Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.08.2012, Qupperneq 32

Fréttatíminn - 17.08.2012, Qupperneq 32
08.30 – 15.00 Reykjavíkurmaraþon Reykjavíkurmaraþonið markar upphaf hátíðisdagsins en hlauparar rjúka af stað frá Lækjargötu klukkan hálf níu að morgni laugardagsins. Reykjavíkurmaraþonið er fjölskylduviðburður sem hefur fyrir löngu fest sig í sessi enda geta allir tekið þátt, ungir sem aldnir, hlaupandi, gangandi eða hvetjandi. Þá hlaupa margir til stuðnings verðugu málefni og er það vel. En fyrir dyrum stendur ráp upp og niður Laugaveginn, listviðburðir um alla borg; við Hlemm, í Kvosinni, gömlu höfnina, Hljómskálagarð- inum... 11.00 – 17.00 Íslenski Cadillac-klúbburinn Fréttatíminn var að sjálfsögðu mættur fyrir allar aldir til að hvetja hlaupara til dáða, en er sjálfur sporlatur, svitnar í huganum með hlaupurunum en þegar skotið ríður af röltir hann röltir í rólegheitum niður að gömlu höfninni til þess að kíkja á glæsilegar drossíur og dollaragrín hjá Íslenska Cadillac klúbbnum. Félagar í klúbbnum verða mættir á Hörputorg klukkan ellefu og sýna gestum og gangandi ameríska eðalvagna sína til klukkan 5. Mikið má vera ef frægasti Cadillac-kall landsins, rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson, verður ekki þar mættur á gljáfægðri og vígalegri sjálfrennireið sinni. Við missum ekki af því. Þó hefðbundnar listgreinarnar séu í öndvegi eru ýmsar upp- ákomur sem keppa við þær um athyglina. 12.30 – 13.00 Líf skátans og borgarstjórinn Svo rólegur í tíðinni var Fréttatíminn við að skoða Cadillacbíla að hann var næstum búinn að gleyma sjálfri setningu há- tíðarinnar sem fram fer í Hljómskálagarð- inum. Enda má það ef til vill vera til marks um hversu frumlegur hinn vinsæli borgar- stóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, er að hann setur Menningar- nótt þó nokkru eftir að hún er byrjuð. Eftir að hafa hlýtt á borgarstjórann er upplagt að sjá hvað skátar eru að bauka en þeir munu koma sér fyrir í Hljómskálagarðinum og sýna súrringar og flekagerð meðal annars; veita innsýn í líf skátans. 13.00 – 14.00 Ástarmafían fyrir opnum gluggum Klukkan eitt er Fréttatíminn kominn upp á Laugaveg 100 til þess að horfa á leikritið Hinn fullkomni glæpur í gegnum stóra glugga hússins sem áður hýsti verslun. Leikkonan Svandís Dóra hóf undirbúning að þessari sérkennilegu frum- sýningu á miðvikudaginn og síðan þá hafa undirbúningur og æfingar farið fram fyrir opnum tjöldum, eða gluggum öllu heldur, þannig að vegfar- endur hafa getað fylgst með sköpun verksins frá byrjun. „Við erum að gera ákveðna tilraun og erum meðal annars að athuga hvort við getum sett upp sýningu á svona stuttum tíma en við gefum okkur þessa þrjá sólarhringa,“ segir Svandís. Í heimi þar sem allir fylgjast með öllum getur verið erfitt að fremja hinn fullkomna glæp og tilraun Svandísar og félaga gengur ekki síst út á spurninguna um hvort fólk sé ekki alltaf að leika þegar það veit að fylgst er með því. „Áhorfandinn fær þarna að skyggnast inn í vinnuferli listamannsins, sem er oft mjög viðkvæmt. Maður er að prófa sig áfram og líður oft eins og kjána þegar maður fer að skoða hlutina. Þarna leyfum við öllum að fylgjast með alveg frá byrjun.“ Og svo enginn þurfi að missa af neinu er einnig hægt að fylgjast með hópnum að störfum í beinni útsendingu á netinu á www. astarmafian.is. „Við erum þarna leikarar, dansarar, tónlistarfólk og ýmsir aðrir og vitum ekki alveg hvað gerist á þessum þremur dögum en þetta er tímaramminn sem við setjum okkur þannig að það er allt mjög opið með hvað áhorfendur munu sjá í glugganum á laugardaginn.