Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 66
Plötudómar dr. gunna
Star-Crossed
Þórunn Antonía
Löðrandi léttpopp
Eftir allskonar vaxtarverki
og söng í útlöndum mætir
Þórunn loksins með plötu
númer tvö, tíu árum á eftir
fyrstu sólóplötunni. Þetta
er allt öðruvísi stöff; ekkert
tregapopp eins og 2002
heldur er nú keyrt á Kylie
Minogue-legu léttpoppi,
sem búið er að dýfa í eitís-
ídýfu Davíðs Berndsens.
Svona músík getur orðið
ótrúlega leiðinleg séu lögin
léleg, en sem betur fer er
hér vænn haugur af fínum
melódískum popplögum,
t.d. The Last Word og Too
Late, sem gaman er að
rekast á á förnum vegi
þótt maður sæki kannski
ekki í að hlusta á heilu
plöturnar með svona
músík. Til þess er þetta
aðeins of einhæft og þunn-
ildislegt til lengdar.
Human Woman
Human Woman
Bakgrunnsgrúf
Tveir hressir tappar eru
Mannlega konan, þeir Gísli
Galdur og Jón Atli Helgason.
Á afrekaskránni er alls-
konar fínirí, m.a. sóló- og
hljómsveitarmennska í
Hair Doctor og Trabant,
plötusnúðska og endur-
hljóðblandanir. Hér skella
þeir fram heilli plötu af
meðalhraðri og ögn rokk-
aðri rafplötu sem minnir
stundum á næntís pælingar
á þessu sviði, hluti eins og
Primal Scream og jafnvel
Happy Mondays, í bland við
nýrri strauma. Hér er slatti
af fínum hugmyndum, grúfí
bassalínum, hljóðum og
töktum, og platan plumar
sig fínt í bakgrunni. Það er
þó stundum fullmikið gutl
í gangi og með beittari og
betri lögum hefði platan
orðið eftirminnilegri.
Bara grín!
Ýmsir flytjendur
Sniðug útgáfa
Bara grín! er tvöfaldur
safnpakki þar sem safnað er
saman efni með íslenskum
gríngörpum síðustu fjögurra
áratuga eða svo – frá Ómari
Ragnarssyni til Steinda
og Ara Eldjárns. Þetta eru
búnir að vera vinsælastu
diskarnir í bílnum á lang-
keyrslum í sumar og hafa
satt að segja verið spilaðir
einum of oft að mínu mati.
Krakkarnir eru bara svo
hrifnir af þessu. Þetta er
sniðug útgáfa. Um efnisval
og textaskrif sá poppfræð-
ingurinn Kristinn Pálsson.
Það er auðvitað alltaf hægt
að deila um efnisvalið á
svona plötu enda margir
með gríðarlegar skoðanir á
gríni. Hér hefur þó tekist vel
til við að dreypa á því besta
í gríninu þótt örfá fúlegg
fylgi með.
Í takt við tÍmann dóra JúlÍa agnarSdóttir nemi
Á fimmtíu pör af skóm
Dóra Júlía Agnarsdóttir útskrifaðist úr MH í vor og hefur nám í viðskiptafræði við Háskólann í
Reykjavík á mánudaginn. Í sumar hefur hún verið að vinna í Geysi og ferðamannabúðinni Litla
lundanum á Skólavörðustíg auk þess sem hún heimsótti París og London.
Staðalbúnaður
Ég var í London og París í sumar og keypti þar mikið af fötum eins og
venjulega þegar ég er í útlöndum. Ég verslaði í Topshop, Urban Outfit-
ters og American Apparel en svo er líka alltaf gaman að fara í litlar, fínar
búðir. Ég fór til dæmis í Sandro í París. Það er mjög gaman að kaupa fátt
og fínt. Hér heima versla ég til dæmis í Geysi þar sem ég er að vinna.
Stíllinn minn er kvenlegur en afslappaður. Ég er mikið í pilsum og kjól-
um en líka í gallabuxum. Ég elska skó og á örugglega fimmtíu skópör.
Ég er alltaf annað hvort í hælum eða dömulegum lágbotna skóm. Ég er
eiginlega alltaf með Dolce & Gabbana úrið sem ég fékk í afmælisgjöf frá
kærastanum mínum. Og Marc Jacobs töskuna mína.
Hugbúnaður
Skólavörðustígurinn er uppáhaldsgatan mín og mér finnst frábært að
setjast niður í Eymundsson þar, fá mér te og skoða blöð. Stundum fer ég
á kaffihúsið á Kjarvalsstöðum með ömmu. Ég elska að fara í bíó en hata
að fara í leikhús. Ég fer oft á listasöfn í útlöndum en er ekki eins dugleg
hér á landi. Eini þátturinn sem ég fylgist með í sjónvarpinu er Gossip
Girl. Ég fer undantekningarlaust á Prikið og b5 þegar ég djamma – allir
sem ég þekki fara þangað. Á barnum panta ég mér oftast Sommersby.
Vélbúnaður
Ég á iPhone 4 og ég elska hann. Annars er ég ekki mikil tækjamann-
eskja. Ég á 1.317 vini á Facebook og fylgist vel með þar. Það hefur samt
breyst eftir að ég eignaðist iPhone. Nú finnst mér miklu skemmtilegra að
fylgjast með myndunum sem fólk er að setja inn á Instagram.
Aukabúnaður
Mér finnst frábært að fara út að borða á Grillmarkaðinn, bæði lambakjöt-
ið og humarinn þar er frábært. Það er líka frábært að fara á Sushisamba
og Fiskmarkaðinn til að fá sér sushi. Ég get ekki verið án Kanebo-gels
sem ég nota á andlitið og yfir það nota ég Mac-púður. Ég á mér nokkra
uppáhaldsstaði. Hér heima eru það Reykjavík, Skaftafell og Jökulsárlón.
Erlendis eru það París og Playa del Carmen í Mexíkó þar sem ég eyddi
síðustu jólum. Það var einstök upplifun.
Dóra Júlía Agnarsdóttir fagnar tvítugsafmæli
sínu í næsta mánuði. Hún var að vinna í Geysi á
Skólavörðustíg í sumar en er að byrja í viðskipta-
fræði í HR eftir helgi. Ljósmynd/Hari
Það er
mjög
gaman að
kaupa fátt
og fínt.
Það kostar líka að Þvo sjálfur!
láttu okkur sjá um þínar skyrtur.
350 kr. skyrtan
hreinsuð og pressuð
-ef komið er með fleiri en 3 í einu
Fullt verð 580 kr.
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur
- nú á þremur stöðum
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is Efnalaug - Þvottahús
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík Sími: 534 7268
1.250 kr
1.350 kr
HOLLT
OG GOTT
PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868
1.250 kr
ALLT FYRIR
AUSTURLENSKA MATARGERÐ
699 kr. 550 kr.
387 kr.
320 kr.
Opið:
mán - föst Kl. 11 - 21
lau - sun Kl. 12 - 21
64 dægurmál Helgin 17.-19. ágúst 2012