Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 30
H ilmir Snær hefur reynsluna af að taka upp sýningu aftur löngu síðar; sama átti við um Listaverkið
frá síðasta leikári þar sem hann endurtók
leikinn ásamt þeim Ingvari E. Sigurðssyni
og Baltasar Kormáki – sýning sem hlaut
afar góðar viðtökur mörgum árum síðar:
„Ég ætla ekki að segja að ég sé kominn í
endurvinnsluna, kominn hringinn og ætli
að taka öll leikrit upp. Þetta verður líklega
það síðasta. En þetta var gert meðal ann-
ars vegna þess að Stefán Karl er á landinu.
Hann hafði kannski ekki tíma til að æfa
nýtt leikrit alveg frá grunni. Við reiknum
með að fólk langi til að sjá hann og þá kom
þessi hugmynd upp. Þetta verður takmark-
aður sýningafjöldi. En, vissulega, ein-
kennilegt að taka þetta svona upp aftur en
það er ótrúlegt hvað maður man af þessu.“
Sama leikritið en leikararnir aðrir
Stefán Karl segir þetta vissulega sama
leikritið, sama leikmynd og nánast sömu
búningarnir. „En þú getur aldrei komið
eins að verkinu. Í þeim skilningi erum við
alls ekki að endurvinna það sem við höfum
áður gert. Við erum að draga út aðra þræði
sem við drógum ekki út þá. Það er verið að
stilla mixerinn aftur. Þeir sem sáu þetta þá
munu ekki sjá sömu sýninguna.“ Hilmir
tekur við: „Þeir munu örugglega njóta þess
betur. Við erum að njóta þess betur að
gera þetta núna. Við erum eldri. Við höfum
breyst. Erum hnitmiðaðari. Grínkaflarnir
eru eins en alvarlegri þættir verksins hafa
meiri slagkraft. Vega þyngra.“
Þeir draga ekki úr því að leikstjórinn Ian
McElhinney sé eðalkappi sem gaman er
að hitta aftur. „Við höfum ekki séð hann
nema í bíómyndum og sjónvarpi síðan þá.
Í Game of Thrones meðal annars. Þetta er
náttúrlega alvöru gæi og heiður að vinna
með honum,“ segir Hilmir og Stefán Karl
bætir því við að hann sé frá Írlandi þannig
að stutt sé á milli menningarlega: „Hann
er mjög agaður, veit nákvæmlega hvað
hann vill. En við fáum að leggja til okkar
inn í þann ramma. En við hlaupum ekki
með verkið út um allt. Við höfum tillögu-
rétt.“
Leikstjórar allstaðar eins
Báðir hafa þeir Stefán og Hilmir mikla
reynslu af því að vinna með erlendum leik-
stjórum. Þeir eru sammála um ekki sé
svo mikill munur að vinna með þeim og
íslenskum. „Þetta er náttúrlega allt sami
hluturinn, leikhúsvinna. Fer bara eftir því
hvaða persónuleiki á í hlut hverju sinni,“
segir Hilmir. „Hann hefur ótrúlega góða
tilfinningu fyrir íslenskunni, stoppar
okkur oft af og spyr útí hvað þetta orð
þýði nákvæmlega. Mikill tími fari í að fara
vel í grunninn á þessu.“ Stefán Karl segir
ekkert látið vaða í gegn: „Hann er mjög
nákvæmur. Maður finnur engan mun á því.
Leikhúsvinna er samskipti leikara og leik-
stjóra og snýst um þessar persónur sem
verið er að skapa. Eftir hverju verið er að
fiska? Vissulega geta hefðir og verklag í
leikhúsum verið frábrugðið milli landa?
Stundum er um miklu stærra apparat að
ræða en á sviðinu með leikstjóra er þetta
nákvæmlega sami hluturinn. Eins og við
séum öll úr sama sæðisbankanum.“
Þeir félagar benda á að nú hafi þeir
styttri tíma en þegar verkið var sett upp á
sínum tíma. Ian er umsetinn listamaður og
þeir hafa nú átta daga til að æfa verkið upp
á nýjan leik. Þá fer Ian utan til að ganga frá
annarri sýningu en kemur til baka á nýjan
leik til að fínpússa fyrir frumsýninguna
sem er ráðgerð 15. september. Á meðan
halda þeir áfram að æfa og tekur þá Selma
Björnsdóttir, sem er aðstoðarleikstjóri, við
leikstjórnartaumunum. -jbg
Öll úr sama sæðisbankanum
Hilmir Snær
og Stefán
Karl leika
verkið Með
fulla vasa af
grjóti sem sló
eftirminnilega
í gegn á sínum
tíma eða fyrir
tíu árum: 180
sýningar, 40
þúsund manns
komu til að
sjá og þeir
félagar fóru
í leikferðalag
um landið
og sýndu 20
sýningar fyrir
troðfullu húsi.
Þeir segja
það vissulega
sérkennilegt
að taka upp
þráðinn að
nýju. Jakob
Bjarnar greip
þá glóðvolga,
baksviðs í
Kassanum,
sveitta eftir
æfingar
dagsins.
Hilmir Snær og Stefán Karl tíu árum eldri en þegar þeir léku Með fulla vasa af grjóti.
Þeir segja ekki hægt að koma eins að verkinu, þeir eru breyttir og ýmsir þættir
verksins fá aukinn slagkraft – sama leikritið en ekki sama sýningin. Ljósmynd Hari.
Við erum eldri.
Við höfum breyst.
IT DOESN’T GET BIGGER THAN THIS!
AKUREYRI: Glerártorg, sími 461 4500 ★ GRAFARVOGUR: Blikastaðavegur, sími 585 0600 ★ KÓPAVOGUR: Smáratorg, sími 550 0800
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l o
g
m
eð
1
9.
08
.2
01
2.
V
SK
e
r
in
ni
fa
lin
n
í v
er
ð
i.
Fy
ri
rv
ar
ar
e
ru
g
er
ð
ir
v
eg
na
m
ö
g
ul
eg
ra
p
re
nt
vi
lln
a.
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓLATÖSKUM
28 viðtal Helgin 17.-19. ágúst 2012