Fréttatíminn - 24.08.2012, Qupperneq 8
Komdu á
rétta staðinn
og gerðu
góð kaup!
Brautarholti 8
Opið virka daga 9-18
og laugardaga 10-16
sími 517 7210 / www.idnu.is
Tilboðsverð:
3.990 kr.
Laugavegur
N
óa
tú
n
Brautarholt
Þ
ve
rh
ol
t
IÐNÚ
Hlemmur
Skipholt
skólavöruverslun
Grundvallarrit í
sérhvert eldhús
(G
ild
ir
ti
l 3
0.
á
gú
st
n
.k
.)
Ráðin framkvæmda-
stjóri Já Ísland
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Já Íslands. Já Ísland
er vettvangur Evrópusinna, einstaklinga og
samtaka, samfélag þeirra sem vilja vinna að
aðild Íslands að Evrópusambandinu með því
að stuðla að hagstæðum aðildarsamningi.
Sigurlaug lauk BA gráðu í stjórnmálafræði
árið 2008 en áður stundaði hún nám í
iðnrekstrarfræði við Tækniháskóla Íslands.
Hún starfaði sem verkefnisstjóri rannsóknar á
íbúalýðræði við stjórnmálafræðideild HÍ árin
2008-2011 ásamt því að stunda meistaranám
við sömu deild í opinberri stjórnsýslu. Sigur-
laug Anna hefur tekið þátt í starfi Sjálfstæðis-
flokksins, einkum á sviði sveitarstjórnarmála.
Hún er varabæjarfulltrúi í Hafnarfirði. - jh
Vigdís opnar Laugalandsskóg
Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Ís-
lands, opnar Laugar-
landsskóg í Hörgárdal
á sunnudaginn. Í tilefni
af vígslu skógarins
sem „Opins skógar“
verður efnt til hátíðar-
og skemmtidagskrár
fyrir alla fjölskylduna
klukkan 16. Laugalandsskógur er í Hörgárdal, í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá
Akureyri. Þar er búið að leggja stíga og setja upp skilti og öll aðstaða til útivistar
og náttúruskoðunar er til fyrirmyndar. Ávörp flytja Magnús Gunnarsson, formaður
Skógræktarfélags Íslands, Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri Hörgárbyggðar og
Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi menntamálaráðherra. Helgi og Hljóðfæraleikararnir
leika í skóginum. Boðið verður upp ketilkaffi að hætti skógarmanna og meðlæti. - jh
B auhaus byggingavöruverslunin, matvar-an í Iceland, íþróttafatnaðurinn í Sport Direct og lágu flugfargjöldin hjá Wow.
Þrátt fyrir að stórar keðjur hafi opnað verslanir
á landinu og selji oft ódýrari vörur en keppinaut-
arnir hefur það ekki áhrif á verðlagsútreikninga
Hagstofunnar. Fyrirtækin eru ekki í úrtakinu.
Ódýrara vöruverð þar lækkar því ekki verðbólg-
una – nema að keppinautarnir lækki vöruverð
sitt vegna samkeppninnar.
Þetta þýðir að fjölskyldur með verðtryggð
húsnæðislán greiða meira en þær gerðu væru
þessar verslanir taldar með.
Auðbjörg Ólafsdóttir, hagfræðingur í grein-
ingardeild Íslandsbanka, segir að svo virðist
sem Bauhaus hafi ekki haft teljandi áhrif á verð-
lag keppinautanna. Vísitala byggingarkostn-
aðar hafi aðeins lækkað um 0,3 prósent frá fyrri
mánuði. „Þá vakti athygli að greiningardeildir
spáðu því að flugfargjöld myndu lækka í júní.
Síðan mældist ellefu prósenta hækkun á flug-
fargjöldum. Okkur fannst það skjóta skökku
við að flugfargjöld væru samkvæmt mælingum
Hagstofunnar að hækka svo mikið á sama tíma
og tilboðum rigndi yfir landsmenn.“
Auðbjörg gagnrýnir aðferðafræði Hagstof-
unnar. „Þetta skiptir máli fyrir öll verðtryggð
lán á landinu. Þess vegna er mikilvægt að vísi-
talan endurspegli neysluna sem allra best.“
Fréttatíminn fékk ekki að vita hvaða fyrir-
tæki mynda úrvalsvísitöluna. Hagstofan heldur
hlífiskildi yfir verslunum í úrtaki sínu. „Það er
hluti af verklagsreglum að halda trúnaði við
þá aðila sem við eigum samskipti við,“ segir
Lára Guðlaug Jónasdóttir hjá Hagstofunni.
