Fréttatíminn - 24.08.2012, Síða 10
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Dúnmjúkar
brúðargjafir
Jafnvægið fæst oft ekki nema að við
breytum um lífsstíl; sleppum sykri,
geri og hvítu hveiti og borðum mikið
af grænmeti og trefjum.
T ími sveppanna er kominn. Það haustar og hann breiðir úr sér. Hefur þú séð sveppina meðfram
Miklubrautinni á hverju hausti? Getur
verið að svona sveppabreiður séu innra
með þér? Fjöldi fólks er þakið sveppum og
sumir eru með mjög svæsnar sýkingar.
„Fólk getur verið algjört flak: Með
þokukennda hugsun, síþreytu, verki í
liðum og vöðvum, húðvandamál, melting-
artruflanir, uppþembu, niðurgang, harð-
lífi, vindgang og bakflæði,“ segir Birna
Ásbjörnsdóttir, næringarráðgjafi og mast-
ersnemi í næringarlæknisfræði. Fleiri
einkenni; hæsi, eyrnaverkir, kyndeyfð,
þunglyndi og ofnæmi.
Er sykurfíknin sveppafæða?
„Þeir sem eru með sveppasýkingu eða
ofvöxt á sveppum sækja oft í sykur. Þeir
eru í vítahring, borða oft meira og vitlaust
og þeim líður oft ekki vel. Þeir eru alltaf
að leita að orku og upplifa jafnvel ákveðna
fíkn. Þeir leita í sætindi til að hífa sig upp
og hressa sig við með sykruðum gos-
drykk eða sykri. Það gefur orku í tuttugu
mínútur en nærir jafnframt sveppinn og
viðheldur vítahringnum.“
Hættulegt? „Nei, en getur valdið þess-
um óþægilegu einkennum,“ segir hún.
Karlar líka með sveppasýkingu
Er þetta frekar hjá konum en körlum?
„Það tel ég ekki, en konur eru oft
duglegri að leita að svörum og skoða
mataræðið,“ segir hún. „Ég tel að það sé
mjög algengt að fólk hafi sveppasýkingu.
Hún getur komið og farið án þess að fólk
geri neitt í því. En ef þetta verður svæsin
sveppasýking verða lyf við henni óhjá-
kvæmileg,“ segir Birna.
Fótsveppir. Sár milli tánna, neglur sem
gulna og þykkna. Geirvörtur mjólkandi
mæðra springa og óstöðvandi kláði á
kynfærum. Kláðinn hrjáir oftar konur
en karla en „kónga“sveppurinn” lifir
líka góðu lífi. Hvít tunga ungbarna
– þruska. Sveppirnir leynast víða.
„Sveppir elska myrkur og raka,“ segir
Birna.
Hlaup, krem, úðalausn eða duft.
Hægt er að fá vægari sveppasýkingar-
lyf án lyfseðils: Daktacort, Lamisil og
Pevaryl. En þótt þau slái á kláða ráðast
þau ekki að rótum vandans. „Undirliggj-
Sveltu sveppinn
Innileiki sem hverfur í kvöl og pínu
Stingandi
sársauki
sem leiðir
frá brjósti
að lungum.
Seppasýking
leikur nýbak-
aðar mæður oft
grátt. Brjóstagjöf,
sem á að vera innileg
og tími móður og barns,
verður kvöl og pína. „Á
meðgöngu og fyrst eftir
fæðingu er ónæmiskerfið
ekki jafn kröftugt. Það er
mikið álag. Bæði getur
barnið fengið sveppi í
munn og smitað móður
og öfugt,“ segir Birna
Ásbjörnsdóttir nær-
ingarráðgjafi. „En konur
fá oft sveppasýkingu á
meðgöngu og rétt eftir
meðgöngu þar sem ein-
hver röskun verður við
barnsfæðinguna og kerfið
er ekki eins sterkt og fyrr.“
Finnurðu fyrir
síþreytu, verkjum
í liðum, ert með
uppþembu og
langar ekki að
sofa hjá? Ástæðan
gæti verið
sveppasýking.
Burt með sykur,
ger og hvítt hveiti
er svarið við
svæsinni sýkingu.
