Fréttatíminn - 17.08.2012, Síða 16
H ann settist við skriftir og níu mánuðum síðar varð til bók. Í Slice Of Life: A Self-Help Odys-sey fléttar Ríkarður Líndal uppvaxtarárum
sínum í Kópavogi og sumardvöl sinni í sveitum lands-
ins, samkynhneigð sinni og tilgangi lífsins saman
í sjálfshjálparbók. Bókin kom út á ensku í mars á
þessu ári og vinnur Ríkarður nú að kynningarstarf-
inu. Markmiðið er að útskýra á einföldu máli hvernig
veröldin er sett saman og hvernig hver og einn mótar
veruleika sinn.
Ríkarður styðst við spíritisma – þá kenningu að
sálir framliðinna geti komist í samband við lifandi
fólk. Hann trúir á endurholdgun.
„Grundvallarmarkmið lífsins er að skapa tilfinning-
ar og læra af þeim og skapa þær án þess að fara sér
að voða,“ segir Ríkarður þar sem hann situr heima
við í húsi sínu og eiginmanns síns Johns Van Bakel.
Eplatré og skúlptúrar – sem Ríkarður vinnur að í
tómstundum sínum, prýða garðinn þeirra. Hitinn er
kominn í 25 gráður og klukkan rétt níu á þriðjudags-
morgni.
Í þrettán ár með John
Þeir Ríkarður og John hafa verið saman síðustu
þrettán ár, en giftu sig í fyrra. John starfar sem hár-
greiðslumeistari og rekur eigin stofu og þeir eiga tvo
hunda: Thor og Loka. Þeir búa tuttugu kílómetrum
utan við Coburg í Ontario-fylki Kanada, en í Kanada
hefur Ríkarður búið frá árinu 1991. Þangað flutti
hann aftur eftir að hafa unnið í ár hér heima á Íslandi,
bæði hjá Samtökum áhugafólks um alnæmisvandann
og á sálfræðistofu.
Ríkarður er næst elstur fjögurra bræðra sem allir
búa hér á landi en yngst er systir þeirra Anna sem
einnig býr með fjölskyldu sinni í Kanada. Hann lýsir
því í bókinni hvernig foreldrar hans lifðu í ástlausu
hjónabandi. Þau skildu. Móðir hans var bandarísk og
lést úr brjóstakrabbameini á sjötugsaldri. Snemma
uppgötvaði hann samkynhneigð sína en stofnaði ekki
til ástarsambands fyrr en eftir tvítugt, þá fluttur úr
landi. Hann lýsir því hvernig hann sem barn kveið
skólagöngu vegna lesblindu, skrópaði og þróaði með
sér stam, sem hann vann bug á með árunum.
Sögur af álfum, fylgjum og draugum fléttast inn í
frásögnina í bókinni og í samtölum við Gömlu sálina
leiðir hann lesandann að „tilgangi lífsins.“ Þetta hljóm-
ar skringilega en frásögnin er skýr og auðskilin, sem
var einmitt markmið Ríkarðs. Bækur um endurholdg-
un séu oftar en ekki of fræðilegar fyrir meðal Jóninn.
„Sálin deyr aldrei og að við lifum samtímis í þessu
lífi og utan þess. Maður er alltaf í sambandi við yfir-
sálina,“ segir hann og greinir í bókinni frá fjórum
hlutum sem móti manninn: Yfirsálin, sálin sjálf,
innri einkenni og ytra egó. Yfirsálin og sálin séu andi
mannsins, innri einkenni séu undirmeðvitundin en
ytra egóið meðvitundin.
Viðtal RíkaRðuR líndal
Læknar sálarkvilla vegna fyrri lífa
Drukknaði í sveitum Íslands í kringum 1100 og var því vatnshræddur í þessu lífi. Ákvað áður en
hann fæddist að eignast ekki börn, þar sem það var óbærilegt að missa sín tvö í seinni heim-
styrjöldinni. Ríkharður Líndal gefur lesendum Fréttatímans innsýn í ólík æviskeið sálar sinnar í
mismunandi líkömum í gegnum aldirnar. Ríkarður, sem stendur á sextugu, hefur aðeins búið í eitt
ár á Íslandi af síðustu fjörutíu. Hann er doktorsmenntaður sálfræðingur, sem býr með eiginmanni
sínum í Norðymbralandi í Ontario-fylki í Kanada og hjálpar einstaklingum í vanda með óhefð-
bundnum hætti. Hann rýnir meðal annars í fyrri líf þeirra með ákveðinni dáleiðslutækni.
Rikki, Thor, Loki og álfarnir. Meðal áhugamála Ríkarðs er gerð skúlptúra og situr hann hér á einum við heimili sitt í Ontario-fylki í Kanada. Mynd/einkasafn
„Ég hef
dáleitt
fólk og
fengið
það til
að muna
fyrri líf
þótt það
hafi enga
trú á
þessum
fræðum.
En það
man og
því batn-
ar jafn-
mikið og
hinum.“
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
www.baendaferdir.is
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
3. - 15. október
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
HAUST 9
& Spánn
Í þessari skemmtilegu ferð kynnumst við töfrandi menningu Spánar og Frakklands og
mannlífi þessara fallegu landa. Fegurðin er óviðjafnanleg og náttúran sem ferðast er um
stórbrotin. Ferðin hefst á flugi til Alicante þaðan sem ekið verður til Valencia sem er með
stærstu borgum landsins og mjög eftirsótt af Spánverjum sem og öðrum ferðamönnum,
þar sem gist verður í 3 nætur. Þá komum við til Tossa de Mar, yndislegs bæjar við
Costa Brava ströndina og gistum þar í 6 nætur. Þaðan verður farið í skoðunarferðir,
m.a. til heimsborgarinnar Barcelona og í Montserrat klaustrið sem liggur í 720 m hæð
í Katalónsku hæðunum, en þar hlustum við á einn frægasta drengjakór landsins. Einnig
verður farið í siglingu til Lloret de Mar í vínsmökkun, komið til Figueres, fæðingarborgar
Salvadors Dalís, skoðum safnið hans, Teatre-Museu, en safnið er eitt mikilvægasta
aðdráttarafl ferðaþjónustunnar í Katalóníu. Þaðan verður ekið til Annecy, sem er
sannkölluð perla frönsku Alpanna, þar sem gist verður í 2 nætur og m.a. farið í siglingu
á Annecy vatni. Síðasta nóttin okkar verður í Offenburg í Þýskalandi.
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir
Verð: 224.400 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu og
íslensk fararstjórn.
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar
Suður-Frakkaland
Framhald á næstu opnu
14 viðtal Helgin 17.-19. ágúst 2012