Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 4

Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 4
AFMÆLISTILBOÐ 40 GERÐIR GRILLA í SÝNINGARSAL Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Er frá Þýskalandi www.grillbudin.is 69.900 Samnorræn tónlistarhátíð í Reykjavík veður Föstudagur laugardagur sunnudagur HelduR kólnandi noRðan- og auStanlandS. SkúRiR S-til. HöfuðboRgaRSvæðið: Skýjað að meStu og SíðdegiSSkúrir. væta noRðauStantil og fRemuR kalt þaR, en léttSkýjað Sunnnan og veStantil. HöfuðboRgaRSvæðið: Þurrt og SéSt til Sólar. n-átt, að meStu þuRRt og nokkuð bjaRt veðuR. HöfuðboRgaRSvæðið: léttSkýjað, en Þykknar upp SíðdegiS. kólnar og haustlegra en verið hefur Heldur svalara verður um helgina en verið hefur og norðaustantil kólnar talsvert. Þar mun snjóa í hærri fjöll á laugardag og að- fararnótt sunnudags. annars verður aðgerðarlítið veður, þó rigning, einkum á laugardag austantil á norðurlandi. í öðrum lands- hlutum að mestu þurrt og sólin nær í gegn. Á Vest- fjörðum verður léttskýjað og fyrirtaks berjatínslu- veður sem og almennt um vestanvert landið. 13 11 9 9 10 13 12 8 6 12 11 11 9 7 11 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is OYSTER PERPETUAL LADY-DATEJUST PEARLMASTER Michelsen_255x50_A_0612.indd 1 01.06.12 07:20 K arolina Fund er nýtt íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í svokallaðri crowd-fund- ing, sem felst í því að hjálpa fyrir- tækjum að fjármagna sig með því að fjöldi fólks ýmist styrki verkefni eða gerist fjárfestir. Ekkert íslenskt fyrirtæki býður upp á þessa þjón- ustu í dag en þessi fjármögnunar- leið hefur notið mikillar velgengni erlendis og fjallaði tímaritið Eco- nomist nýlega um crowd-funding og fyrirtækið Kickstarter sem er hið stærsta sinnar tegundar í heim- inum. Sagt var frá því að árið 2011 hafi Kickstarter safnað nálægt 100 milljónum dollara, nærri tólf millj- örðum íslenskra króna, í alls 27 þús- und verkefni. Karolina Fund mun opna vefsíðu sína, karolinafund.com, í september og eru þegar tilbúnar 30 hugmyndir sem fólki verður boðið að styrkja eða kaupa hlutafé í, allt frá því að kaupa hluta í húsdýri eða fjármagna nýjustu, íslensku stórmyndina, að sögn Inga Rafns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Karolina Fund. „Vefurinn verður jafnframt nokk- urs konar frílansera-kauphöll sem og hugmyndakauphöll,“ segir Ingi Rafn. „Fólk getur sett hugmyndir inn á vefinn og fundið þar fólk til að framkvæma þær með sér jafnframt því að finna þar fjármögnun fyrir þau verkefni sem hugmyndirnar hafa leitt af sér,“ segir hann. Ingi Rafn segir þennan vettvang tilvalinn fyrir fólk í skapandi grein- um og nefnir sem dæmi að þarna geti fólk sem er ef til vill algjörlega óvant, sett inn hugmyndir og feng- ið með sér í lið vant fólk sem það kæmist ef til vill ekki í samband við öðruvísi. „Og þarna getur fólk boðið í verkþætti, til að mynda kvik- myndatökumenn í kvikmyndatöku í bíómynd og svo framvegis,“ segir hann. Hann segir að eitt það áhuga- verðasta við þessa leið sé að öll verkefnin eru fullkomlega gegnsæ og geta fjárfestar og styrktarað- ilar fylgst með framgangi þeirra alla leið. „Það hefur verið gagnrýnt af mörgum öðrum crowd-funding síðum að upphæðin sem gert er ráð fyrir að verkefnið komi til með að kosta sé ekki endilega raunhæf en hjá okkur er hægt að sjá upplýs- ingar um hvern einasta verkþátt og þannig fá raunsanna mynd af kostn- aðinum,“ bendir hann á. Eitt þekktasta dæmi vel heppn- aðar crowd-funding er kvikmyndin Iron Sky sem gerð var af tiltölulega óþekktum, finnskum kvikmynda- leikstjóra og er sögð dýrasta B- mynd sögunnar. „Hann setti fram hugmynd að