Sumir geta hætt
tímabundið, aðrir
verða alltaf við-
kvæmir. Birna
Ásbjörnsdóttir,
næringarþerapisti
og mastersnemi í
næringarlæknis-
fræði, segir
breyttan lífsstíl
lausnina.
andi orsök er alltaf ójafnvægi á þarmaflórunni,“
segir hún og áréttar að öll erum við með candida
hvítsveppinn í okkur. „Vandinn er aldrei leystur
utan frá. Þú getur linað óþægindin með kremum
en lausnin kemur bara innan frá. Sveppurinn er í
þörmunum og þaðan fer hann út um líkamann.“
Góða þarmaflóran dauð
Birna segir að þeir sem þurfi oft að taka sýklalyf
endi oftar með sveppasýkingu en aðrir. „Því þau
drepa góðu flóruna í þörmunum. Þegar þú tapar
góðu flórunni eða hún raskast ná sveppir að vaxa.
Síðan nærir sykur, ger og hvítt hveiti sveppinn.
Hann tekur yfir og borðar frá þér næringuna.“
Hún segir ekki alla lækna of upptekna af þessu.
„Það er hægt að taka blóðprufur og sýni og lesa úr
einkennum hjá hverjum og einum.“
Spurð hvort myglusveppir í húsum ýti undir
sveppasýkingu í fólki svarar hún. „Ég þekki það
ekki, en að búa í húsi með sveppum hefur áhrif á
ónæmiskerfið. Það letur ónæmiskerfið og veldur
heilsufarsvandamálum þar sem ónæmiskerfið er
upptekið við að slást við eiturefnið sem sveppur-
inn sendir frá sér. En það kæmi mér ekkert á óvart
að þetta hangi saman því ónæmiskerfið er stórum
hluta staðsett í þörmunum og þarmaflóran hefur
áhrif á það. Ef hún er ekki góð er kerfið það ekki
og varnirnar síðri.“
Breyttur lífsstíll takk
Birna segir að þeir sem vilji losna við sveppasýk-
ingar þurfi að takast á við algjöra lífstílsbreytingu.
„Það þarf að breyta mataræði. Það þarf að taka út
sykur ger og hveiti – alla vega í einhvern tíma.
Og það þarf að byggja upp þarmaflór-
una með góðum gerlum. Fólk þarf
að borða mikið af grænmeti og
trefjum. Drekka vel af vatni,
hreyfa sig og stunda úti-
veru. Passa að ristill-
inn sé að hreinsa
sig. Svo er hægt
að nota jurtir
eins og hvít-
lauk, GSE,
ólívulauf til
að hreinsa
sveppinn
út. Það
er fullt af
ráðum;
sér-
blöndur og
annað.“
Hún segir einstaklings-
bundið hvort fólk geti hætt án
fyrirvara að borða sykur, ger og
hveiti. „En það þarf að hætta. Og á
sama tíma og sumir geta leyft sér að hætta
aðeins tímabundið verða aðrir alltaf viðkvæmir.
Þetta er tilraunavinna með hvern og einn, en því
minna af þessari fæðu því betra. Þó að þú takir
hana aldrei alla út líður þér samt betur,“ segir hún.
Sveppurinn heimtar sitt
„En þú viðheldur ástandinu með því að fá þér
sykur. Ef þú tekur þetta allt út er mjög líklegt að
þú náir að hreinsa sveppinn úr kerfinu. Þetta snýst
um tvennt. Annars vegar hreinsunina og hins
vegar að byggja upp góða flóru. Hún er vörnin
þín gegn sveppum. Hún ver líkamann fyrir því að
fá svona sveppi. Þetta snýst allt um tiltekt og að
halda uppi vörnum.“
Vakning. Síðustu fimmtán ár hefur athyglin
beinst meira að sveppasýkingu. „Ég man ekki
eftir manneskju sem finnur ekki mun á sér þegar
hún tekur út ger, sykur og hveiti, það er að segja
ef hún er með þannig einkenni,“ segir Birna. „En
það getur vel verið að fólk finni fyrir fráhvarfsein-
kennum og verði slappt í þrjá, fjóra daga, kannski
viku áður en því fer að líða betur, því þegar örver-
ur og lífverur eru sveltar verða þær argar og vilja
fá sitt. Svo drepast þær og fara út.“
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Birna Ásbjörnsdóttir, næringarþe-
rapisti og mastersnemi í næringar-
læknisfræði.
„Ég man ekki eftir manneskju sem
finnur ekki mun á sér þegar hún
tekur út ger, sykur og hveiti.“
10 úttekt Helgin 24.-26. ágúst 2012