Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.08.2012, Side 70

Fréttatíminn - 24.08.2012, Side 70
Segðu það með  Nám Sigríður HalldórSdóttir á leið í NámSleyfi Úr Landanum til Barcelona „Við höldum utan í byrjun september,“ segir Sigríður Halldórsdóttir, fréttakona í Land- anum, en hún og maðurinn hennar, Jón Ragnar Ragnarsson, eru á leið til Barcelona í nám ásamt litlu tveggja ára dóttur þeirra, Urði Ásu (sem ætlar að „mastera kata- lónsku“ segir mamma hennar). Sigríður ætlar að taka masterinn í al- þjóðasamskiptum en er ekki alveg horfin af sjónvarpsskjám landsmanna því námið er eitt ár og að því loknu snýr hún aftur á RÚV þar sem hún hefur starfað síðastliðin sjö ár sem skrifta, þula, fréttamaður á Austur- landi og auðvitað í Landanum, þaðan sem alþjóð þekkir hana. En af hverju Barcolona? „Við fundum bæði nám við hæfi og ekki skemmir fyrir að Jón Ragnar er altalandi á spænsku eftir að hafa búið í Gvate- mala,“ segir Sigríður en sjálf er hún með góðan grunn í spænskunni eftir að hafa búið í hálft ár í Perú en að auki hefur hún búið í Danmörku og Ítalíu svo komandi bú- flutningar valda henni engum sérstökum kvíða. Sigríður Halldórsdóttir frétta- kona er flutt til Barcelona en lofar endurkomu á RÚV eftir ár. Mikael Torfason mikaeltorfason@ frettatiminn.is Didda og Sólveig á RIFF RIFF, Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík, hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn líflegasti og fjölsóttasti menningarviðburðurinn í borginni ár hvert. Hátíðin hefst í lok september og undirbúningurinn er kominn á fulla ferð. Stemningin á skrifstofu hátíðarinnar er vægast sagt alþjóðleg þessa dagana þar sem sjálfboðaliðar og starfsnemar frá einum sex löndum, samanlagt yfir tuttugu manns, vinna nú hörðum höndum að því að púsla hátíðinni saman. Opnunarmynd hátíðarinnar í ár verður nýjasta mynd Sólveigar Anspach, Queen of Montreuil, en skáldið Didda og sonur hennar hafa fengið mikið lof fyrir leik sinn í myndinni. Meðal annars í Hollywood Reporter. Þær vinkonur Didda og Sólveig hafa átt farsælt samstarf í kvikmyndum en Didda hefur áður leikið undir stjórn Sólveigar í Stormy Weather og Skrapp út. Heilsuæði í Eyjum Berglind Sigmarsdóttir hefur slegið öðrum höfundum við í sölu það sem af er ári með bók sinni, Heilsuréttum fjölskyldunnar. Bókinni hefur verið sérstaklega vel tekið í Vestmannaeyjum, heimabæ höfundarins. Samkvæmt upplýsingum frá útgefanda bókarinnar hafa rétt tæplega 500 eintök selst í Eyjum sem verður að teljast nokkuð afrek því heimili í bænum eru um 1.100. Leikarar með pókerfeis Leikarinn Gísli Örn Garðarsson og fleiri félagar hans úr Vesturporti hafa fyrir sið að hittast einu sinni á ári eða svo og slá upp litlu pókermóti ásamt öðrum vinum og kunningjum. Hópurinn ætlar að koma saman á föstudagskvöld og gera sér glaðan dag yfir spilum en Gísli Örn er sagður pókerspilari af guðs náð. Spennan við spilaborðin verður líklega rafmögnuð enda kann sviðslistafólk ýmislegt fyrir sér í andlitstjáningu og sjálfsagt verða þau all nokkur pókerfésin sem ekkert verður hægt að lesa úr.  iNgibjörg torfadóttir fór í reykpáSur með jeSúS Kynlífið aldrei betra eftir að ég fann Jesú i ngibjörg segist ekki hafa verið í neinni sérstakri leit þegar hún fann Guð en kynni hennar af núverandi eiginmanni hennar fyrir nokkrum árum beindu henni á brautina til Jesú. „Ég held að það sé venjulega þannig að fólk sé ekk- ert endilega að leita þegar það finnur hann. Það er eins og hann biðli til manns og þá allt í einu smellur allt saman,“ segir Ingibjörg. „Hann kemur inn í líf manns þegar maður er tilbúinn. Það stendur meira að segja í Biblíunni að við elskum hann vegna þess að hann elskaði okkur fyrst. Hann sýnir okkur það og þá ein- hvern veginn förum við að elska hann.