Fréttatíminn - 13.07.2012, Qupperneq 52
Plötudómar dr. gunna
óbyggðir
Klaufar
Léttir í lopapeysu
Á þriðju plötu Klaufanna
hefur sveitin tekið upp
náið samstarf við Skerja-
fjarðarskáldið Kristján
Hreinsson. Hann semur
lungann af lögum og textum
en söngvari Klaufanna,
Guðmundur Annas Árnason,
er einnig liðtækur og á þrjú
lög. Innihaldið er íslenskt
lopapeysukántrý, oftast
léttleikandi, vel útfært og
viðkunnalega grípandi; text-
arnir í sveitagír og meira að
segja stundum krydd-
aðir með ágætri lífsspeki.
Á köflum eru útsetning-
arnar safaríkar og fyrirtaks
gestagangur (Selma og
Maggi Eiríks) auka á fjöl-
breytnina, svo útkoman er
hin ágætasta skemmtiplata
sem smellpassar við íslenskt
sumar.
ljúfar stundir
Hafsteinn Reykjalín
Úr skúffunni
Kópavogsbúinn, vélfræð-
ingurinn, leigubílstjórinn og
frístundamálarinn Hafsteinn
Reykjalín tekur hér upp úr
skúffunni tólf lög og ljóð og
fær þau valinkunnu Helgu
Möller og Ara Jónsson til að
syngja þau og snjalla hljóð-
færaleikara með Hilmar
Sverrisson í fararbroddi til
að leika undir. Stíllinn er
rammíslenskur. Sum lögin
hefðu getað tekið þátt í
danslagakeppni SKT á 6.
áratugnum, en önnur eru
meira nýmóðins og hljóma
eins og úr Söngvakeppninni
á 9. áratugnum. Í boði eru
ljúfsárar ballöður, harmón-
íkuvalsar og Geirmundarlegt
fjör, en þótt margt sé ágætt
hefði líklega ekkert laganna
komist á verðlaunapall.
Felines Everywhere
Mikael Lind
Saklaust dúllerí
Mikael er sænskur en hefur
búið hér um hríð. Þetta
er önnur platan hans en
Alltihop kom árið 2009
og vakti nokkra athygli.
Tónlistin er ósungin og
bæði lífræn og tölvukeyrð,
stundum bregður fyrir
klassískum áherslum en
mest er um draumkennt og
fingrahörpulegt plink-
plonk. Mikael kann vissulega
á tæknina en gerir ekkert til
að losna við hinn vafasama
„krútt“ merkimiða því hið
sakleysislega dúllerí minnir
full mikið á bæði Amiinu
og ódramatíska Sigur Rós.
Lögin birtast feimnisleg og
skjálfa um stund eins og
kandíflos í golu. Þótt áferðin
sé vandvirknisleg er hér fátt
eftirminnilegt sem kallar á
endurtekna hlustun.
multi-function
5100-31
Michelsen_5100-31_H200XB151.indd 1 6/5/12 9:34 AM
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
HEIMSFRUMSÝNING!
Frábær sálfræðitryllir í anda The Sixth Sense
ROBERT DE NIRO | SIGOURNEY WEAVER CILLIAN MURPHY
RED LIGHTS
Njóttu gæðanna og bragðsins og kældu þig niður í leiðinni með hollustu.
Joger - hollur og góður og fæst víða.. Prófuaðu bara!
Staðalbúnaður
Ég er að vinna í Fatamarkaðinum
á Laugavegi og hann er eigin
lega fataskápurinn minn, ég kaupi
mestallt þar. Ég geng eiginlega
bara í notuðum fötum en stundum
þegar ég er í útlöndum kaupi ég
nýtt, til dæmis í H&M. Ég kaupi
aldrei dýr föt. Mér finnst best að
ganga á strigaskóm og á ótrúlega
mikið af þeim, ég skil ekki að fólk
geti gengið mikið í hælaskóm. Það
eina sem ég fer ekki út úr húsi án
er síminn minn og kortið. Ef ég
þarf eitthvað annað þá kaupi ég
það bara.
Hugbúnaður
Þegar ég djamma fer ég stundum á
Dillon og á Celtic Cross en ég enda
samt alltaf á Ellefunni. Ég fíla hvað
það er skítugt og klístrað þar, þar
sleppa sér allir og detta rækilega
í það. Besta kaffihúsið er Hemmi
og Valdi. Þar getur maður setið
með einhverjum án þess að þurfa
að halda uppi samræðum. Ég fer
aldrei í bíó eða leikhús. Og mér
finnst ógeðslega leiðinlegt að lesa.
Ég get hins vegar ekki farið að
í takt við tímann agnEs Björt andradóttir
Löggiltur
101 hipster
Agnes Björt Andradóttir er 21 árs söngkona
í hljómsveitinni Sykri. Hún býr og vinnur
í miðbænum og kann best við sig þar.
sofa án þess að horfa
á Southpark eða
Family Guy. Svo hef
ég verið að horfa á Adventure
Time sem er steiktasti þáttur sem
hefur verið gerður, hann fjallar
um hund og strák sem eru alltaf í
ævintýraleit. Ég held ég fái minn
skammt af elektrótónlist
með Sykri svo ég hlusta
sjálf mikið á eldri tónlist.
Ég er mikið inni í Black
Sabbath, Pink Floyd,
Led Zeppelin og Jimi
Hendrix.
Vélbúnaður
Ég er löggiltur 101 hipster og
á Macbook Pro, iPod og
iPhone. Uppáhalds app
ið mitt heitir Fluffy Di
ver sem er leikur um sel
sem er að finna mömmu
sína. Þetta hljómar eins
og ég sé veik á geði en
ég elska að leika mér
í þessu þegar ég er að
bíða. Stundum spila
ég líka Tetriz á Game
boy, Super Mario er
alltaf klassík og Crash
Bandicoot líka. Og ég
elska að spila Tony Hawk
ef ég kemst í Playstation!
Facebook er samt ástin í líf
mínu. Ég á 1093 vini og
þarf alltaf að vera að
athuga hvað er
að gerast þar.
Ég er sjúk.
Aukabúnaður
Ég á heima í miðbænum og
labba allt sem ég fer. Besti
maturinn er ítalskur og
mexíkanskur. Ég borða
stundum á Vegamótum
eða Sólon og ef ég vil
eitthvað geðveikt gott
fer ég á Caruso. Ég fíla
ekki „fancy“ stöff, ég
nenni ekki að borða
tvær rækjur af steini
fyrir milljón. Mér finnst
fólk voða áhugavert og
sit oft og horfi á það og
pæli í hvað það er að gera
í lífinu. Ég er stundum
að sálgreina fólk á
djamminu. Ég hef
mikinn áhuga á bjór og
finnst gaman að smakka
nýjar tegundir. Ég hataði
alltaf Tuborg Classic en
nú er hann uppáhaldið
mitt. Planið er svo að fara að
stúdera viskí.
52 dægurmál Helgin 13.-15. júlí 2012