Fréttatíminn - 17.08.2012, Side 34
Skólavörðustíg 16 sími: 519-6000 www.geysir.net
Ný sending
Litla Jólabúðin
lindsay@simnet.is
Laugavegi 8 Sími: 5522412
101 Reykjavík
Laugavegi 8
101 Reykjavík
Sími: 5522412
lindsay@simnet.is
mannhafið á Laugavegi
og koma sér niður á
Austurvöll þar sem
Stjörnuskoðunarfélag
Seltjarnarness og
Stjörnufræðivefurinn
ætla að koma sér
fyrir við styttuna af Jóni
Sigurðssyni og bjóða
fólki að kíkja á sólina
í gegnum sjónauka ef
skyggni verður ágætt.
Sævar Helgi Bragason,
formaður Stjörnuskoð-
unarfélags Seltjarnarness, segir
sólina, þennan stórfenglega
lífgjafa okkar, bjóða upp á
mikið sjónarspil sem heilli
jafnt unga sem gamla. „Það
er alltaf gaman að heyra öll
„váááá-in“ sem við fáum þegar
fólk horfir á sólina með okkur,“
segir Sævar Helgi.
„Við verðum með tvo sjón-
auka. Annan til þess að greina
sólbletti og hinn sem greinir
sólgos.“ Sævar Helgi segir
sólgosin oft á tíðum vera mjög
tilkomumikil á að horfa og
bætir við að sjónaukarnir séu
búnir þannig síum að aðeins
brotabrotabrot af birtu sólar
komist í gegn þannig að enginn
sem vill horfa á móti sólu á
Menningarnótt þarf að hafa
áhyggjur af augum sínum.
Félagarnir í Stjörnuskoðunar-
félaginu eru vitaskuld hafsjór
af fróðleik og hafa gaman að
því að ausa úr viskubrunnum
sínum. „Það eru allir velkomnir
til okkar og fólk
getur auð-
vitað fengið að
fræðast eitthvað
um þessa stjörnu
okkar í leiðinni.
Það er fátt sem
við vitum ekki og
við svörum öllum
spurningum.“
16.30 Landsbankanum
Eftirhermuhlaðborðið hans Sóla
Fréttatíminn mun alveg örugg-
lega rangla inn í Landsbankann
um þetta leyti dags og þá
verður á sviðinu skemmti-
krafturinn Sóli Hólm: „Þú munt
sjá mig á sviði með mínar eftir-
hermur. Þær fylgja mér hvert
sem ég fer. Þetta verður eftir-
hermuhlaðborð: Pálmi Gunn-
arsson efstur á blaði, Páll Óskar,
Herbert Guðmundsson og Gylfi
Ægisson... hver stórstjarnan
á fætur annarri. Ég verð með
gítarinn og tek lagið. Þetta
er tónlistaratriði í leiðinni,“
segir Sóli sem hefur sérhæft
sig í að herma eftir tónlistar-
mönnum.
Búast má áhorfendum
á eins breiðu aldursbili
og hugsast má og af því
þarf Sóli að taka mið af:
„Jájá, þetta er ekki þorrablót,
þannig að maður þarf að
passa sig á því að vera grófur,
það má ekki. Reyndar er ég ekki
þekktur sem grófur uppistand-
ari en maður segir kannski ekki
alveg það sama þegar fjögurra
ára börn eru annars vegar
eða fullir kallar á kallakvöldi.
Tempraðari útgáfa, en ég geng
alltaf eins langt og ég get.
Þetta verður ekki dauðhreinsað
uppistand, langt því frá.“
Sóli gerir ráð fyrir því að vera
á sviðinu í um hálftíma. „Ég fæ
það erfiða verkefni að koma
fram á eftir Gunna og Felix, að
fara í grínskóna á eftir þeim
er ekkert grín. Ég hef komið
fram á eftir Felix einu sinni á
krakkaskemmtun, þar sem
hann var búinn að taka Fiskinn
minn! Og allir krakkarnir trylltir.
