Fréttatíminn - 13.07.2012, Page 46
46 bíó Helgin 13.-15. júlí 2012
Mike
drýgir tekj-
urnar sem
fatafella
og er einn
sá besti og
eftirsóttasti
í brans-
anum.
FrumsýndAr soderbergh TeFlir FrAm sTælTum sTrákum
Magic Mike, sem Channign Tatum leikur, fer yfir málin með eiganda nektarklúbbsins sem hann dansar á en Matthew McCo-
naughey leikur þann hressa náunga.
Karlkynsfatafellur í
vondum málum
s íðustu tvær myndir Soderberghs eru býsna ólíkar en í Haywire djöflaðist MMA-bardagagellan Gina Carano í
spennuhlöðnu hefndardrama og eirði engum
sem á vegi hennar varð en í Contagion tefldi
leikstjórinn fram herskara stórleikara í mynd
sem fjallaði um banavænan vírus sem fór sem
eldur í sinu um heimsbyggðina.
Gwyneth Paltrow, Matt Damon, Laur-
ence Fishburne, Jude Law, Marion Cotil-
lard, Kate Winslet, Elliott Gould og Bryan
Cranston urðu þar ýmist fyrir barðinu á
veirunni, reyndu að finna mótefni gegn henni
eða hindra útbreiðslu hennar. Slíkur úrvals-
hópur leikara er að vísu engin stórfrétt þegar
Soderbergh er annars vegar enda sækjast
stórstjörnurnar eftir því að starfa með honum.
Í Magic Mike er í raun óvenju lítið um stór-
stjörnur og í leikhópnum er sá lúmski leikari
Matthew McConaughey helsti reynslubolt-
inn. Nýstirnið Channing Tatum (G.I. Joe:
Retaliation, 21 Jump Street, Haywire) fer með
titilrulluna en hann og McConaughey hafa
síðan þau Alex Pettyfer, Olivia Munn, Matt
Bomer og Joe Manganiello sér til halds og
trausts.
Alex Pettyfer leikur Adam, landeyðu sem
missir skólastyrk eftir slagsmál við ruðnings-
þjálfara sinn. Hann heldur þá til Flórída þar
sem hann ætlar að setjast upp hjá systur sinni.
Hann kemst í byggingavinnu og kynnist þar
Mike Lane (Channing Tatum). Adam kemst
síðar að því að Mike drýgir tekjurnar sem
fatafella og er einn sá besti og eftirsóttasti í
bransanum. Fyrir tilviljun álpast Adam á svið
og reytir af sér spjarirnar með slíkum tilþrif-
um að Mike, sem er þekktur sem Magic Mike
í bransanum, ákveður að taka nýliðann undir
sinn verndarvæng og kenna honum öll trixin
í bókinni. Sem ganga aðallega út á að krækja
sér í sem mestan pening og auðvitað stelpur.
Mike dreymir sjálfan um að koma undir sig
fótunum og skipta um lífsstíl og sér Adam,
sem nefndur er The Kid, sem arftaka sinn á
klúbbnum sem Dallas (Matthew McConaug-
hey) rekur. Leiðin út úr heimi fatafellunnar er
þó grýtt og þeir félagar lenda í ýmsum kostu-
legum hremmingum ekki síst í tengslum við
mislukkuð fíkniefnaviðskipti.
Næsta verkefni Soderberghs verður
spennumyndin Bitter Pill eftir handriti Scott
Z. Burns en hann hefur áður kvikmyndað
Contagion og Informant! eftir handritum
Burns. Bitter Pill fjallar um þunglynda konu
í persónulegum vandræðum sem hrúgar í
sig læknadópi til þess að slá á kvíðann sem
fylgir því að eiginmaður hennar er við það að
losna úr fangelsi. Lítið meira er vitað og ljóst
að sagan getur farið í ýmsar áttir en handritið
hét upphaflega The Side Effects, eða Aukaverk-
anir, og sagt vera kraumandi þriller í anda
Basic Instinct og The Jagged Edge.
Soderbergh stefnir á tökur í seint í vetur
eða vorið 2012 en þegar hann hefur lokið við
Bitter Pill snýr hann sér að því sem á að vera
hans síðasta mynd, ævisögu Liberace, Behind
the Candelabra.
Leikstjórinn Steven Soderbergh er með þeim flinkustu og fjölhæfustu í Holly-
wood. Hann er jafnvígur á mannlega dramatík, glæpamyndir og heiladauða spennu
eins og til dæmis Haywire. Þrátt fyrir að vera á besta aldri og hafa varla stigið feil-
spor frá því hann stormaði fram á sjónarsviðið með Sex, Lies, and Videotape árið
1989 hefur hann látið þau boð út ganga að hann ætli að hætta störfum fljótlega.
Því má ætla að fatafellugrínið Magic Mike verði í hópi síðustu mynda hans.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bangsinn Ted
truflar ástarlífið
Seth MacFarlane hefur gert það
býsna gott í sjónvarpi á liðnum árum
með teiknimyndaþáttunum Family
Guy og American Dad þar sem hann
gerir út á groddahúmor og fetar þar þá
smekkleysisbraut sem Trey Parker og
Matt Stone mörkuðu með South Park.
Farlane er nú mættur með nokkrum
látum og góðu gríni í bíó með sína
fyrstu leiknu bíómynd í fullri lengd. Hér
segir frá hinum vinalausa John Bennett
(Mark Wahlberg) sem í æsku óskar
sér þess að bangsinn hans, Ted, vakni
til lífsins. Það gengur eftir og hann fer
í gegnum lífið með talandi bangsann
sem sinn besta félaga.
