Fréttatíminn - 17.08.2012, Blaðsíða 39
Fært til bókar
Ólafur heldur í hirðfylgdina
Það hefur andað heldur köldu milli
forkólfa ríkisstjórnar-
innar og forseta Ís-
lands undanfarin
misseri. Hvort það
ræður einhverju
um nýjustu til-
lögu Jóhönnu
Sigurðardótt-
ur forsætis-
ráðherra skal
ósagt látið en
hún hefur lagt
til að handhafar
forsetavalds hætti
að veita forseta Íslands
fylgd til og frá Leifsstöð í hvert sinn sem
hann heldur utan í embættiserindum.
Forsetaembættið leggst hins vegar gegn
því að fylgdin verði aflögð, að því er
fram kom í frétt Ríkisútvarpsins.
„Þegar forsetinn fer úr landi eru
handhafar forsetavalds forsætisráð-
herra, forseti Alþingis og forseti Hæsta-
réttar. Samkvæmt hefð sem ríkt hefur
frá upphafi lýðveldis, og er sögð eiga
rætur í dönskum konunglegum hefðum,
fylgir einn af þeim forseta til Keflavíkur
þegar hann fer úr landi í embættiserind-
um. Í dagskrá forsetans á
heimasíðu embættisins
kemur fram að hann
hefur á síðustu
tveimur árum
farið að minnsta
kosti 35 ferðir
í embættiser-
indum, allt upp
í þrjár ferðir
í mánuði. Þær
eru því tíðar ferðir
handhafa forseta-
valds til Keflavíkur. Þetta
er nokkuð fleiri ferðir en í upphafi þess-
arar hefðar, þeir Ásgeir Ásgeirsson og
Kristján Eldjárn fóru um það bil eina
ferð á ári til útlanda,“ sagði í fréttinni.
Þar kom einnig fram að fyrir um
tveimur áratugum hætti forsætisráð-
herra að fylgja forsetanum til Keflavíkur.
Forseti hæstaréttar hefur einkum
tekið fylgdarstarfið að sér. Handhafi
forsetavalds þarf með sama hætti að
taka á móti forsetanum þegar hann
kemur til baka, bíða við landganginn þar
til forsetinn kemur og fylgja honum að
forsetabílnum. Ferðinni suður á flugvöll
er lýst þannig: „Fylgdin fer þannig fram
að bílstjóri sækir handhafa forsetavalds,
forseta Hæstaréttar eða forseta Alþingis
eftir atvikum, og farið er með lögreglu-
fylgd á eftir forsetabílnum til Keflavíkur.
Þar fer hann í gegnum vopnaleit og
öryggisskoðun, fylgir forsetanum að
hliðinu og bíður þar til hann fer úr landi.
Svo eru hann keyrður í lögreglufygld
aftur til baka.“
Eftir að ferðir forseta Íslands fóru
að vera svo tíðar sem raun ber vitni
fór þetta fyrirkomulag að verða mjög
þungt í vöfum, enda forseti Alþingis og
Hæstaréttar í annasömum störfum.
„Bent hefur verið á,“ segir í fréttinnni,
„að fylgdin hafi í raun ekkert lögform-
legt gildi, engin sérstök athöfn eða af-
hending valds á sér stað við þessa fylgd,
og hún er ekki bundin í almenn lög eða
stjórnarskrá. Það er forsætisráðuneytið
sem hefur fylgdina á sinni könnu. Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
hafði frumkvæði að því í fyrra að taka
fylgdina til endurskoðunar. Lagði hún
til að hún yrði lögð niður, en lögreglu-
stjórinn á Suðurnesjum fengi þess í stað
þetta hlutverk.“
Nú er að vita hvað gerist en for-
sætisráðuneytið mun leggja áherslu á
að breyta ekki fylgdinni nema í góðu
samkomulagi við forsetann. Það sam-
komulag hefur ekki náðst. Ólafur
Ragnar virðist halda fast í þessa hefð,
sem óneitanlega setur hann skör hærra
Helgin 17.-19. ágúst 2012 viðhorf 37
en þá sem fylgja honum. Slíkar reisur áður
fyrr hafa því væntanlega reynst fleiri for-
sætisráðherrum en Jóhönnu önugar, þótt
forseti þingsins og einkum forseti hæsta-
réttar hafi látið sig hafa þetta. Pæli menn í
þessu fyrirkomulagi, sem fæstir hafa eflaust
gert, verður því ekki neitað að furðulegt er
það úr takti við nútímann. Forseti ætti að
geta skotist úr landi án hirðfylgdar. Líklegt
er þó að það bíði nýs forseta og nýs for-
sætisráðherra að breyta þessum skrýtnu
Keflavíkurferðum.