Hvorki mætti nefna þá á nafn né hver verðþró-
unin innan þeirra væri. Í mars á hverju ári sé
skoðað hvort taka eigi fyrirtæki inn í úrtakið
og á öðrum tímum hverfi fyrirtæki í úrtakinu af
markaði. Þá sé nýtt tekið inn. Spurð um Iceland:
„Fyrirtæki þurfa að hafa verið starfandi í ákveð-
inn tíma til þess að hægt sé að taka þau inn.“
Eigendur og stjórnendur Sport Direct, Lindex
og Bauhaus staðfesta að þeir séu ekki í úrtaki
Hagstofunnar. „Hagstofan hefur ekki haft sam-
band við Sport Direct, ekki ennþá,“ segir Sig-
urður Pálmi Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri
Sport Direct, sem hefur rekið íþróttaverslunina
í rúma þrjá mánuði. Hann segir keppinautana
hafa brugðist harkalega við samkeppninni. Ekki
aðeins Útilíf og Intersport heldur einnig Hag-
kaup. Sigurður fullyrðir að við opnun Sport Di-
rect hafi verðmunurinn verið allt að 50 prósent
en sé nú um 20 til 30 prósent á sömu og sam-
bærilegri vöru.
Albert Þór Magnússon, annar eigenda Lin-
dex, segist hafa haft samband við Hagstofuna
og spurst fyrir, en svörin verið loðin. „Nú höf-
um við starfað í tíu mánuði, erum að stækka og
komin til að vera. Ég hef verið að furða mig á
því að þeir hafi ekki haft samband.“ Verðið sé
sambærilegt við það sem gerist erlendis, sem
sé nýlunda hér á landi.
„Okkur hefur verið vel tekið og það ætti að
endurspeglast í vísitölunni,“ segir hann. „Maður
veltir fyrir sér hvort tími sé kominn til að skora
á Hagstofuna að skoða sinn gang. Ef við erum
að nota vísitöluna verður hún að endurspegla
verðið á markaðinum.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
VerðBólga ódýru Búðirnar teljast ekki með
Bauhaus, Lindex,
Sport Direct, Wow
og Iceland ekki með
Þrátt fyrir að stórar verslunarkeðjur hafi opnað hér á landi á árinu rata þær ekki inn í vísitölu-
útreikninga Hagstofunnar. Það hefur áhrif á verðtryggð húsnæðislán landsmanna því þau byggja
á útreikningum. Iceland er ekki með, ekki Sport Direct, ekki Bauhaus eða Wow. Hagstofan hefur
ekki séð ástæðu til að taka Lindex með þótt keðjan hafi verið hér frá því í fyrra.
Milljónir af heimilum til bankanna vegna ónákvæmra mælinga
Á sama tíma og landsmenn gátu
keypt ódýra flugmiða úr landi, á
mun hagstæðari kjörum en áður
bauðst, hækkaði vísitalan og
þar með verðtryggð húsnæðis-
lán vegna flugfargjalda. Ástæðan
var sú að Wow og þau erlendu flugfélög sem
hingað komu í sumar voru ekki talin með í útreikn-
ingi vísitölunnar.
Verðtryggð lán heimilanna í landinu voru 1.500
milljarðar króna í lok síðasta árs, samkvæmt tölum
Hagstofunnar. Í hvert
einasta sinn sem vísitala
neysluverðs hækkar um 0,1
prósent bætast 1,5 milljarður
við höfuðstól þessara lána. Hækkun á
flugfargjöldum í júní bætti ein og sér 30 millj-
ónum króna á höfuðstól verðtryggðra lána lands-
manna. Það er ekki mikið eða 600 krónur á þrjátíu
milljóna verðtryggt lán. En þegar einnig er litið til
allra hinna liðanna sem gætu verið lægri tínast krón-
urnar af heimilunum til lánastofnana. - gag
Lindex er ein
þeirra versl-
ana sem eru
utan vísitölu
útreikninga
Hagstof-
unnar.
8 fréttir Helgin 24.-26. ágúst 2012