Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 56
Helgin 17.-19. ágúst 201254 tíska
Kyssti sólin á þér
kollinn í sumar?
Nú fer sá tími að ganga í garð að ljósið er á und-
anhaldi við verðum aftur innipúkar, setjumst á
skólabekk eða vinnan hellist yfir okkur, sum-
arfríið er búið. Það sem flest okkar upplifum á
haustin, hvort heldur sem við erum með litað
hár eða náttúrulit, ljóst hár eða dökkt, er að
rótin virðist allt í einu miklu dekkri, sólin hefur
einfaldlega kysst á okkur kollinn. Endarnir og
yfirborð hársins er orðið miklu ljósara. Þegar
sólarljósið minkar og við erum ekki eins mikið
úti í birtunni fer rótin aftur að vaxa fram dökk.
Það sem flestir gera þá á haustin er að skella
sér í strípur til að lýsa rótina eða að dekkja
hárið aftur með skoli eða lit.
En þá er þessi yndislega sólkyssta áferð
farin og við þurfum að bíða til komandi sumars
eftir næsta kossi. Ég er þó að hugsa um að láta
sólina halda áfram að kyssa mig, eða betur
sagt, ætla ég að taka að mér hlutverk sólar-
innar í vetur.
Sólkossa strípur er það heitasta í hárheim-
inum í dag og af hverju ættum við ekki að not-
færa okkur tæknina og lengja sumarið örlítið.
Sólkossar eru líka ekki næstum eins skað-
legir fyrir hárið eins og að setja strípur í allt
hárið. Vonandi verð ég ekki komin með vara-
þurrk eftir veturinn.
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Íris
Sveinsdóttir
hárgreiðslumeistari
„Ég myndi lýsa fataskápnum mínum
sem troðfullum þar sem bolir, gollur og
gallabuxur eru í meirihluta,“ segir Jón Gísli
Ström, 19 ára fótboltakappi hjá ÍR. „Fötin
mín kaupi ég helst erlendis þar sem leið mín
liggur yfirleitt alltaf í H&M en þegar ég er
hér heima er frænka mín, sem búsett er í
Hollandi, alltaf hjálpsöm með að senda mér
föt frá uppáhalds búðunum mínum.
Ég eyði ekki miklum tíma í að hafa mig til
á morgnana en ég er oft búinn að ákveða
kvöldinu áður hverju ég ætla að klæðast.“
Þegar Jón er spurður út í tískufyrir-
mynd er hann tilbúinn með svarið. „David
Beckham. Hann er alltaf nettur, klæðir sig
vel og með flottan lífstíl.“
Tískufyrirmyndin
er David Beckham
5
dagar
dress
Mánudagur
Skór: Ubran
Outfitters
Buxur: H&M
Peysa: H&M
Úr: Rodium
Fyrirsætuferill
Kate á bók
Aðdáendur ofurfyrirsætunnar
Kate Moss hafa margir beðið
eftir bókinni sem loksins er
væntanleg í verslanir Lundúna í
byrjun nóvember. Bókin spannar
allan feril fyrirsætunnar, frá
því að hún var uppgötvuð á
Heathrow-flugvelli til dagsins í
dag. Bókin hefur fengið titilinn
Kate: The Kate Moss Book og er
skrifuð af hluta til af henni sjálfri,
ásamt fyrrverandi kærastanum
hennar Jefferson Hack, sem rit-
stýrir bókinni. Bókin mun skarta
átta mismunandi forsíðum, með
Kate í aðallhlutverki, ljósmynduð
af jafn mörgum ljósmyndurum á
mismunandi æviskeiðum.
Nýjasta andlit
Topshop
Disney-stjarnan Demi Lovato
hefur klæðst litlu öðru en fötum
frá breska tískuhúsinu Topshop
upp á síðkastið og er nú orð-
rómur að kreiki um að hún verði
fyrsta stjarnan til þess að vera
andlit fyrirtækisins. Hún hefur
verið gangandi auglýsing fyrir
tískuhúsið á ferðalagi sínu sem
X Factor dómari núna í sumar
og hefur hún náð að skapa sér
sinn eigin persónulega stíl út frá
tískutrendum tískufyrirtæksins.
Orðrómurinn hefur þó ekki enn
verið staðfestur, en sést hefur
til hennar á fundi með eiganda
Topshop, sir Philip Green.
Þriðjudagur
Skór: Sautján
Buxur: H&M
Peysa: H&M
Miðvikudagur
Skór: Topman
Buxur: Sautján
Peysa: Urban
Outfitters
Símahulstur: H&M
Fimmtudagur
Skór: Skór.is
Buxur: Sautján
Skyrta: Levi’s
Peysa: Urban Outfitters
Slaufa: Dr. Denim
Föstudagur
Skór: Sautján
Buxur: H&M
Skyrta: H&M
Slaufa: Dr. Denim
Jakki: Levi’s
Vefsíða fyrir
tískuunenndur
Vefsíðan Pinterest.com hefur
vaxið hratt á síðustu mán-
uðum innan tískuheimsins
þar sem tískuunnendur safna
saman á sitt eigið vefsvæði
innblæstri fyrir tísku, hönnun
og lífstíl. Á vefsíðunni er hægt
að skoða innblástur annarra,
þar á meðal helstu tísku-
tímarita heims, tískubloggara,
Hollywood-stjarna og fyrir-
sætna, sem daglega uppfæra
myndaalbúmin með nýjustu
tísku og hönnun.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt fyrir flottar konur
st. 40 – 58
Núna færð þ
ú 50% viðbótar
-afslátt
af öllum úts
öluvörum
LOKA – ÚTSÖLULOK