Málin vandast verulega þegar hann
verður fullorðinn og verður ástfanginn
af Lori, sem Mila Kunis leikur. Ted
er þriðja hjólið í sambandi þeirra og
veldur ýmsum vandræðum, eins og við
er að búast.
Seth MacFarlane talar fyrir bangsann
sem gefur persónum í Family Guy
ekkert eftir og fer langt út yfir öll vel-
sæmismörk með kjaftagangi sínum og
dónaskap.
Aðrir miðlar: Imdb: 7.8, Rotten
Tomatoes: 68%, Metacritic: 62%
Landrek hleypir
öllu í rugl
Tölvuteiknimyndin Ice Age sló hressi-
lega í gegn fyrir tíu árum. Þar fóru
mammútinn Manni, letidýrið Lúlli og
sverðtennta tígrisdýrið Dýri á kostum
í forsögulegu gríni þar sem þessi
undarlegi hópur bjargaði mannsbarni
og lenti í miklum ævintýrum í kjölfarið.
Fjórða Ísaldar-myndin er komin í
bíó og rétt eins og í þremur fyrri
myndunum stelur furðudýrið Scrat
senunni og hleypir atburðarásinni
af stað í endalausum eltingarleik við
draumahnetuna sína. Nú hleypir Scrat
öllu í bál og brand þegar barátta hans
við hnetuna setur landrekið mikla
af stað. Heimsálfurnar slitna hver
frá annarri í miklum hamförum sem
verður til þess að Manni, Dýri og
Lúlli verða strandaglópar á stórum
ísjaka sem rekur eitthvert út í buskann
þar sem þeir rekast meðal annars á
sjóræningja.
Góð ráð eru því dýr að þessu sinni og
hetjurnar leggja allt í sölurnar til þess
að komast aftur heim en á vegi þeirra
verða ekki aðeins sjóræningar, heldur
einnig risakrabbar og amma Lúlla.
Manni er auðvitað þunglyndur að
vanda enda búinn að týna fjölskyldunni
sinni en er tilbúinn til að leggja
ýmislegt á sig til þess að finna aftur
eiginkonu sína og dóttur.
Aðrir miðlar: Imdb:7.0, Rotten
Tomatoes: 52%, Metacritic: 55%
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Mark Wahlberg lendir í basli með hinn
kjaftfora bangsa, Ted.
Manni, Dýri og Lúlli kynnast nýjum vinum
og hættum í Ísöld 4.
Fyrir tíu árum sveiflaði leikstjór-
inn Sam Raimi Köngulóarmann-
inum í bíó með stórgóðri mynd um
þessa unglingaveiku ofurhetju.
Hann fylgdi myndinni eftir með
enn öflugri framhaldsmynd en lauk
þríleik sínum hálf dapurlega með
þvældri Spider-Man 3 árið 2007.
Það er því full stutt síðan Tobey
Maguire fór úr búningi Köngulóar-
mannsins í síðasta sinn og óneitan-
lega hafði maður nokkrar efasemdir
um tilgang þess að hverfa aftur á
byrjunarreit og segja sögu Lóa upp
á nýtt jafn fljótt og raun ber vitni. En
um þetta er óþarfi að ræða frekar.
The Amazing Spider-Man er svo fer-
lega skemmtileg, flott, krúttleg og
gerð af svo mikilli natni að annars
ágætar myndir Raimis verða nú ekk-
ert annað en fjarlæg minning.
Andrew Garfield malbikar með
frammistöðu sinni í titilhlutverkinu
yfir Tobey Maguire og leikur Peter
Parker/Spider-Man af slíkri ástríðu
og væntumþykju fyrir persónunni
að hann gerir Spider-Man algerlega
að sínum.
Hér er ansi drjúgum tíma eytt í
Peter Parker áður en hann verður
Köngulóarmaðurinn og hann fer
ekki í búninginn fyrr en rétt fyrir
hlé. Samt er aldrei dauðan punkt
að finna í myndinni sem er framan
af hið fínasta unglingadrama þar
sem lúðinn Peter Parker læðist með
veggjum skólans, bálskotinn í Gwen
Stacy sem sú einkar geðþekka leik-
kona Emma Stone túlkar frábær-
lega. Samleikur Stone og Garfield
er burðarás myndarinnar en þegar
hasarinn byrjar fyrir alvöru þá er
hvergi slegið af og í snörpum loka-
kafla fáum við magnað uppgjör og
Lói sýnir geggjaða loftfimleika sem
unun er á að horfa.
Síðan eru bara allir svo ofboðslega
geðþekkir og krúttlegir í myndinni
sem er feykivel mönnuð. Martin
Sheen er auðvitað elskulegasti leik-
ari í heimi og nær manni alveg sem
Ben frændi og Sally Field er dúlla í
hlutverki May frænku. Rhys Ifans
er tragískur í hlutverki Curt Con-
nors sem því miður breytist í illfygl-
ið The Lizard og Denis Leasry er
grjótharður á yfirborðinu en mjúkur
innra í hlutverki föður Gwen og lög-
reglustjórans í New York.
The Amazing Spider-Man er frá-
bær skemmtun. Ekta sumarmynd
sem leggur grunninn að einhverju
sem gæti orðið yfirþyrmandi góð
Spider-Man- sería. Þórarinn Þórarinsson
bíódómur The AmAzing spider-mAn
Hefnd köngulóarlúðans