með Siggu mömmu. Eitt af fyrstu orðunum þeirra var La sem þýðir Söngvaborg. „Uppáhalds- lag Alexöndru er rólega lagið úr Ávaxtakörfunni, Í réttu ljósi, og þeim þykir báðum Fugladansinn rosalega skemmtilegur. Þeim finnst voða gaman að horfa á Söngvaborg, en ég held þau hafi ekki hug- mynd um að þetta sé ég þarna á skjánum, ég held þau séu ekkert búin að kveikja á því,“ segir Sigga. Sigga segist ætla að aðlaga vinnuna sína að hinu nýja fjölskyldulífi því hún sé staðráðin í að eyða eins miklum tíma með börnunum og hún getur. „Þessi tími kemur ekki aftur.“ Hún ætlar að minnka viðveru sína í söngskólanum sem hún hefur rekið með systur sinni í Noregi frá árinu 2003 og er að innrétta söngstúdíó á neðri hæðinni hjá sér í húsi þeirra Birnu í Kópavoginum og ætlar að byrja að kenna söng þar í haust. Hefur ekkert sofið En hvernig hefur gengið að samræma líf söng- konunnar og tvíburamömmunnar? „Það hefur bara gengið þannig að maður hefur ekkert sofið,“ segir hún og hlær. „Það hefur verið lítið um svefn. Þetta Ég er í raun tvær Siggur Sigga Beinteins heldur upp á fimm- tugsafmælið sitt með stórtónleikum á afmælisdaginn sinn, 26. júlí og fagnar um leið þrjátíu ára tónlistarferli. Í einlægu og opinskáu viðtali segir hún frá tvíbur- unum sínum, sem fæddust fyrir rúmu ári og voru kúvending í lífi hennar, hvað henni þótti erfitt að verða fræg, feimninni og æskudraumnum, sem var að standa á sviðinu í Eurovision. tekur á en Birna er rosalega skilningsrík og leyfir mér að sofa þegar ég get sofið. Svefninn er reyndar það mikilvægasta ef maður ætlar að halda rödd- inni, maður verður að hvíla nóg annars fer röddin. Maður verður bara hás og ef maður sefur ekki nóg aukast líkurnar á kvefi og pestum og það er algjört eitur fyrir söngfólk.“ Tvenn merkileg tímamót Sigga heldur upp á tvenn merkileg tímamót um þessar mundir. Hún verður fimmtug þann 26. júlí og á jafnframt þrjátíu ára söngafmæli á árinu. Hún fagnar áfanganum með stórtónleikum á afmælis- daginn þar sem allar helstu stjörnur íslenskrar tón- listar koma fram með henni. „Þetta verður rosalega skemmtilegt. Ég verð með flottustu bakraddir á Íslandi, Friðrik Ómar, Regínu Ósk og Ernu Hrönn. Maður fær ekki betra fólk. Svo er ég með æðis- legt níu manna band. Og svo koma vinir mínir í bransanum og syngja með mér, Björgvin Halldórs- son, Grétar Örvarsson og Páll Óskar Hjálmtýsson. Þetta verða mjög flottir tónleikar enda stór dagur.“ Þegar hún er spurð út í hvað standi nú uppúr á þessum þrjátíu ára tónlistarferli svarar hún: „Þátt- takan í Eurovision og tíminn með Stjórninni, öll sveitaböllin sem við spiluðum á, hugsa ég. Það er allavega það fyrsta sem kemur í hugann,“ segir Sigga og bætir við: „Það er rosalega skemmtilegt að taka þátt í Eurovision. Þótt það sé mikil vinna og kostnaður er þetta svo mikil upplifun. Maður kemst í tæri við og upplifir svo margt. Svo er nátt- úrulega æðislegt að syngja fyrir landið sitt.“ Sigga hefur fjórum sinnum tekið þátt í Eurovision, árið 1990 með Eitt lag enn sem hún söng með Grétari Örvarssyni, árið 1992 þegar hún söng lagið Nei eða já með Sigrúnu Evu og loks árið 1994 með lagið Nætur. Auk þess söng hún bakraddir árið 2006 þegar Silvía Nótt tók þátt fyrir Íslands hönd. „Ég get alveg sagt þér smá leyndarmál. Ég horfði alltaf á hverja einustu Eurovisionkeppni þegar ég var lítil, á hverju einasta ári. Og ég var alltaf að ímynda mér að ég stæði þarna á sviðinu og væri að syngja. Ég held ég hafi meira að segja sagt það við mömmu einhvern tímann, að ég ætlaði sko að vera þarna á sviðinu einn daginn og syngja. „Ég ætla að standa á þessu sviði einhvern tímann og syngja. Ég ætla að fara í Eurovision!“.“ Byrjaði að syngja þriggja ára En hvenær byrjaði Sigga Beinteins að syngja? „Ég var víst byrjuð að syngja þriggja ára. Ég man nátt- úrulega ekkert eftir því. Ég man hins vegar að Framhald á næstu opnu „Ég hef nú alltaf trúað því að ef mann langar eitthvað og óskar sér einhvers þá kemur það til manns, bara spurning um hvenær það kemur.“ Sigga Beinteins og Birna María Björnsdóttir með tvíburunum sínum, Viktori Beinteini og Alexöndru Líf sem fæddust fyrir 15 mánuðum. 14 viðtal Helgin 13.-15. júlí 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.