Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 63
tíska 61Helgin 17.-19. ágúst 2012
Greiðsla í
anda sjötta
áratugarins
Í kjól eftir Lagerfeld á
stóra deginum
Brúðkaup bresku leikkonunnar Keiru
Knightley og unnustans James Righton er
á næsta leiti en þau trúlofuðu sig fyrr á
þessu ári eftir aðeins eins árs samband.
Orðrómur er á kreiki um að Keira hafi
beðið bresku tískudrottninguna Alexu
Chung að vera brúðarmey og liggja
þær nú yfir miklum skipulagsáætlunum
fyrir daginn stóra. Keira þarf þó ekki að
hafa miklar áhyggju af brúðarkjólnum
sjálfum því enginn annar en aðalhönn-
uður Chanel tískuhússins, Karl Lagerfeld,
ætlar að gera Keiru vinargreiða og hanna
brúðarkjólinn gegn engu endurgjaldi.
Karl og Keira hafa verið ágætis félagar
síðan Keira tók það að sér að vera tals-
maður ilmvatnsins Coco Mademoiselle
fyrir Chanel árið 2006 og er hún honum
þakklát fyrir að hanna kjólinn fyrir stóra
daginn.
Á rauða dreglinum hafa stelpurn-ar í Hollywood verið að skarta allskonar hárgreiðslum í anda
sjötta áratugarins og eru þær Nicole
Richie, Eva Longoria og Stana Katic
engin undantekning. Allar þrjár hafa
þær mætt á rauða dregilinn í sínu fín-
asta pússi með uppsett hárið á sams-
konar hátt, þar sem hárið er túperað
og flókinn svo falinn undir vel greiddu
hárinu. Gert er ráð fyrir síðu hári í
þessa greiðslu, enda mikið af hári sem
þarf að geymast í flókanum.
Greiðslan hefur sést víðar í Holly-
wood núna í sumar og er þetta tilvalin
greiðsla í sumarbrúðkaupið eða bara í
grillveisluna.
Danskór stjarnanna á uppboði
Bresku tískugyðjurnar, þær Kate Moss, Keira Knightley og Sienna Miller, eru
meðal þeirra stjarna sem ætla að gefa gamla dansskó til hjálparsamtakanna
Small Steps Project, sem dreifir mat og fötum til munaðarlausra barna í
sveitum Bretlands. Hjálparsamtökin munu svo halda uppboð þann 11. október
næstkomandi í Jalouse í London, þar sem skópör stjarnanna verða boðin upp.
„Skóna sem ég ætla að gefa í ár hef ég átt lengi og eru mér mjög kærir. Ég hef
notað þá af miklum kærleika og hafa þeir veitt mér mikla gleði á dansgólfinu.
Ég ætla að vona að sú gleði fylgi þeim og munu skemmta næsta eiganda eins
vel og mér,“ sagði Sienna Miller í viðtali við Vogue á dögunum.
Í fyrra var sama uppboð haldið og söfnuðust þá rúmar fjórar milljónir
króna. Aðrar stjörnur sem munu gefa skóna sína til uppboðsins í ár eru Russel
Brand, Will Ferrel, Ben Stiller og Gemma Arterton.
Ný sending
góð verð
s.512 1733 - s.512 7733
Kringlan - Smáralind
www.ntc.is | erum á
Ökklahælar
8.995.-
Ökklaskór m/göddum
12.995.-
Stígvél/2litir
14.995.-
Strigaskór/3 litir
3.995.-
Hælaskór
6.995.-