20.000 manna kauptún
Jónas Kristjánsson ritstjóri sendir að
vanda kveðjur hingað og þangað
á síðu sinni. Þar fær hver maður
sinn skammt, ýmist einn eða
fleiri, enda Jónas lítt eða ekki í
sókn eftir vinsældum. Á þriðju-
daginn voru það Akureyringar
í heild sinni sem voru teknir á
beinið. Þar fer hlutum aftur, að
mati Jónasar, en það er kannski ekki
það versta í augum íbúa Akureyrar heldur
það að hann kallar höfuðstað Norður-
lands kauptún. Jónas segir: „Akureyri
hefur farið aftur, þótt bæjarstæðið sé
alltaf jafn flott. Friðrik V er flúinn á
Laugaveginn og fátt eftir um fína
drætti í veitingum. Fiskbúðin góða
er hætt vegna óbeitar heima-
manna á ferskum fiski. Skrítið, að
20.000 manna kauptún hafi hvorki
fiskbúð né fínt veitingahús. Þar er þó
bakarí og Bautinn hefur staðið fyrir sínu
í fimmtíu ár. Kjötborð Hagkaupa er lítils virði
og fiskihorn þess skartar nokkrum gömlum
fiskibollum. Meira að segja Eymundsson
er svipur hjá sjón, netsamband hans er
daufara en á Kili. Feginn ég að komast aftur
í bleikju og flott netsamband í Dalakofanum
í Reykjadal.“ Jónas gengur samt ekki eins
langt og Flosi heitinn Ólafsson sem sagði í
kviðlingi sem geymst hefur í minni margra:
„Frá Akureyri er um það bil
ekki neins að sakna.
En þar er fagurt þangað til
þorpsbúarnir vakna.“
Aumir og stífir vöðvar?
Voltaren gel er verkjastillandi og bólgueyðandi hlaup
við verkjum í mjóbaki, öxlum og vöðvum.
Lesa skaL vandLega Leiðbeiningar á umbúðum og fyLgiseðLi.
Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Samantekt á eiginleikum lyfs – styttur texti SPC. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4
g af hlaupi (sem jafngildir magni á stærð við kirsuber til valhnetu) er borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar
meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir díklófenaki eða
einhverju hjálparefnanna. Ofnæmi fyrir asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólg-
ueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Á síðustu þremur mánuðum meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Meðganga og brjóstagjöf: Ef þú ert barnshafandi máttu eingöngu
nota Voltaren í samráði við lækni. Þú skalt nota eins litla skammta og hægt er og nota Voltaren í eins skamman tíma og mögulegt er. Þú mátt ekki nota Voltaren á síðustu þremur mánuðum meðgöngunnar. Ef þú ert með barn
á brjósti máttu eingöngu nota Voltaren í samráði við lækni. Konur með barn á brjósti mega hvorki bera Voltaren á brjóstin né á stór húðsvæði og eiga að nota lyfið í eins skamman tíma og mögulegt er. Aukaverkanir: Algengar
(≥1/100 til <1/10): Útbrot, exem, hörundsroði, húðbólga (þ.m.t. snertiofnæmi), kláði. Sjaldgæfar (≥1/1.000 til <1/100): Brunatilfinning á meðferðarstað, roði, punktblæðingar í húð, ofnæmishúðbólga. Mjög sjaldgæfar
(≥1/10.000 til <1/1.000): Blöðruhúðbólga. Koma örsjaldan fyrir (<1/10.000): Útbrot með graftarnöbbum, ofnæmi (þ.m.t. ofsakláði), ofnæmisbjúgur, berkjukrampi, astmi, þurrkur, ljósnæmi. Tíðni ekki þekkt (ekki hægt að
ákvarða tíðni út frá fyrirliggjandi gögnum): Bráðaofnæmisviðbrögð. Við langvarandi notkun (>3 vikur) og/eða þegar verið er að meðhöndla stór húðsvæði geta komið fram almennar aukaverkanir. Einkenni eins og kviðverkir,
meltingartruflanir og truflanir á maga og nýrnastarfsemi geta komið fram. Ofskömmtun: Ef of stór skammtur af Voltaren hefur verið notaður, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús
eða eitrunarmiðstöð (sími: 543-2222). Hafðu umbúðir lyfsins við höndina. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun.
Ryðgaður og stífur?