Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 48
46 bækur Helgin 17.-19. ágúst 2012  Bókmenntir Þýðingar Grillréttir Hagkaups, bók matreiðslumeistarans Hrefnu Rósu Sætran, nýtur mikilla vinsælda meðal landsmanna. Bókin er í öðru sæti á metsölulista bókaverslana síðustu tvær vikurnar og hefur skotist upp í fimmta sæti sölu- listans frá áramótum. Vinsælir gr illr éttir  ritdómur names of the sea – strangers in iceland B reskur akademiker ákveður að taka upp sín tjöld og flytja sig úr stað. Kona sem með karl og tvo stráka hverfur úr sælu suðursins, kveður Kent og Canterbury, og setur sig niður í mannlausri blokk í Garðabæ, ráðin til að kenna rómantíska ljóðlist á Melunum. Tíminn er ekki sem bestur: hún ræður sig 2008 og er mætt sumarið 2009 til ársdval- ar. Hver er hún? Hana langaði alltaf norður segir hún. Afa hennar langaði norður svo hann réði sig á togara: gráu eylöndin við ysta haf kölluðu. Heimsókn til langdvalar er styrkt langri sumarferð nítjánda árið, þær voru tvær, konan tók Grikklands- árið út á þvælingi um Ísland, mállaus og blönk og fann þar eitthvað sem hún á erfitt með að útskýra – það var 1996 og nú vill hún heimta það á ný með bónda, börn og bagga. Sarah Moss hefur alið öll sín þroskaár í virtum menntastofnunum Englands. Hún á í alvöru von á því að allar eplategundir trjálunda suður-Englands fái hún í kjör- mörkuðum úthverfa á Íslandi. En hún deil- ir með okkur í þessari þroskasögu, sem er nánast í senn ævisaga og ferðabók, hvern- ig henni reiðir af hér norðurfrá: þau vantar farartæki (í Garðabæ!) húsgögn, heim- ilistæki, sambönd, vini aðstoð – og eru hjálparlaus. Öll viðkynni hennar mótast af því, frústrasjón, skilningsleysi, skorti á upplýsingu. Og þegar upplýsingar fara að sáldrast til hennar kemst hún að furðu- legum niðurstöðum, reyndar fengnum frá fólki sem hefur dvalið stóran hlut ævi sinnar í öðrum löndum: Íslendingar kaupa ekkert notað, bara nýtt – halló Barnaland, Góði hirðirinn, Kolaportið og hin enda- lausa skiptisala milli kunningja og vina – smáauglýsingar DV! Íslendingar fóru ekki að éta grænmeti fyrr en eftir 1970 og mest fyrir bandarísk áhrif. Hver einasta kell- ing hló! Mér varð hugsað til ömmusystra minna í Borgarfirðinum sem bjuggu sér til garðana um leið og þær byggðu um jarð- irnar, reyndu að hösla sér fræ eftir öllum leiðum, til þeirra sem gerðu garðalöndin frá Klömbrum inn að Elliðaám – var ekkert étið af því grænmeti? Þetta er nú hættan við ferðabókaskrif hins forvitna ferðalangs – ef hann ekki þekkir þá býr hann til. Rit Söru er frábærlega vel skrifað, hún gengur nærri sjálfri sér, nýtir syni sína fallega til framvindu, þótt bóndi hennar sé fullmikið tilbaka. Hún er fyrst og fremst að upplifa náttúruna, hverfur inn í kuldaleg veðrabrigðin, dásamar birtuna, fellur í leiðslu yfir litbrigðum landsins. Hún er naturalisti og eins og þeir eru gjarnan andsnúin mörgu sem við höfum tamið okkur. Ideal hennar er gamalt hús, slitin húsgögn, máðir litir, bækur út um allt – heilsufæði. Hún er crank eins og það var kallað fyrir þremur áratugum. En hún er líka greind: frá sjónarhóli sínum sneiðir hún ágalla íslenskrar velmegunar niður, stundum af öfund, eða aðdáun, líka af furðu, jafnvel vandlætingu. Dvöl hennar er of stutt, einangrun hennar of mikil til að hún nái festu og dýpri skilningi, þó hún reyni að ná grunntóni veiðimanna og bændasamfélags sem tók iðnbyltinguna á tveim áratugum. Og þá er líka auðvelt að falla fyrir mítunum: þetta reddast. Hin vanþroska framkvæmdaþörf sem skilur ekki lengdina sem verkið þarf, því það verður að heyja fyrir myrkur, bjarga afla í salt áður en hann rotnar á kambnum. Names of the Sea er fallega stílað verk af mikilli andagift og fágaðri tjáningu. Endimörk þess eru hin skammi tími sem gesturinn dvaldi hér, stærð þess falin í takmarkalítilli þörf til að taka inn himin, haf og jörð í ljósi og litum sem þá dýrðar- gjöf sem okkur býðst: það erindi hennar er brýnt og kemst fullkomlega til skila. