Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.08.2012, Blaðsíða 27

Fréttatíminn - 24.08.2012, Blaðsíða 27
Líf mitt var orð- ið þannig að ég gat ekki verið einn heima. Ég var alltaf að detta út. SIMPLY CLEVER ŠKODA Yeti - vertu viðbúinn hinu óvænta. Í ŠKODA Yeti er sérhver ökuferð einstök. Yeti er sterkur en samt nettur og tekst auðveldlega á við allar aðstæður. Undir vélarhlífinni er Yeti með aflmikla og sparneytna 2.0TDI dísilvél sem eyðir aðeins frá 6 lítrum á 100km. ŠKODA Yeti 2.0 TDI, 4x4 kostar aðeins frá kr: 4.490.000,- Umboðsmenn Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · Hekla Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði brot af aðgerðunum sem gerðar eru úti. Maður vill að gæinn sem krukkar í hausnum á sér hafi gert það sem oftast,“ segir Árni. „Um daginn þegar ég kom inn á spítala var einn maður á heila- skurðvakt. Svo eru menn að væla yfir Vaðlaheiðargöngum. Stein- grímur J. og Kristján Möller fá ekki jólakort frá mér. Mér finnst þetta skrýtin forgangsröðum. Ég hef ekki hitt lækni sem er sammála því að byggja nýjan spítala. Það er hægt að gera margt sniðugra fyrir 100 milljarða plús.“ Honum finnst sveltistefnan í garð Landspítalans vera glórulaus. „Oft er krónunni kastað fyrir eyrinn. Það er ekki boðlegt að tæki spítal- ans séu löguð með límbandi. Ég veit ekki hversu oft Björn Zoëga hefur sagt að heilbrigðiskerfið sé komið að þolmörkum, en fyrir mitt leyti er kerfið löngu sprungið. Stjórnendur Landspítalans kalla úlfur, úlfur. Þeir verða að fara að læra að standa í fæturna gagnvart þessari vitlausu forgangsröðun stjórnvalda,“ segir hann. „Því á sama tíma og einstak- lingar á leikskólanum við Austur- völl reyna að reisa sér minnisvarða hrynja stoðir heilbrigðiskerfisins. Fólk hefur val um hvort það fer til Húsavíkur eða ekki, en fólk hefur ekki val um hvort það veikist.“ Börnin settu hann í sokkana Þótt Árni staulist um hefur ástandið verið verra. „Ég geng um eins og ég sé drukkinn. Ég vildi að það væri öfugt. Ég væri sem drukkinn en gengi eðlilega í gegnum þessa meðferð.“ Um tveggja mánaða skeið komst hann ekki sjálfur í fötin. Þá áttu börnin það til að klæða hann í sokkana. „Jú, á venjulegu heimili dreifir fólk verkefnum. En Ína er með tvo krakka og einn durg á heimilinu, sjálfa sig og vinnuna sína. Mér finnst ég auðvitað leggja miklar byrðar á hana. Þótt ég reyni að gera það sem minnst get ég voða lítið gert í heimilisstörfum. Ef ég reyni er ég dauður um kvöldið. Ég þarf því að vega og meta hvort ég eigi að setja í vélina og sópa gólfið eða eiga ánægjulega og góða kvöldstund með fjölskyldunni,“ segir Árni og að tengdaforeldrarnir séu þeim stoð      og stytta. „Þau eru yndisleg og hafa stutt rækilega við bakið á okkur.“ Haustið 2010, þegar hann greinist með fyrsta heilaæxlið, hætti hann að fljúga. „Ég fór strax í veikindarleyfi. Ég er flugmaður í leyfi. Það eru strangar heilbrigðiskröfur. Það kom ekki annað til greina.“ En Ice- landair stendur við bakið á Árna og fyrir það þakkar hann þeim – sérstaklega Hilm- ari Baldurssyni og Þorgeiri Haraldssyni sem hafa, ásamt fleirum, hjálpað fjölskyld- unni hvað þeir geta. Þá segist Árni heppinn í óheppni sinni, spurður um fjárhaginn. „Flugmenn eru vel tryggðir. Margir hafa það verra í veikindum sínum en ég. Ég fæ rosalegt samviskubit þegar ég hlusta á einstæðar mæður í hópi ungs fólks með krabbamein sem ég hitti. Sumar þeirra eiga Framhald á næstu opnu viðtal 27 Helgin 24.-26. ágúst 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.