Fréttatíminn - 24.08.2012, Side 16
ÓDÝRASTI
ÍSINN
Í BÓNUS
Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ EURO SHOPPER
VÖRUTEGUNDIR Í BOÐI
398 kr.
12 stk.
498 kr.
8 stk.
298 kr.
3 stk.
veig mín hefur verið að vinna sem
fararstjóri í Grikklandi frá því í
maí en kemur til baka í október.“
Bretar spenntir fyrir Íslandi
En hvernig kom það til að tvær ís-
lenskar konur opnuðu ferðaskrif-
stofu í London?
„Við Brynhildur Sverrisdóttir
kynntumst í gegnum Íslendinga-
samfélagið í London og eftir að
hafa unnið saman í alls konar
málum í samfélaginu, þá kviknaði
sú hugmynd að stofna ferðaskrif-
stofu sem sérhæfir sig eingöngu
í ferðum til Íslands og hugmyndir
að hlaupi á Íslandi komu vegna
þess að ég hef nánast stundað
hlaup alla ævi. Við höfðum báðar
verið að ráðleggja og taka með
okkur gesti heim til Íslands og
fannst þetta báðum frábær hug-
mynd. Það var síðan í byrjun
eldgoss í apríl 2010, þegar allar
flugsamgöngur lágu niðri um
allan heim sem við fengum ferða-
skrifstofuleyfið og stóðum í bás
á London á Maraþonsýningunni
og kynntum Ísland og í kringum
okkur voru tómir básar sýnenda
sem ekki komust vegna eldgoss-
ins. Við fengum því eldskírn!
Sumarið var rólegt en frá hausti
2010 hefur síminn ekki stoppað
og á okkar vegum hafa ferðast eða
bókað hjá okkur á annað þúsund
farþega. Við kynnum okkur á
netinu og tökum þátt í ferðasýn-
ingum og höfum einnig tekið þátt
í London maraþonsýningunni
þrisvar sinnum og kynnt Reykja-
víkurmaraþonið fyrir hönd þeirra.
Núna erum við einnig að fá gesti
sem hafa ferðast með okkur áður
og einnig margir sem koma í
gegnum vini og ættingja sem hafa
mælt með okkur.“
Hafa Bretar mikinn áhuga á Ís-
landi?
„Já, svo sannarlega! Bretar eru
mjög spenntir fyrir Íslandi og það
skemmtilega við Breta er líka það
að þeir skreppa mikið í stuttar
helgarferðir, svona þrjár til fjórar
nætur, sérstaklega yfir vetrartím-
ann. Þeir eru vitlausir í norður-
ljósaferðir, maður hefði ekki trúað
því að þetta væri svona vinsælt.
Að ferðast um Ísland í snjó og
frosti, lenda í brjáluðu veðri og
upplifa dimmuna og norðurljósin
er alveg einstakt, fólk kemur rosa-
lega ánægt heim eftir slíka ferð.
Slíkar ferðir eru númer eitt á lista
yfir mest seldu ferðirnar okkar,
veturinn er annatíminn hjá okkur
í All Iceland. Það varð mjög fljótt
þannig að við Brynhildur önn-
uðum þessu ekki tvær og í vetur,
þegar mest var, vorum við sjö
starfsmenn. Þann 1. ágúst opnaði
All Iceland annað útibú í Banda-
ríkjunum og stefnan er sett á enn
fleiri lönd.“
Eitt maraþon á dag í sjö daga
En þessar sérstöku hlaupaferðir?
Þú hefur komið til Íslands í sumar
til að taka þátt í hlaupi og á sunnu-
daginn leggið þið í 250 kílómetra
hlaup sem þið ætlið að hlaupa á
einni viku!