“ Lýsing Ingibjargar í bókinni á því þegar hún fann Jesú er nokkuð erótísk og hún segist ekki sjá neitt óeðlilegt við það. Síður en svo enda sé kynlífið Guðs gjöf. „Eftir að ég kynntist Jesú finnst mér kynlífið í fyrsta lagi hafa batnað og mér finnst ég einhvern veginn vera meiri kyn- vera. Þegar ég hef verið mikið í andanum og mikið að tala við Jesú þá er ég opnari fyrir kynlífi og í meira stuði til þess að stunda kynlíf,“ segir Ingibjörg og bætir við að kærleikurinn sé frá Guði kominn og að kynlíf sé hámark elskunnar. „Kynlífið er samt meira orðið þannig að ég vil gefa manninum mínum það að stunda kynlíf. Þetta er ekki bara einhver losti þótt hann sé svo sannar- lega til staðar líka. Allir þurfa á kyn- lífi að halda og ég finn oft hvað sumt fólk er svelt. Kynlífið er gjöf sem Guð gaf okkur og fólk þarf rosalega mik- ið á því að halda. Ef við elskum fólk þá eigum við að sofa hjá því. Það er bara þannig. Hipparnir voru komnir áleiðis með að átta sig á vilja Guðs þegar þeir boðuðu frjálsar ástir. Ég ímynda mér himnaríki sem mjög skemmtilegan stað án þess að ég fari nánar út í það.“ Í bókinni lýsir Ingibjörg milliliða- lausu sambandi sínu við Jesú sem er svo náið að hún fór með honum í reykpásur áður en hann sagði henni að hætta að reykja. „Þetta er þannig. Jesús er mjög persónulegur og Guð er mjög persónu- legur guð. Hann er ekki fjarlægur. Hann talar við mann hvort sem maður situr á klósettinu eða ekki. Maður er ekkert að loka klósetthurðinni á hann þegar hann talar. Þegar ég fór út að reykja var ég bara að hugsa og tala við hann. Þetta var eini tíminn sem ég hafði til að vera ein og fór að líta á hann sem reykfélaga minn. Þess vegna voru það viss vonbrigði þegar ég varð að hætta. En maður finnur alltaf tíma til að tala við hann ef mann langar. Maður fær eins mikið og maður vill.“ Ingibjörg segist hafa fengið góð við- brögð við bókinni og fólk hafi tjáð sér að það hafi fundið lífsbjörg í henni. Að- spurð segist hún undir það búin að bókin verði umdeild en hún hafi ekki fengið neikvæð viðbrögð við erótískum þætti hennar. „Ég hef ekki ennþá verið sökuð um guðlast og vonandi verður það ekki.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.isÞegar Jesús birtist „Hver svo sem ástæðan var þá sá ég ekki framan í hann. En ég fann hversu sexí hann var. Það bylgjaðist um mig ótrúleg hamingja, ég hef aldrei fundið annað eins. Stundum hef ég óskað þess að deyja bara af því að mig langar að fara aftur á þennan stað. Æ, ég get varla útskýrt það. Það helltist yfir mig löngun til að vera í návist hans.“ (Ástarsam- band við Guð. Bls. 91.) Kynlífið er gjöf sem Guð gaf okkur og fólk þarf rosalega mikið á því að halda. Ingibjörg Torfadóttir komst í náið, persónulegt samband við Guð. Henni finnst hún meiri kynvera eftir þau kynni. Ljósmynd/Hari Ingibjörg Torfadóttir er 29 ára gamall hjúkrunarfræðingur. Í bók sinni Ástarsam- band við Guð segir hún frá því hvernig hún komst í náið og milliliðalaust samband við Jesús. Líf hennar breyttist til hins betra í framhaldinu. Hún sprakk út sem kynvera, er laus við þunglyndi og hefur öðlast innri ró. Ingibjörg sat sjálf fyrir á kápumynd bókarinnar þar sem fyrirsætan mætti ekki og tíminn var að renna út. Líkams- málverkið sem hún skartar er eftir manninn hennar, David Shea. Ástar- samband við Guð fæst í Eymundsson, Máli og Menningu og Bóksölu stúdenta. 58 dægurmál Helgin 24.-26. ágúst 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.