Fáir listamenn sem erfiðara að
koma á eftir, allavega þar
sem eru börn. Bið til guðs
að Felix taki ekki Fiskinn
minn, eða Fiskurinn
hennar Stínu heitir það
víst.“
Opið til 20.00
Samtöl við hluti
Í Spark Design Space
á Klapparstíg verður
hönnunarverkefni Hönnu
Dísar Whitehead kynnt
en í verkum sínum rann-
sakar hún samband og samtal
fólks við manngerða hluti. Hún
hefur hannað hluti úr steinleir
þar sem notagildið er ekki skil-
greint heldur opið. Um leið og
sett er handfang á hlut skapast
sterk tenging við notandann
og ímyndunaraflið fer af stað
í leit að notagildi. Þessi árátta
er afgerandi.
Verkefnið á
uppruna sinn í
útskriftarverkefni
Hönnu Dísar frá
Hönnunaraka-
demíunni í
Eindhoven 2011
og Fréttatíminn
ætlar á hlaup-
unum að reka inn
nefið og gerast dálítið gáfulegur
innan um hönnunargripina.
12.00 – 18.00
Skák fyrir alla
Skákakademía Reykjavíkur
verður á fullu á Lækjartorgi frá
hádegi þar sem
meðal annars
undrabörn og
stórmeistarar
tefla við gesti og
gangandi. Skák
er skemmtileg og
akademían ætlar
að færa fólki
heim sanninn um
það með léttri
og hraðri stemningu, kaffi og
kleinum.
Fréttatíminn ætlar sér ekki
að missa af spenn-
andi hraðskákeinvígi
klukkan fimm þegar
Jóhann Hjartarson
og Hjörvar Steinn
Grétarsson mætast.
Segja má að þarna
takist á sá besti og sá
efnilegasti. En fyrir
það verður Hjörvar
búinn að tefla fjöltefli
við gesti og gangandi
en það byrjar klukkan
fjögur.
„Við ætlum að byrja
í hádeginu með því að
Helgi Ólafsson teflir
við kvennalandsliðið í
klukkufjöltefli,“ segir
Snorri Bergsson hjá
Skákakademíunni. „ Klukkan
hálf tvö verður svo Alheims-
mótið í Leifturskák. Þá er ein
mínúta á keppanda þannig að
þetta snýst ansi mikið um að
vera snöggur á klukkunni og
harður í tímahraki. Þetta er
lokað mót sterkusta hrað-
skákfólks sem jafnvel sveigir og
beygir reglur sér í hag.“
Klukkan þrjú dregur mennta-
málaráðherra í töfluröð á
Íslandsmóti skákfélaga og
fyrsta Íslandsmótið í Heilinn
og höndin fer fram. Þá eru
tveir í liði. Annar er heilinn
og ákveður hvaða manni á að
leika og hinn ákveður leikinn.
Mótið er öllum opið. „Stemn-
ingin yfir daginn verður létt
og skemmtileg með stuttum,
skemmtilegum og fjölbreyttum
viðburðum þannig að allir ættu
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi, segir stefán.
11.00 – 22.00
Sýning á antikplötuspilurun
Eftir að hafa tapað hrað-
skák á móti Hjörvari Steini og
fylgst spenntur með hinum
unga meistara mæta Jóhanni
Hjartarsyni leggur Fréttatíminn
á brattann og röltir í Gallerí
Fold á Rauðarárstíg til þess að
kíkja á antik plötuspilara og
hlusta á tónlist leikna af þeim
en meðal sýningargripa er
plötuspilari sem María Markan
átti. Þeir hjá Fold láta til sín
taka; ljósmyndarinn Ástþór
Magnússon mun ræða list sína
þar og einnig væri fáránlegt,
eftir að hafa tekið út antíkplötu-
spilarana að láta athyglisverða
sýningu Ragnhildar Þóru
Ágústsdóttur listmálara fram
hjá sér fara.
