Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 22
Njóttu gæðanna og bragðsins og kældu þig niður í leiðinni með hollustu.
Joger - hollur og góður og fæst víða.. Prófuaðu bara!
Dans Kynslóðabilið brúað á reyKjavíK Dans festivali í Hörpunni
Yngsti dansarinn nýfæddur – elsti 81 árs
Reykjavík Dance
festival er nú hafið
í Reykjavík í 10
skipti frá 2002
og í Hörpunni á
miðvikudag var
boðað til svokallaðs
Lunch Beat en sam-
kvæmt manifesto
viðburðarins er
fyrsta regla Lunch
Beat sú að ef þú ert
að koma í fyrsta
sinn á Lunch Beat:
Dansaðu! Og það
gerðu heilu kyn-
slóðirnar saman í
Norðurljósasal undir
dynjandi tónum
plötusnúðarins Atla
Bollasonar.
Þ etta var hörkufjör,“ sagði Margrét Eggerts-dóttir 81 árs dansari – sem telst hafa verið elsti dansarinn á Lunch Beat í Hörpunni á
miðvikudag en sá yngsti var rétt nýfæddur. Mar-
grét viðurkenndi samt að dans af þessu tagi sé nýr
fyrir sér, hún „dansaði hér á árum áður eins og fólk
dansaði þá.“
Lunch Beat er hluti af Reykjavík dans festival
sem nú er haldið í tíunda sinn og stendur yfir fram
í næstu viku. Næsta Lunch Beat er í hádeginu á
þriðjudag en þá geta allir mætt á Dansverkstæðið
Skúlagötu 30 og dansað – allir velkomnir og það
kostar ekkert inn.
Ókeypis inn á alla viðburði
Hægt er að nálgast upplýsingar um viðburði Reykja-
vík dans festivals á heimasíðu hátíðarinnar, www.
reykjavikdancefestival.is, en samkvæmt Tinnu Lind
Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra hátíðarinnar,
er ókeypis inn á alla atburði og sýningar. Hún segir
það part að stefnu hátíðarinnar að færa dansinn til
fólksins.
Um 30 listamenn koma að hátíðinni auk sjálfboða-
liða og eru flestar sýninganna á Dansverkstæðinu
að Skúlagötu 30. „Vinir og vandamenn hafa verið
einstaklega duglegir við að hjálpa okkur,“ útskýrir
Tinna en það er mikið utanumhald sem fylgir ókeyp-
is danshátíð. „Stundum hefur þetta svolítið verið
eins og að ganga í myrkri,“ heldur Tinna áfram en
vinnuaðferðin er óhefðbundin því allir listamennirn-
ir vinna að skipulagningu hátíðarinnar í sameiningu
og í ofanálag vilja aðstandendurnir að áhorfendur
séu meiri þáttakendur þannig að Reykjavík dans
festival er fyrst og síðast grasrótarhreyfing.
Allir út á gólf
Lunch Beat var haldið í fyrsta skipti nú í Reykjavík
en ævintýrið byrjaði sem lítil hugmynd hjá nokkrum
krökkum í Stokkhólmi fyrir tveimur árum. Upp-
runalega hugmyndin var sú að nýta hádegið til þess
að fá meiri orku fyrir daginn með því að dansa í
klukkutíma við dúndrandi tónlist. Síðan þá hefur
Lunch Beat verið haldið um allan heim og verður
eins og fyrr segir aftur í Reykjavík á þriðjudag.
Markmiðið er einfalt: Að allir geti tengst hver öðr-
um óháð þjóðerni eða aldri eða tungumáli í gegnum
sameiginlegt tungumál dansins. Þessi markmið
eru færð í orð í sérstöku manifesto sem birtist hér á
síðunni en útgangspunkturinn í því er að þú hefur
enga afsökun fyrir því að dansa ekki.
Elma Stefanía Ágústsdóttir
ristjorn@frettatiminn.is
Manifesto Lunch Beat
1. regla: Ef þú ert að koma í fyrsta skipti á Lunch
Beat, dansaðu.
2. regla: Ef þú ert að koma í annað, þriðja eða fjórða
skipti á Lunch Beat, dansaðu.
3. regla: Ef þú ert of þreytt/ur til að dansa á Lunch
Beat, borðaðu hádegismatinn annarsstaðar.
4. regla: Ekki tala um vinnuna á Lunch Beat.
5. regla: Það eru allir dansfélagar á Lunch Beat.
6. regla: Lunch Beat er aldrei lengra en 60 mínútur
og fer fram í hádeginu.
7. regla: Lunc Beat útvegar alltaf Dj-syrpu og máltíð
sem auðvelt er að taka með sér.
8. regla: Vatn er alltaf á boðstólunum án endur-
gjalds.
9. regla: Lunch Beat er helst vímulaust umhverfi.
10. regla: Lunch Beat má setja upp hvar sem er af
hverjum sem er svo framarlega sem það er auglýst
opið öllum, er ekki notað til fjáröflunar og þessum
reglum er fylgt.
Næsta Lunch
Beat er í hádeg-
inu á þriðjudag
en þá geta allir
mætt á Dans-
verkstæðið
Skúlagötu 30 og
dansað – allir
velkomnir og
það kostar ekk-
ert inn. Skipuleggjendur Reykjavík dans festival: Halla Ólafsdóttir og Emma Kim Hagdahl, liststrænir
stjórnendur, og Tinna Lind Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri hátíðarinnar.
Í Norðurljósasal Hörpu
á þriðjudag hafði enginn
afsökun til að dansa ekki.
22 dans Helgin 24.-26. ágúst 2012