Fréttatíminn - 24.08.2012, Side 32
2 námskeið kynningarblað Helgin 24.-26. ágúst 2012
Heimilisiðnaður spennandi námskeið í boði
d ale Carnegie fyrirtækið var stofnað tveimur árum áður en fyrri heimsstyrjöldin hófst og hefur því séð tímanna tvenna og segir Jón
Jósafat Björnsson, framkvæmdastjóri Dale Carnegie
á Íslandi, að öll sú reynsla sem þarna býr að baki hafi
nýst vel meðal annars við efnahagshrunið.
„Dale Carnegie fyrirtækið hélt ró sinni við efna-
hagshrunið, enda kom í ljós að veltan tvöfaldaðist
eftir hrun. Gildismat fólks breyttist og nú er fólk
að fjárfesta í þekkingu og tíma. Þar að auki breytt-
ust áskoranirnar á einni nóttu og allt í einu þurftu
til dæmis sölumenn í fyrirtækjum sem áður höfðu
setið við símann og gert lítið annað en að taka við
pöntunum að fara út og sækja viðskiptin, og til að
framkalla breytta hegðun þarf þjálfun. Einnig hefur
umbreytingin í íslenskum fyrirtækjum verið mikil
og erum við með ung stjórnendateymi sem þurfa
þjálfun.“ Jafnframt segir hann að slakinn í atvinnu-
lífinu gefi fólk tíma til að sækja námskeið og vitund-
arvakning sé hjá stéttarfélögum sem nú leggja aukið
fé í menntun.
Framakortið er skemmtileg nýjung í samsetningu
námskeiða hjá Dale Carnegie á Íslandi.
„Við höfðum velgengni leikhúskortanna til fyrir-
myndar, þar sem gömlu formi var pakkað í nýjan
búning fyrir nútímafólk. Og við hugsuðum hvort
ekki væri hægt að gera slíkt hið sama með menntun
eða símenntun. Með framakortinu er hægt að velja
þrjár 90 mínútna vinnustofur af 20 á hverju hausti og
vori fyrir 19.900 krónur. Vinnustofurnar geta tengst
starfinu þínu, eða einhverju sem kemur sér vel í dag-
legum samskiptum fólks. Þetta er gullið tækifæri
fyrir þá 20.000 manns sem útskrifast hafa af Dale
Carnegie námskeiðum að bæta örlitlu við sig eða
leið fyrir þá sem vilja kynna sér starfið án mikillar
skuldbindingar.“
Annað forvitnilegt í starfi Dale Carnegie á Íslandi
er rannsókn sem unnin var í samstarfi við rann-
sóknarfyrirtæki hérlendis um virkni og hollustu
starfsmanna.
„Dale Carnegie í Bretlandi kynnti skýrslu þar
sem mæld voru áhrif kreppunar í Bretlandi. Niður-
staðan í fáum orðum var sú að fólk á vinnumarkaði
hafði verið mjög virkt í starf, þ.e.a.s sýnt frumkvæði,
tekið virkan þátt, sýnt hollustu og lagt sig fram við
að skila góðu verki, hafði fækkað verulega. Ástæðan
er talin vera sú að í kreppuástandi verður fólk hrætt
um stöðu sína og lætur því minna fyrir sér fara og
tekur ekki eins virkan þátt, meðal annars af ótta við
að gera mistök ef það lætur of mikið í sér heyra og
ógni þannig stöðu sinni. Okkar niðurstaða er sú að
38% prósent af íslensku starfsfólki er virkt í starfi
og 19% sýnir litla sem enga virkni. Þeir sem voru
óvirkir voru yfirleitt fólkið sem svaraði því í könn-
unni að það væri óánægt í starfi og væri að hugsa
um að hætta. Hinn hlutinn af fólkinu var fólk sem
var hvorki virkt, né óvirkt, heldur gerði akkúrat það
sem er ætlast til af því og ekkert meira en það,“ segir
Jón Jósafat.