„Já, við höfum tengst alls konar
hlaupasamtökum og staðið fyrir
mörgum ferðum með ferðamenn
sem vilja hlaupa á Íslandi. Einn
umboðsmaður sem vinnur með
okkur í hlaupaferðunum sagði
okkur þegar hann kom fyrst inn á
skrifstofuna, að hann hefði tekið
þátt í Reykjavíkur-maraþoninu
árið 1985 og þá kynnst Íslending-
um. Við spurðum hann þá hverjir
það væru, þar sem allir þekkja
alla á Íslandi. Það skemmtilega
við það var að Brynhildur þekkti
þessa Íslandsvini vel – önnur var
skólasystir hennar og hin var dótt-
ir æskuvinkonu hennar. Svona er
nú heimurinn lítill!
En varðandi hlaupið sem hefst
á sunnudaginn. Það heitir „Fire
and Ice“ og er risa verkefni sem
við erum búin að vinna að í nærri
ár, en þar sem við erum búnar að
tengjast hlaupasamtökum þá frétt-
ist af okkur. Í fyrrahaust fórum
við í kynnisferð með hóp af Bret-
um sem langaði að koma á lengsta
hlaupi sem haldið hefur verið á Ís-
landi – það er að hlaupa yfir viku
tímabil eða um eitt maraþon á
dag! Ekki nóg með það, hlauparar
hlaupa með allan sinn varning,
eina sem þeir fá á þessari viku
er vatn og það er tjaldað fyrir þá
í lok dags. Þetta „pilot“ hlaup er
því að bresta á núna, en hlaupar-
arnir hlaupa frá Sigurðarskála í
Kverkfjöllum að Ásbyrgi og hefst
hlaupið 26. ágúst. Þar sem um
fyrsta atburðinn er að ræða, þá
er allt kapp lagt á að þetta takist
vel og enn fleiri taki þátt í þessum
viðburði að ári. Margir ofurhlaup-
arar á Íslandi hafa sagt við okkur
að þeir geti þetta ekki, en enginn
Íslendingur svo vitað sé hefur tek-
ið þátt í hlaupi af þessari tegund.
Ég hef hitt hlaupara, bæði konur
og karla, sem hafa bara hlaupið
tíu kílómetra og þótt gott! En þótt
þetta sé alltaf kallað hlaup þá er
algjör undantekning að hlauparar
hlaupi alltaf alla dagana. Það er
heldur ekki sá sem hleypur hrað-
ast sem sigrar í slíku hlaupi, því
undirbúningur og ákveðnin að
ljúka hlaupinu er það sem kemur
þeim í mark í lok sjöunda dags. –
Það er ýmislegt skemmtilegt sem
fylgir undirbúningi svona hlaups.
Þannig kynntist ég til dæmis
kærastanum mínum fyrir tíu
mánuðum þannig að ég er komin í
mark sjálf!“
Kanadíska sjónvarpið fylgir
hlaupurunum eftir
Nú skilst mér að það séu ein-
göngu útlendingar sem leggi í
þetta langa hlaup...
„Það var þannig, en það er
frábært að segja frá því að einn
Íslendingur tekur þátt í að hlaupa
alla vegalengdina og ein boðs-
hlaupssveit frá Íslandi einnig,
en síðan koma hlauparar frá
Kanada, Bandaríkjunum, Wales,
Englandi og Skotlandi. Það er
líka gaman að segja frá því – og
það geri ég sko stolt – að hópur
kvikmyndagerðarmanna frá Kan-
ada kemur einnig og þeir fylgja
tveimur hlaupurum eftir, en
þátturinn er einn af tíu í þáttaröð
þar sem þessir tveir hlauparar
taka þátt í alls kyns ofurþrautum
sem þessari í tíu ólíkum löndum.
Kvikmyndagerðarmennirnir
verða hér á landi í tvær vikur í
tengslum við hlaupið, hitta fjölda
Íslendinga sem þeir ætla að
kynnast og enda meira að segja
í pönnukökum hjá mömmu og
pabba!“
Þeir eru
vitlausir
í norður-
ljósaferðir,
maður hefði
ekki trúað
því að þetta
væri svona
vinsælt.
Hlaupið á sunnudaginn
heitir „Fire and Ice“ og
er risaverkefni.
16 viðtal Helgin 24.-26. ágúst 2012