21.00 – 21.30
Ofurhetjur í
popplist
Þegar kvölda
tekur liggur leiðin
aftur í Gallerí Fold
þar sem mynd-
listarmaðurinn
Hjalti Parelius
ræðir við gesti
um list sína.
Hann hefur vakið verðskuldaða
athygli með verkum sinum
undanfarið enda ákaflega
litríkar og skemmtilegar myndir.
„Ég verð með allavegana eitt
stórt verk sem er hrun- og spill-
ingarádeila á bæði samfélagið
og stjórnmálin. Svo verð ég
með einhverjar minni myndir
með mér líka.“
Hjalti ætlar að vera í miklu
stuði, spjalla og svara öllum
þeim spurningum sem kunna að
vakna hjá fólki. „Ég er í popp-
listinni. Þessari teiknimyndalist
og nota svipaða tækni, ef ekki
sömu tækni, og Erró notar til
dæmis. Ég hef stúderað hans
verk í mörg ár og hef alltaf verið
mjög hrifinn af hans efni. Í fljótu
bragði rugla kannski margir
manni við hann eða
kalla mig kannski
eftirhermu. Það er
mögulega vegna
þess að fólkið þekkir
myndmálið en skoðar
kannski ekki söguna
í myndinni. Við erum
kannski að nota sama
tungumálið en ekki að
skrifa sömu bókina.
Maður fær svolítið
þetta samasemmerki
hérna heima. En svo
eru margir sem hafa
skoðað meira af Erró-
verkum og sjá strax
muninn. Að ég er að
segja allt annað.“
22.00 – 23.00
Balkan á bryggjunni
Eftir að hafa drukkið í sig
litagleði Hjalta Parelísar freistar
Fréttatíminn þess að rjúka í
Sjóminjasafnið við Grandagarð
8 til þess að hlusta á órafmagn-
aða balkan-tónlist hjá Varsjár-
bandalaginu.
23.00 – 23.15
Flugeldasýningin
Með tóna Varsjárbandalagsins
í eyrunum rýkur Fréttatíminn
niður á höfn þaðan sem hann
ætlar að horfa á hina mögnuðu
flugeldasýningu sem er form-
legur endapunktur hátíðarhald-
anna. Þessi hlaup um dagskrá
Menningarnætur hafa verið
stefnulaus og ekki fyrir nema
skipulögðustu menn að merkja
við og teikna upp dagskrá svo
vel sé. Allt og ekkert í gangi á
hverju götuhorni. Sá á kvölina
sem á völina.
Snorri
Bergsson
fram-
kvæmda-
stjóri
Skákaka-
demíunnar
ásamt Vigni
Vatnari
Stefáns-
syni, níu
ára skák-
kappa.
Hjalti
Parelius við
eitt verka
sinna. „Það
er mjög
gaman
að vinna
í þessu
og þetta
höfðar til
breiðs hóps.
Krakkarnir
alveg elska
þetta. Ég fæ
oft mikið af
krökkum inn
á sýningar
hjá mér. Ef
ég væri jafn
vinsæll og
ég er hjá
börnunum
þá væri
ég löngu
orðinn
ríkur.“
Samtal við
mann-
gerða hluti
fer fram í
Spark.
Stjörnu-
skoðunar-
félag Sel-
tjarnarness
og Stjörnu-
fræðivefur-
inn hafa
boðið fólki
að horfa á
sólina og
það mikla
sjónarspil
sem hún
býður upp
á þegar
veður leyfir
á Menn-
ingarnótt
og 17. júní.
Þetta vekur
alltaf mikla
lukku og
sólin heillar
bæði börn
og full-
orðna.
Sóli kemur
fram á eftir
Gunna og
Felix og
biður til
guðs að
Felix taki
ekki Fiskinn
minn – þá
verði
krakkarnir
hreinlega
alveg snar.
32 menningarnótt Helgin 17.-19. ágúst 2012