bíómynd sem náði fljótt miklum vinsældum í netheim- um og var hann kominn með þús- undir manna á póstlista hjá sér sem höfðu áhuga á hugmyndinni einni saman. Í kjölfarið safnaði hann sam- an fólki meðal þessa áhugafólks til að vinna að gerð og undirbúningi myndarinnar og því næst fjármagn- aði hann stóran hluta myndarinnar á sama hátt,“ segir Ingi Rafn. „Við segjum að fjárfesting sem þessi sé fyrir pönkara – ekki fyrir fólk sem er klætt eins og dyraverð- ir,“ segir Ingi Rafn. Fólk getur fjár- fest fyrir stórar sem litlar upphæðir, allt eftir verkefnum. „Það getur ver- ið ómetanlegt fyrir ákveðin verkefni að hafa sem flesta styrktaraðila eða fjárfesta,“ bendir hann á. „Markaðs- fræðingar hafa verið að leita að leið- um til að styrkja samband milli ein- staklinga og vörumerkis og hefur crowd-funding reynst vera mjög öfl- ug til þess. Það eru mikil verðmæti í því að tiltekin, ný vara eigi hugsan- lega tíu þúsund vildarvini áður en hún kemur á markað, eins og gefur að skilja,“ segir hann. Síðan verður sett upp á ensku því markmiðið er að ná út fyrir land- steinana og vonast Ingi Rafn eftir 20.000 notendum fyrir áramót. Sigríður dögg auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is  viðsKipti ný crowd-Funding leið Fyrir íslensK FyrirtæKi Fjármögnun fyrir pönkara Crowd-funding er nýlegt hugtak í viðskiptaheiminum og er nú að hasla sér völl á íslandi með nýrri vefsíðu, karolinaFund.com. Stofnandinn segir að þessi tegund fjármögnunar sé fyrir pönkara, en ekki fólk sem sé klætt eins og dyraverðir. ingi rafn Sigurðsson framkvæmdastjóri, arnar Sigurðsson forritari og jónmundur gíslason, grafískur hönnuður. jack magnet í Hörpu mikið verður um að vera á jazzhátíð reykjavíkur í Hörpu á laugardagskvöld því jack magnet Quintet stígur þar á stokk klukkan 20 og flytur tónlist af 7 sólóplötum jack magnet, jFm, jakobs magnússonar og jobba maggadon. kvintettinn skipa valinkunnir meistrarar; jóel pálsson, einar Scheving, guðmundur pétursson, róbert Þórhallsson og pétur grétarsson auk sérstakra gesta. Fyrri hluti tónleikanna verður helgaður gítarleikurunum paul Brown og Friðrik karlssyni sem ásamt Moses Hightower flytja tónlist Paul Brown sem er þekktur jazzgítarleikari og upp- tökustjóri frá Bandaríkjunum. - jh Samnorræna tónlistarhá- tíðin ung nordisk musik eða unm verður haldin í reykjavík dagana 28. ágúst - 1. september 2012. unm er hátíð ungra tónskálda á norðurlöndunum og hefur verið starfrækt frá árinu 1946. tónleikadagskrá hátíðarinnar samanstendur af tónverkum eftir ung tónskáld frá danmörku, noregi, Svíþjóð, Finnlandi og íslandi. tvö gestatónskáld munu heimsækja hátíðina, klaus lang frá austurríki og Þuríður jónsdóttir. tónleikar verða haldnir víðsvegar um reykjavík og í Skálholtskirkju en botninn verður sleginn í hátíðina með lokatónleikum í flutningi kammersveitarinnar CAPUT í Norðurljósasal Hörpu. auk tónleika verða einnig á dagskrá fyrirlestrar, málþing og smiðjur undir yfirskriftinni Nýjungar í tónlistarflutningi í samstarfi við LornaLAB og Listaháskóla íslands. Viðburðirnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. - jh Fjórðu tónleikar Stuðmanna allir miðar seldust upp á örfáum klukkustundum á þrenna stórtón- leika Stuðmanna í Hörpunni, en tón- leikarnir marka meðal annars 30 ára afmæli kvikmyndarinnar með allt á hreinu. Fjórðu og síðustu tónleikar í þessari röð verða klukkan 23 laugar- daginn 6. október og fara þeir í sölu í dag, föstudag, klukkan 12 í Hörpu og á midi.is. Þetta er í fyrsta sinn í nokkur ár sem Stuðmenn koma saman í upprunalegri mynd. - jh 4 fréttir Helgin 24.-26. ágúst 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.