Fréttatíminn - 13.07.2012, Page 54
Hipsterinn
er ekkert
dauður,
ekki
frekar en
töffarinn,
slackerinn,
lúðinn eða
nördinn.
É g er ekki hættur í hljómsveitinni, ég spila
eins mikið með henni og
ég get,“ segir Haraldur
Ari Stefánsson, einn liðs-
manna hljómsveitarinnar
Retro Stefson.
Haraldur flytur til
London í haust þar sem
hann ætlar í leiklistarnám.
Hann hefur fengið inni í
hinum virta Central School
of Speech and Drama.
Haraldur er sonur Stef-
áns Jónssonar, leikara
og prófessors í leiklist við
Listaháskóla Íslands, svo
hann á ekki langt að sækja
hæfileikana. Hann var við-
loðandi leikhúsin frá unga
aldri og lék í leiksýningum
í menntaskóla. „Já, ég hef
alltaf stefnt á leiklistina,“
segir Haraldur.
Haraldur hefur vakið
athygli fyrir framgöngu
sína með Retro Stefson en
hann þykir mikill stuðbolti
á tónleikum sveitarinnar.
Ný plata er væntanleg
frá Haraldi og félögum á
næstunni og mikil spila-
mennska. „Við erum að
spila mikið á Íslandi í júlí
og svo förum við bæði á
G!-Festival í Færeyjum
og LungA sömu helgina.
Í byrjun ágúst förum við
svo á tveggja vikna túr um
Evrópu,“ segir Haraldur
Ari. -hdm
tímamót PoPPstjarna á leið í leiklistarskóla
Haraldur Ari flytur til London
Leikkonan og verslunarkonan
María Birta Bjarnadóttir hefur
verið á ferðalagi um Túnis ásamt
móður sinni, hinni geðþekku
flugfreyju Sigurlaugu Halldórs-
dóttur, eða Dillý eins og hún er
alltaf kölluð. Þær mæðgur eru
glæsikvendi eins og alþjóð veit
og karlpeningurinn í Túnis bók-
staflega slefaði þegar þær
fóru þar um. Munu ein-
hverjir þeirra hafa gert
hosur sínar grænar
fyrir þeim og raunar
hreinlega
Kameldýr og Ferrari
fyrir Maríu
m arga sem fylgjast með tískufyrir-bærum, straumum og stefnum, rak í rogastans þegar þeir lásu um
það í DV um síðustu helgi að hipsterinn væri
dauður – tískufyrirbæri sem hefur verið að
hasla sér völl að undanförnu; vart vaknaður
áður en steinrotaður var. Sá maður sem hef-
ur gert sér hipsterinn að sérstöku umfjöll-
unarefni er Halldór Halldórsson, eða Dóri
DNA, hugmynda- og textagerðarmaður hjá
Fíton; skemmtikraftur, tónlistarmaður og
lífskúnstner. Aðspurður bregst Dóri ókvæða
við þessum fréttum sem hann gefur reyndar
ekki mikið fyrir:
Hinn kjánalegi tíðarandi
„Auðvitað er hipsterinn ekkert dauður. Þetta
er bara múður í liði sem elskar að vera öðru-
vísi og vælir um leið og það er dregið í dilka.
Hipsterinn er ekkert dauður, ekki frekar en
töffarinn, slackerinn, lúðinn eða nördinn.
Hipster er heiti yfir lið sem eltir trend –
stundum í blindni, stundum ekki. Svo lengi
sem trend eru á lífi og lofti þá lifir hugtakið
um hipster – breytingin þarf að eiga sér stað
í tungumálinu, ekki á einhverjum helvítis
heitt/kalt lista,“ segir Dóri og dregur ekki
af sér. Sjálfur hefur hann lagt heila vefsíðu,
Hverjir voru hvar (hverjirvoruhvar.tumblr.
com), undir umfjöllun um hipsterinn.
Dóri segist ekki geta fest fingur á hvenær
og hvar áhugi hans vaknaði á hipsternum
sem slíkum, hann gengur meira að segja,
þrátt fyrir allt, svo langt að vísa spurn-
ingunni á bug. „Hef engan áhuga á þessu
fyrirbæri. Ég elti bara trend eins og hver
annar. Það eina sem ég hef áhuga á er að
brosa og hlæja yfir daginn. Ég er alveg jafn
kjánalegur og asnalegur og allir aðrir, ef
ekki helmingi verri. Þetta hipstera-dæmi lá
bar vel við höggi. Það er bara svo yndislegt
hvernig svona atburðarás virkar. Það er eitt-
hvað hipstera-klimax í gangi hjá kynslóðum
í kringum mann, hverjirvoruhvar reynir að
skrásetja það og gera grín í leiðinni, hipster-
ar í spíttskóm birtast í blöðum og reyna að
þvo hendur sínar af því að hafa verið nokk-
urntímann hipsterar. Þetta er frábært, þetta
er raunveruleikhús. Þetta er hinn áþreifan-
legi tíðarandi.“
Skræpóttar buxur og loð-derhúfur
Dóri segir að síða sín sé einfaldlega í því að
elta það sem er í gangi, gleðja þá sem standa
á bakvið síðuna og vonandi aðra í leiðinni.