“ Svandís segir hópinn vera að rannsaka glæpasöguna og hinn fullkomna glæp og leiti fanga meðal annars í glæpamyndum- og sögum. Svo mörg voru þau orð. Og áfram skal haldið. 13.00 – 18.00 Víkingar og vopnaskak Menningarlegir félagar úr Einherjar Víkingafélagi Reykjavíkur slá upp tjaldi fyrir framan Hallgrímskirkju. Þar verða þeir í fullum skrúða og fræða gesti um félagsskapinn sem hvílir á menningu forfeðra okkar. Handverksfólk verður á staðnum og sýnir muni sína og vonandi grípa menn til einhverra vopna og sýna bardagalistir sínar en eins og kemur fram aftar í blaðinu eru reykvísku víkingarnir frekar snauðir af sverðum þar sem þeir lánuðu vopn sín í tökur á kvikmyndinni Noah. Þeir láta það ekki á sig fá: „Okkur leggst eitthvað til,“ segir Gunnar – jarl Einherja. 14.00 – 15.00 Knús í boði Eftir spjall við vaska víkingana er ekki úr vegi að snara sér niður á Laugaveg og krækja sér í knús og faðmlag í Hlutverkaseturs á Laugavegi 25. Mýkja bæði sál og líkama. Slík atlot bæta, hressa og kæta og gera hvern mann móttækilegri fyrir menningunni. 13.00-17.00 Fiðluleikur fyrir UNICEF Á leiðinni niður á Laugaveg væri syndsamlegt að gleyma að koma við hjá fiðlunem- anum unga Ágústu Dómhildi fyrir utan Eymundsson á Skólavörðustíg og tæma vasana ofan í fiðlukassann hennar. Ágústa fékk þá frábæru hugmynd í fyrra að leika á fiðlu til styrktar UNICEF og hún ætlar að endurtaka leikinn í ár enda gekk henni vel í fyrra og safnaði rúmum 100.000 krónum. Ágústa leikur ljúfa tóna og er með fiðlukassann opinn fyrir frjáls framlög frá gestum og gangandi. „Ég sá auglýsingar frá UNICEF um söfnunina og datt þá í hug að safna fyrir þau,“ sagði Ágústa við Frétta- tímann í fyrra. „Þetta gekk mjög vel. Framar mínum björtustu vonum og það voru margir sem gáfu og sumir gáfu frekar mikið,“ sagði hinn fimmtán ára gamli fiðluleikari í fyrra og henni gengur von- andi enn betur núna. 14.00 – 16.00 Horft á tilkomumikla sólina Ef veður leyfir er ekki úr vegi að brjótast í gegnum Á harðaspani á Menningarnótt H E LGA R BL A Ð Reykjavíkurborg iðar af mannlífi og alls kyns uppákomum á laugardaginn þegar Menningarnótt stendur yfir frá morgni til kvölds. Menningarnótt var fyrst haldin árið 1996 og hefur jafnt og þétt þanist út; hátíðin er orðin einn fjölsóttasti viðburðurinn í borginni ár hvert og tekur jafnvel 17. júní fram. Talið er að um 100.000 manns bregði sér í bæinn á Menningarnótt og óhætt er að fullyrða að í þéttri og fjölbreyttri dagskránni geti allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Fréttatíminn þjófstartaði og reyndi að þeytast á milli nokkurra viðburða, í huganum með skeiðklukku og heyrði af fullkomnu handahófi í nokkrum sem verða í sviðsljósinu. Úrvalið er slíkt að ekki nokkur manneskja kemst yfir nema brotabrot af því sem í boði er. Framhald á næstu opnu Hátíðardagur Menningarnætur hefst í bítið á laugar- daginn með hinu fjölmenna Reykjavíkurmaraþoni. Reykvískir víkingar í fullum skrúða kynna félag sitt á Menn- ingarnótt. Ágústa Dómhildur safnar fé fyrir van- nærð börn í Afríku með fiðlu sína að vopni. Ástarmafí- an hefur ekkert að fela og æfir fyrir opnum tjöldum. 30 menningarnótt Helgin 17.-19. ágúst 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.