Hann segir markmið Dale Carnegie er að virkja
fólk, vegna þess að allir geta gert miklu meira. „Sög-
ur af velgengni eru hér í þúsundatali af fólki sem er
að láta draumana rætast. Dale Carnegie eru í raun
æfingabúðir til að koma sér upp nýjum venjum.“
dale Carnegie 100 ára afmæli
Sögur af velgengni í þúsundatali
Dale Carnegie þjálfun fagnar 100 ára afmæli á þessu ári og eru
aðferðirnar sem beitt er við þjálfunina nýttar í 86 löndum. Aðferð-
irnar sem eru margreyndar og byggðar á traustum grunni eru sífelldri
endurskoðun og bættar með hverju árinu sem líður sem er sennilega
ein ástæða þess að það hefur staðið traustum fótum í eina öld.
Gildis-
mat fólks
breyttist
og nú er
fólk að
fjárfesta í
þekkingu
og tíma.
Jón Jósafat Björnsson, framkvæmdastjóri Dale Carnegie.
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
H eimilisiðnaðar-félag Íslands býður upp á
fjöldann allan af nám-
skeiðum komandi vetur
að vanda, jafnt vinsæl
námskeið á borð við
þjóðbúninganámskeið
sem og spennandi nýj-
ungar. Námskeiðin eru
fyrir fólk á öllum aldri,
börn sem fullorðna,
byrjendur sem lengra
komna.
Meðal þeirra nám-
skeiða sem standa börn-
um til boða eru nám-
skeið í prjóni og tálgun.
Solveig Theodórsdóttir,
formaður Heimilisiðn-
aðarfélagsins, segir
bæði námskeiðin mjög
vinsæl hjá börnunum.
„Á námskeiði í tálgun
læra börn að fara með
hnífa og grunnatriði í
tálgun. Þau geta komið
með hráefni sem þau
hafa sjálf fundið í nátt-
úrunni, sem þeim finnst
mjög spennandi,“ segir
Solveig.
„Þjóðbúninganám-
skeiðin okkar eru sí-
vinsæl sem og nám-
skeið í faldbúningagerð
og gerð barnabúninga.
Þess má geta að á þjóð-
búninganámskeiðunum
fá nemendur búninginn
klæðskerasniðinn fyrir
hvern og einn og er það
innifalið í námskeiðs-
gjaldinu,“ segir Solveig.
Einnig eru í boði
námskeið fyrir þá sem
þegar eiga þjóðbúning
en langar að sauma nýja
skyrtu eða svuntu, og
einnig námskeið í fald-
búningagerð.
Að sögn Solveigar er
námskeið í gerð skírnar-
kjóla mjög vinsælt og
boðið verður upp á það í
vetur. „Þetta eru oft sér-
staklega fallegir kjólar
sem eru jafnvel útbró-
deraðir,“ segir Solveig.
Einnig verður boðið
upp á stutt námskeið
þar sem kennt verður
hvernig sauma má nöfn
í skírnarkjóla.
Þá verður nýtt nám-
skeið í boði þar sem
kenndur verður frjáls
útsaumur. „Kenndar
verða nokkrar útsaums-
aðferðir og nemandinn
vinnur úr þeim nála-
púða eða nálabók.“
„Orkering er mjög
vinsæl um þessar
mundir og kennum við
að orkera skyttur þar
sem eru búnar til blúnd-
ur sem eru til dæmis
mikið notaðar í skart-
gripi. Hægt er að setja á
þær perlur og ýmislegt
annað fallegt,“ segir
Solveig jafnframt.
„Síðan munum við
kynna nýja gerð af
vefnaði, salúnsvefnaði
og verðum með nám-
skeið undir yfirskrift-
inni Salún á nýjan máta.
Þar læra nemendur að
setja salúnsvefnað upp í
stól og fá einnig innsýn
á notkun á tölvuforriti
fyrir vefnað sem ekki
hefur verið kennt áður
hjá okkur. Með því geta
nemendur séð í litum og
formi hvernig tilbúinn
vefurinn muni líta út,“
segir Solveig.
Þjóðbúninganám-
skeiðin sívinsæl
Guðbjörg Hrafnsdóttir og Solveig Theodórsdóttir við gínur klæddar þjóðbúningum.