Fréttatíminn - 13.07.2012, Blaðsíða 30
Honey Cheerios – fullt af fjöri.
Fljúgandi byrjun
á frábærum degi
Núna fylgir frisbí-diskur með hverjum
pakka af Honey Cheerios.
Með Jesú í Múlasveitinni
H Það verður að viðurkennast að kirkju-sókn mín hefur verið takmörkuð, það er að segja almenn messusókn. Vonandi fyrirgefst það á efsta degi, reyni maður að öðru leyti að haga sér skikkanlega í þessu jarðlífi. Þótt kirkjusóknin hafi
verið svona og svona hef ég engu að síð-
ur dálæti á gömlum sveitakirkjum sem
geyma mikla sögu í hógværð sinni. Hið
sama á við um konu mína. Því stoppum
við gjarna hjá vinalegum litlum kirkjum
á ferð um landið. Þær freista okkar
frekar en hátimbraðar kirkjubyggingar
samtímans, með fullri virðingu þó fyrir
þeim.
Sveitakirkjunum er víðast vel við haldið,
að utan jafnt sem innan, enda fólgin í
þeim mikil menningarverðmæti. Bekk-
irnir eru harðari en bólstraðar sæta-
raðir stórkirkna þéttbýlisins en halda
kirkjugestum betur vakandi. Loftið er
oftar en ekki blámálað, í ýmsum tónum
og stundum skreytt gylltum stjörnum.
Predikunarstóla prýða undantekningar-
lítið málverk löngu genginna listamanna
og pílárar í altari bera vitni um hagleik.
Kirkjugripir eru forvitnilegir og eiga
margir langa og merka sögu.
Sumar þessara sveitakirkna eru þar sem
enn er myndarlega búið en aðrar í eyði-
byggðum þar sem engir eru eftir nema
sumargestir, afkomendur þeirra sem
þar áttu sína daga og hvíla í kirkjugörð-
um sem fróðlegt er að skoða.
Þegar boðuð var sumarmessa í kirkju
eyðisveitar vestur á fjörðum um liðna
helgi stóðumst við ekki mátið. Messa
átti í Skálmarnesmúlakirkju, í hinum
gamla Múlahreppi, vestasta hluta
Austur-Barðastrandarsýslu, sem nú
tilheyrir Reykhólahreppi eftir að allir
hreppar austursýslunnar voru samein-
aðir. Breytti engu um ákvörðun okkar
að drjúgan spöl er að fara, jafnvel um
malarvegi sem Ögmundur samgöngu-
og kirkjuráðherra hefur enn ekki látið
endurgera. Það er ekki alslæmt því
eftir hverja ferð vestur kemur maður
með svolítið af hinni helgu jörð Vest-
fjarða með sér í bæinn, innan og utan á
brettum bílsins.
Skálmarnesmúlakirkja er í eyðisveit og
raunar ekki gömul miðað við margar
aðrar sveitakirkjur, byggð á árunum
eftir miðja síðustu öld og vígð sumarið
1960 af Sigurbirni Einarssyni biskupi,
föður Karls biskups. Kirkjan er hlaðin úr
holsteini og tók bygging hennar um ára-
tug, áður en bílvegur var lagður. Bygg-
ingarefni í kirkjuna var því flutt á
bátum og síðan klakka og kerru
heim á staðinn, eins og séra
Ágúst Sigurðsson frá Möðru-
völlum segir frá í ritverki sínu
um kirkjustaði á Vestfjörðum
og getið er um á vef Reykhóla-
hrepps.
Kirkja var að fornu á Skálmar-
nesmúla, eða Múla eins og
bærinn kallast í daglegu tali
og Múlahreppur heitir eftir, án
þess að getið sé nema um einn
prest sem þar sat, snemma á
þrettándu öld. Í hinn ágæta
Múlahrepp á ég ættir að rekja í
móðurætt og var þar drengur í
sveit er kirkjan var vígð og fylgdi
afabróður mínum og hans fólki í
Skálmardal til athafnarinnar. Oft
síðan hef ég heimsótt þessa lát-
lausu kirkju, eða fremur kirkju-
garðinn þar sem forfeður mínir
liggja, meðal annars langamma
og langafi, en aldrei setið messu.
Nú var tækifærið. Séra Elína Hrund
Kristjánsdóttir, prestur á Reykhólum,
kallaði til guðsþjónustu en messað er í
kirkjunni einu sinni á ári. Það voru því
fleiri á ferð á Múlanesinu um helgina en
endranær, þótt sumarnot séu af jörðun-
um á nesinu og hlunninda gætt, meðal
annars æðarvarps. Betra er að vera á
háfættum fjórhjóladrifnum bíl til þess að
komast til messu í Múlakirkju og þeirrar
gerðar voru bílar á kirkjuhlaðinu, að
undanskildum einum virðulegum Benz.
Ökumaður hans hafði með lagi komið
honum á nesið án þess að keyra undan
honum hljóðkút eða setja gat á pönnuna.
Sólin baðaði kirkjuna geislum, hvít-
málaða með rauðu þaki, þegar gestir
gengu til messu og fylltu hvern bekk,
nema þann fremsta. Múlhreppingar
trana sér ekki fram. Ræða séra Elínu,
langt að kominn kór Reykhólakirkju,
harmonikkuleikur og harðir bekkirnir
héldu mönnum við efnið. Söfnuðurinn,
að minnsta kostir sumir, tóku vel undir í
sálmasöng.
Á eftir var kirkjukaffi sem Þuríður á
Múla, Ásta á Deildará og fleiri góðar
konur sáu um. Borð svignuðu undan
hnallþórum, kleinum og flatbrauði.
Stundin var dásamleg þar sem frá kirkj-
unni sást yfir nes, sker og eyjar Breiða-
fjarðar. Þótt sveitin sé löngu farin í eyði
sækja æ fleiri þangað á ný, leita kyrrðar
og dásemdar náttúrunnar og tengja sig
þeim sem gengnir eru en voru með
hugann við sína sveit þótt aðstæður
leyfðu ekki lengur búskap og þeir
flyttust á mölina. Í draumum voru
þeir vestra.
Víða í Múlahreppi, eins og fleiri
eyðihreppum, hafa hús verið gerð
upp og sumarhús reist. Félög hafa
verið stofnuð um viðhald og upp-
byggingu húsa sumra jarðanna
og átthagafélag hreppsins minnir
menn vetrarlangt á þær sælu sum-
arstundir sem í vændum eru.
Ég stóðst það ekki í fjölskylduboði,
eftir heimkomu úr messuferðinni,
að monta mig aðeins af því að hafa
verið viðstaddur vígslu Múlakirkju
á sínum tíma. Barnabarni mínu,
sem aðeins er farið að læra biblíu-
sögurnar, þótti þetta ekki síður
merkilegt, en nokkuð langt aftur í
fortíðinni, og spurði því í einlægni:
„Afi, voru þið Jesús þá að leika
ykkur saman í Múlasveitinni þegar
þið voruð litlir?“
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
30 viðhorf Helgin 13.-15. júlí 2012