Fréttatíminn - 24.08.2012, Blaðsíða 14
ÞÚ GETUR
ENN VERIÐ
MEÐ!
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA Á
WWW.HHI.IS
EÐA Í SÍMA
8OO 66 11
É g fædd í Reykjavík en uppalin í Kópavogi og er algjör Kópavogsbúi,“ segir Jórunn. „Ég gekk í Digranesskóla og á yndislega æskuvini þaðan sem eru ennþá bestu vinir mínir. Ég bjó
í Kópavogi alla mína barnæsku með mömmu, pabba og
tveimur systkinum mínum og svo flutti amma til okkar
frá Hvammstanga þegar afi dó. Það var gaman að alast
upp með ömmu líka, sem lifði til 95 ára aldurs. Ég var
mikil ömmustelpa og hún hafði mikil áhrif á mig og mót-
aði mig mikið. Á sumrin passaði ég börn hjá frændfólki
mínu á Skagaströnd og fannst Skagaströnd besti bærinn
á Íslandi og ætlaði hvergi annars staðar að búa þegar ég
yrði fullorðin. Ég á frábærar minningar frá Ströndinni
og góða vini þaðan, en svo komst ég að því á að það væri
ekki mikið um atvinnutækifæri á Ströndinni og því varð
ekkert af flutningi þangað! Amma var rosalega mikil
hannyrðakona og hún kenndi okkur vinkonunum. Einnig
var hún alltaf að spila við okkur, svo við lærðum margt af
henni.“
Lærði á hljóðfæri, spilaði handbolta og sótti
sunnudagaskóla
Jórunn segir ferðalög alltaf hafa verið mikið áhugamál
hjá sér og á tímabili hafi hún átt drauma um að gerast
flugfreyja. En aðrir hlutir toguðu sterkara í hana.
„Ég var uppi um allt og úti um alltaf, hafði alltaf of
mikið að gera. Passaði hálfan Kópavog, lærði á blokk-
flautu og píanó, spilaði handbolta, söng í kór, var á fullu
í KFUM og KFUK, mætti alltaf í sunnudagaskólann til
að hjálpa. Á sumrin var ég á fullu í frjálsum íþróttum og
hlaupandi út um allt. Svo vorum við vinkonurnar alveg
spilasjúkar og spiluðum til dæmis „Marías“ út í eitt
sem fáir kunnu, en amma kenndi mér. Svo var ég alltaf
á flakka, fór í ferðalög með öllum þessum félagsskap og
svo fékk ég að fara til Skagastrandar líka, til dæmis um
páska, því þá var Skagaströnd ennþá draumastaðurinn
minn.“
Ævintýri í Bretlandi
En þar sem atvinnutækifærin voru ekki á Skagaströnd
og Ströndin kannski ekki nógu stór fyrir Jórunni, vakn-
aði hjá henni draumur um að búa í útlöndum:
„Ég átti alltaf þann draum að búa í útlöndum og
ákvað árið 2003, þegar ég var að ljúka diplóma í
mannauðsstjórn un frá Endurmenntun Háskóla Íslands,
að leggja það fag fyrir mig; klára BA námið mitt erlendis
með áherslu á mannauð. Ég fór ung í sambúð – nýorðin
sautján ára – og eftir skilnað varð úr að ég og krakkarnir
mínir, Sólveig Helga og Björn Ari, þá fimmtán og tíu ára
flyttum út til Englands og upplifðum ævintýri. Nú höfum
við búið í Bretlandi í átta ár, alltaf á sama stað í Suður-
Englandi, rétt við Portsmouth þar sem ég hafði verið í
námi. Ég var fyrst í háskólanum í Winchester og síðan í
háskólanum í Portsmouth þar sem ég lauk mastersnámi í
MBA og í verkefnastjórnun. Þetta ævintýri hefur gengið
vel hjá okkur og Sólveig mín lauk BA prófi í hótel og veit-
ingastjórnun og Björn Ari er að hefja nám í kvikmynda-
framleiðslu nú í haust í háskólanum í Winchester. Við
höfum á þessum árum staðið á krossgötum hvort við
eigum að flytja heim, en þar sem krakkarnir vildu einnig
fara í háskóla í Englandi þá erum við enn búsett þar. Sól-
Eitt maraþon á dag í sjö daga
Jórunn Jónsdóttir er
íslensk kona sem ásamt
Brynhildi Sverrisdóttur
rekur ferðaskrifstofuna
„All Iceland“ í Bretlandi
og nýverið var opnuð
önnur slík skrifstofa í
Bandaríkjunum. Þeim
hefur gengið ótrúlega
vel að kynna Ísland
og Jórunn segir að
kannski hafi gosið í
Eyjafjallajökli hjálpað
þeim mikið þar sem fáir
komust í sýningarhöll-
ina það árið til að
kynna fyrirhugaðuð
maraþonhlaup í sínum
löndum. Jórunn er nú
stödd hér á landi ásamt
skipuleggjendum að
undirbúa 250 kílómetra
hlaup á sjö dögum sem
hefst á sunnudaginn.
En hver er þessi kona
sem býr yfir slíkum drif-
krafti að manni fallast
nánast hendur?
Anna
Kristine
ritstjorn@frettatiminn.is
Framhald á næstu opnu
Jórunn Jónsdóttir: „Það er ýmislegt skemmtilegt sem fylgir undirbúningi svona hlaups. Þannig kynntist ég til dæmis kærastanum mínum fyrir tíu mánuðum þannig að ég
er komin í mark sjálf.“ Ljósmynd Hari
14 viðtal Helgin 24.-26. ágúst 2012