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Öllu má nú nafn gefa Reykjavíkurborg fékk í fyrra viðurkenningu sem ein bókmenntaborga UNESCO og var sett stjórn á verkefnið sem Sjón veitir formennsku. Á morgun, laugardag, er þrískipt dagskrá í Hörpu tileinkuð þessu átaki: Sú fyrsta hefst kl. 14.30, er helguð Reykjavík í bókmenntum; flytja nokkrir höfundar skáldskap um borgina frá ólíkum hliðum: Kristín Steinsdóttir, Sigurður Pálsson, Vigdís Grímsdóttir, Bragi Ólafsson, Þórdís Gísladóttir, Eiríkur Guðmundsson og Sjón. Fyrr um morguninn afhendir borgarstjóri Rithöfundasambandi Íslands Gunnarshús, fyrrum heimili Gunnars Gunnarssonar rithöfundar, til eignar, og er dagskráin sett saman í tilefni þessa. Klukkan 16 verður boðið upp á stutta dag- skrá í tilefni fyrstu Lestrarhátíðar í Reykjavík sem verður haldin í október. Hjálmar Sveinsson spjallar stuttlega um Elías Mar og eftirstríðsárin í bland við örstuttan upplestur úr skáldsög- unni Vögguvísu. Bókin er nýkomin út í þriðju útgáfu hjá Les- stofunni og hún verður í brennidepli á Lestrarhátíð haustsins. Flutt verður lagið Vögguvísa (Chi baba) í nýrri íslenskri útgáfu og Bergur Ebbi flytur gamanmál út frá slangursafni sem Elías Mar safnaði um 1950 og notaði í sögunni. Síðast en ekki síst gefst svo gestum kostur á að kynnast nýjum reykvískum skáldum á ljóðadagskrá sem hefst kl. 17.30: Mazen Maarouf frá Palestínu, Juan Camilo Róman Estrada frá Kólumbíu, Elías Portela frá Galíseu, Harutyun Mackoushian frá Armeníu og Syríu og Kári Tulinius og Þórdís flytja ljóð sem þau hafa þýtt hvert eftir annað. Öll erlendu ljóðin verða flutt bæði á íslensku og á frummálinu. -pbb Bókmenntir í Hörpu Wikisaga, lýsandi heimildaskrá Egils sögu gagna- grunnur íslensku og ensku er nú opin almenningi. Þar má nálgast lista yfir helstu rit og ritgerðir fræðimanna um Eglu. Gagnagrunnurinn telur nú tæplega 470 heimildir, þ.e. tilvísanir til ritverka þar sem Egils saga er meginviðfangsefnið eða kemur við sögu. Textar Egils sögu á Wikisögu eru ensk þýðing Williams Charles Green frá 1893 og íslensk útgáfa þeirra Bergljótar Kristjánsdóttur og Svanhildar Óskarsdóttur á Eglu sem kom út hjá Máli og menningu árið 1994. Þrír framhaldsnemendur á hugvísindasviði, þær Álfdísi Þorleifs- dóttir, Jane Appleton og Katelin Parson, hafa starfað að verkefninu undanfarin ár. Vefurinn var upphaflega unninn í gagnagrunnkerfi hönnuðu af Anok margmiðlun en á lokastigum var ákveðið að færa efnið inn í MediaWiki, sem er sama kerfi og er að baki Wikipediu. Uppsetningu og hönnun vefsins annaðist Olga Holownia. -pbb Egill kominn á netið Hinn veraldlegi arfur bókmenntamanns- ins, skáldsins og þýðandans Hallbergs Hallmundssonar vildi hann að yrði nýttur til að ljúka útgáfum á öllum þeim ljóðaþýðingum sem hann hafði unnið að á sinni löngu starfsævi vestur í New York en þar starfaði hann. Í fyrra kom út stórt safn ritdóma hans um íslenskan samtímaskáld- skap, Contemporary Icelandic Literature, safn dóma sem hann skrifaði og birti í World Literature Today. Kennir þar ýmissa grasa því hér fjallar hann um verk sem birtust frá árunum 1969 (Leigjandinn og Himinbjargarsaga eru elst), til verka sem birtust 2002. Að viðbættum dómi um þýðingu Magnúsar Magnússonar á Brekkukotsannál frá 1967. Mesta athygli fá Steinunn Sigurðardóttir og Þorsteinn frá Hamri en hann fjallar um níu verk eftir þau bæði. Í sömu útgáfuröð verka Hallbergs kom snemma á þessu ári út þýðing hans á Þorpinu eftir Jón úr Vör með inngangi, þýðing hans á Crow eftir Ted Hughes, Skeiðæingatal eftir Edgar Lee Masters, endurútgáfa á þýðingum hans á ljóðum Pablo Neruda sem komu fyrst út 1995 og nú nýlega þýðingar hans á Emily Dickinson – 100 kvæði – í endurprentun. Samfara var dreift á ný þýðingu á hinum merka ljóðabálki Stepen Crane, Svört- um riddurum, og úrvali ljóða eftir Mark Strand, Það sem eftir er. Seint verður ítrekað mikilvægi þess að erlend ljóð fáist þýdd á íslensku. Þau sýna stöðu málsins gagnvart erlendri tjáningu, lúta vissulega aldri og málsniði hvers þýð- anda og hvers tíma, en þau eru mikilvæg gátt í heim sem annars er okkur torskil- inn því mál geta menn stautað og tautað en skilning fá þeir ekki á þeim nema með langdvölum erlendis eða ástundun sem jaðrar við trúarþörf. Það ber því að þakka að Hallberg skyldi ráðstafa svo verald- legum eigum sínum að hin andlegi arfur hans kæmist til lesenda, því hér er á boð- stólum veisla sem veigarnar súrna ekki og önnur föng endast svo lengi sem menn þiggja. -pbb Útgáfur á verkum Hallbergs  names of the sea strangers in iceland Sarah Moss Granta, 358 s. 2012. Rit Söru er frábærlega vel skrif- að, hún gengur nærri sjálfri sér, nýtir syni sína fallega til framvindu, þótt bóndi hennar sé fullmikið tilbaka. Sarah Moss. Hallberg Hallmundsson. ... hér er á boðstólum veisla sem veigarnar súrna ekki og önnur föng endast svo lengi sem menn þiggja. Jón Gnarr borgarstjóri afhendir Rithöfundasam- bandi Íslands Gunnarshús til eignar á morgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.