Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 44
42 bílar Helgin 17.-19. ágúst 2012  Mercedes-Benz nýr cLs 63 shooting Brake á Markað í haust  toyota aukin sparneytni og Minni Mengun Aukið úrval hybrid-bíla með tilkomu Yaris Hybrid Landsmenn hafa tileinkað sér Hybrid tæknina í fólksbílum ef marka má söluna á Toyota Yaris Hybrid á undanförnum vikum. Yaris Hybrid var kynntur hér á landi í byrjun júlí og um 25 bílar eru þegar komnir á götuna. Um 50 nýir Yaris Hybrid-eigendur fá síðan bílinn afhentan á næstu vikum, að því er fram kemur í tilkynningu Toyota á Íslandi. „Hybridbílar eru venjulegir bensínbílar en þeir breyta orku sem annars fer til spillis þegar bíllinn bremsar í rafmagn sem notað er ásamt bensínvélinni til að knýja bílinn áfram. Hybridbílar eru því spar- neytnari en sambærilegir bílar og menga minna. Yaris Hybrid eyðir frá 3,5 lítrum í blönduðum akstri. CO2 útblástur er aðeins 79 g/km. Frá árinu 1997 þegar Toyota kynnti Prius, fyrsta hybridbílinn hafa hybridbílar frá Toyota og Lexus notið vaxandi vin- sælda og hafa þeir selst í yfir 4 milljónum eintaka. Með tilkomu Yaris Hybrid er enn aukið við úrval hybridbíla í vörulínu Toyota. Fyrir eru Prius og Aur- is en stefna Toyota er sú að bjóða þessa tækni í öllum gerðum sem seldar eru í Evrópu fyrir árið 2020. Með því kemur fyrirtækið,“ segir í tilkynningu þess, „til móts við síauknar kröfur um umhverfisvæna og eyðslugranna bíla.“ Um 25 nýir Yaris Hybrid eru komnir á götuna og um 50 væntanlegir á næstu vikum. Búningar Manchester United merktir Chevrolet Nýr auglýsingasamningur bílaframleiðandans Chevrolet við knattspyrnufélagið Manchester United færir félaginu 67 milljarða króna fram til ársins 2021. Þessi samningur er sá hæsti sem þekkist í knattspyrnuheiminum, segir á síðu Bílabúðar Benna, umboðsaðila Chevrolet. „Frá og með árinu 2014,“ segir enn fremur, „verða búningar Manchester United kirfilega merktir Chevrolet. Chevrolet byrjar strax að greiða félaginu, 2,2 milljarða króna fyrir árið í ár og aftur næsta ár. Greiðslan hækkar svo í 8,4 milljarða árið 2014 og mun svo hækka um 2,1% út samningstímann sem gildir til ársins 2021.“ Chevrolet verður auglýstur á búningum Manchester United. Lúxusbílll í langbaksútgáfu M ercedes-Benz kynnir til leiks nýjan bíl, CLS 63 Shooting Brake, sem er lúxusbíll í lang-baksútgáfu. Bíllinn kemur á markað í haust. Nafngiftin er allgömul og komin frá Bretlandi en Shooting Brake var notað yfir vagna sem breski aðall- inn ferðaðist í á veiðar. Vagnarnir höfðu mikið farang- ursrými fyrir skotvopn og annan veiðibúnað. Í seinni tíð er nafngiftin tengd bílum með stóru farangursrými. CLS 63 Shooting Brake heldur í hefðina og tekur mikið af farangri en bíllinn er með 590 lítra farangursrými og alls 1.550 lítra ef aftursætisbökin eru niðurfelld. CLS Shooting Brake verður í fyrstu boðinn með fjórum gerðum véla, tveimur bensínvélum og tveimur dísilvélum. Grunngerðin verður CLS 250 CDI sem er 204 hestafla. CLS 350 CDI er með sex strokka dísilvél, 265 hestöfl og togið er 620 Nm. Bensínvélarnar eru CLS 350, með V6 vél og CLS 500, með V8 vél, sem eru 306 og 408 hestafla. Allar gerðirnar eru með sjö þrepa sjálf- skiptingu. Bíllinn verður líka fáanlegur með fjórhjóla- drifi með stærri vélunum. Nafnið Shooting Brake gefur til kynna að farangursrými bílsins sé mikið. Ný kynslóð Mazda 6 á Evrópumarkað fyrir árslok Nýjasta kynslóð Mazda 6 bílsins sem nú sést fyrst í heilu lagi, reyndar skreyttur blómum, er komin í framleiðslu, segir á síðu Brimborgar, umboðsaðila Mazda. „Næsta kynslóð Mazda 6 deilir Skyactiv spartækninni með Mazda CX-5 bílnum sem frumsýndur var hér á landi fyrir skömmu en sömuleiðis deilir Mazda 6 Kodo-hönnunar- stílnum sem CX-5 byggir á,“ segir enn fremur og síðan: „Þeir bílkaupendur sem eru í bílahug- leiðingum á næstunni og setja útlit, akturseiginleika og rekstraröryggi ofarlega ættu því að hinkra eftir frumsýningunni á Mazda 6 áður en skarið er tekið af. Til viðbótar við glæsilegt útlit Mazda 6 og frábæru Skyactiv spartæknina mun Mazda einnig í fyrsta skiptið kynna til sögunnar i-ELOOP endurhleðslutæknina sem nýtir hemlaafl bílsins til orkuframleiðslu. Þessi tækni mun koma með start/stop tækninni og er fastlega búist við því að Mazda 6 muni af þessum sökum ná því að verða sparneytnasti bíllinn í sínum flokki, þrátt fyrir gríðarlegan útbúnað og lúxus.“ Mazda 6 mun koma á markað í Evrópu fyrir árslok.  chrysLer nýr jeppi Byggður á grunn- pLötu Fiat Kemur í stað Jeep Liberty Samsetningarverksmiðja Chrysler/Fiat í Toledo í Ohio var stöðvuð í gær, 16. ágúst, en hún verður nú stillt af fyrir framleiðslu á nýrri gerð jeppa. Þessi nýi Chrysler jeppi verður byggður er að hluta á tækni frá Fiat og kemur í stað Jeep Liberty, en framleiðslu á honum verður hætt, að því er fram kemur hjá Automotive News, sem vitnað er til á síðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda. „Nýi jeppinn er byggður á grunnplötu Alfa Romeo Giulietta en hún verður einnig burðarásinn undir fleiri nýjum bílgerðum sem ætlunin er að framleiða bæði sem Chrysler og Fiat. Þótt Jeep Liberty hafi ekki verið framleiddur lengi þá er ekki hægt að segja að hann hafi slegið í gegn. Salan á honum hefur alla tíð verið mun minni en upphaflegar vonir stóðu til. En menn eru bjartsýnir á að nýi sameiginlegi Fiat/Chrysler jeppinn muni falla kaupendum betur í geð því að vegna framleiðslu hans og breytinga á verksmiðjunni í Toledo er varið 1,7 milljörðum dollara og 1.100 nýir starfsmenn verða ráðnir til að byggja nýja jeppann,“ segir enn fremur. Nýi jeppinn kemur í stað Jeep Liberty. Mazda 6 er kominn í framleiðslu og sést hér, blómum skreyttur. H E LGA R BL A Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.