Fréttatíminn - 13.07.2012, Blaðsíða 51
dægurmál 51Helgin 13.-15. júlí 2012
S. 575 7575
fabrikkan@fabrikkan.is
BORÐAPANTANIR
× Komdu á staðinn eða
hringdu í síma 5757575
× Fljótleg og hröð afgreiðsla
TAKE AWAY FLJÓTLEGT Í HÁDEGINU
Hrefna er ómótstæðilegur hamborgari úr fersku,
alíslensku hrefnukjöti. Með piparosti, klettasalati, rauðlauki,
tómötum, Bostonkáli og Sinnepspiparsósu Fabrikkunnar
sem rammar þetta allt saman inn.
Hrefna fæst aðeins í takmarkaðan tíma og það er orðið
allt of seint að bóka skoðunarferðir til að sjá hana!
HAMBORGARI ÚR FERSKU HREFNUKJÖTI
HREFNA ER BORIN FRAM MEDIUM RARE SVO AÐ
BRAGÐGÆÐI KJÖTSINS NJÓTI SÍN TIL FULLS.
Holmes & Jang á
tískuvikuna í New
York
Leikkonan Katie Holmes, sem stendur nú
í skilnaði við Tom Cruise, tilkynnti fyrr í
vikunni að fatalínan hennar og stílistans
Jeanne Yang sé væntanleg í fyrsta sinn
á tískuvikuna í New York í september
næstkomandi. Fatalínan þeirra, sem heitir
Holmes & Jang, var stofnuð árið 2009 og
hefur fyrirtækið stækkað mikið síðan, úr
litlu fyrirtæki í tískurisa sem sérhæfir sig
í hátísku kvenmannsfatnaði. Á tískupall-
inum í september verður vor- og sumar-
línan fyrir 2013 frumsýnd og ríkir mikil
eftirvænting fyrir frumraun þeirra tveggja
á sýningarpallinum.
Það er nóg að gera hjá Katie Holmes.
Hún stendur í skilnaði við Tom Cruise
en undirbýr um leið nýja fatalínu með
stílistanum Jeanne Yang.
Ævintýraleg Dis-
ney-förðunarlína
Snyrtivörufyrirtækið Sephora, sem selur
vörur sínar út um allan heim, tilkynnti í
vikunni að ný förðunarlína sé væntanleg í
október næstkomandi. Hún er unnin í sam-
starfi við kvikmyndafyrirtækið Disney. Í
línunni verða alls konar litríkar förðunar-
vörur og naglalökk en innblásturinn er
sóttur til kvennanna í helstu teiknimyndum
Disney, Jasmine, Öskubusku, Mjallhvítar og
Þyrnirósar.
Förðunarlínan verður seld í öllum
verslunum Sephora víða um heim frá októ-
berlokum og hún verður svo sannarlega
ævintýraleg.
Prinsessurnar gefa tóninn fyrir förð-
unarlínuna.