„Bara til að búa til eitthvað haldbært úr ein-
hverju huglægu. Síðan deyr ekkert þó fólk
hætti að ganga í converse-skóm eða köfl-
óttum skyrtum. Fólk mun áfram vera ein-
hverstaðar að gera eitthvað – og þá er hægt
að segja frá því á hverjirvoruhvar. Ég er bara
gamall reportari úr blaðamannaskóla Jón-
asar Kristjánssonar, það eina sem ég kann er
að segja frá.“
Eins og ljóst má vera er Dóri með puttann
á púlsinum þegar tískufyrirbæri eru annars
vegar, hvers má vænta? Hvurskonar týpur
má búast við að sjá á götum Reykjavíkur
næstu vikurnar og mánuðina? Ekki stendur
á svörum: „Það verður eitthvað alveg fárán-
legt eins og venjulega. Skræpóttar buxur
með höri á hliðunum, skósíðir leðurfrakkar
og loð-derhúfur. Og að sjálfsögðu mun ég
taka þátt í því, vegna þess að það er gaman.
Maður á ekki að vera í stöðugu stríði við tím-
ana sem maður lifir á. Eða stanslaust þykjast
vita betur en aðrir og hefja sig yfir hvers-
konar múgæsing. Stundum er bara skemmti-
legra að taka þátt og hafa gaman, í alvöru.“
Jakob Bjarnar Grétarsson
jakob@frettatiminn.is
Haraldur Ari
er á leið í
leiklistarnám
í London en
ætlar samt að
spila áfram með
Retro Stefson.
götutíska í reykjavík Dóri Dna
Hipsterinn
lifir góðu lífi
Sölvi í Sakamálin
Þáttaröðin Sönn íslensk sakamál verður endurvakin
á Skjá einum næsta vetur. Það er framleiðslu-
fyrirtækið Purkur sem hyggst gera átta þætti og
er rannsóknarvinna fyrir þá þegar hafin. Meðal
þeirra sakamála sem verða til umfjöllunar eru Lík-
fundarmálið, Landsímamálið, mál Atla Helga-
sonar og Catalínumálið en handritsgerð, viðtöl og
undirbúningvinnu er þau mál varðar hefur Sölvi
Tryggvason sjónvarpsmaður með höndum.
Stiller á
leið til
landsins
Stórleikarinn Ben
Stiller mun vera
væntanlegur til landsins
um helgina. Eins og
kunnugt er verður
kvikmynd hans, The
Secret Life of Walter
Mitty, að hluta til
tekin upp á Íslandi.
Tökurnar fara fram í
haust en Stiller leggur
nú lokahönd á undir-
búning áður en tökur
hefjast; meðal annars
ákveða endanlega hvar
tökurnar fara fram.
Það er framleiðslufyrir-
tækið Truenorth sem
sér um að þjónusta
tökuliðið, rétt eins og
tökulið Oblivion með
Tom Cruise og Noah
sem Darren Aronofsky
stýrir.
boðið í þær. Verðhug-
myndir Túnisbúa hljóðuðu
upp á fjöldann allan af
kameldýrum og tíu Ferrari-
bíla. Pálma Gestssyni,
eiginmanni Dillýar, kemur
þessi áhugi ekki á óvart og
segir aðspurður að hann
myndi aldrei tíma að selja.
Dóri DNA segir að það sem koma skal í tísku verði alveg jafn fáránlegt og venjulega. Ljósmynd Teitur
1000 kr. afsláttur ef þú
kemur með gömlu bókina
(einungis hægt að skipta í bókabúðum,
ekki bensínstöðvum)
Í Vegahandbókina er komin ný, ýtarleg
24 síðna kortabók, á bls. 574-599.
Hér færð þú skýra yfirsýn yfir landsvæði
Íslands - í mælikvarðanum 1:500 000.
Auðvelt er að fletta á milli bókarinnar
og kortabókarinnar til að fá yfirsýn yfir
það svæði sem ferðast er um. Tilvísanir
leiða þig á rétta blaðsíðu. Ef þú ert
t.d. að aka til Búðardals og ert á bls.
281 í bókinni og vilt fá meiri yfirsýn
yfir svæðið er tilvísun á síðunni sem
vísar þér á kort nr. 3 á bls. 578 í
kortabókinni.
Vegahandbókin • Sundaborg 9 • Sími 562 2600
1.
Sæti Eymundsson metsölulisti
27.06.12 - 04.07.12. vegahandbokin.is
54 dægurmál Helgin 13.-15. júlí 2012