Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 35
Helgin 24.-26. ágúst 2012 kynningarblað námskeið 5
Námskeið NLP
N LP Practitoner Coach nám er nám þar sem við verðum upplýstari um samskipti okkar og lærum ýmsar að-
ferðir til að breyta þeim og bæta. Við lærum
jafnframt um eigin hugsunarhátt, um með-
vituð og ómeðvituð mynstur og um hvað við
getum gert til að jafnvægisstilla okkur þegar
þörf er á. Við munum vinna með stefnumótun
og markmiðasetningu og læra að nota grunn
NLP-coaching verkfæri. Í stuttu máli munt þú
fá möguleika til að taka stórt skref í persónu-
legri þróun, stjórna lífi þínu í þá átt sem þú
óskar og tileinka þér nýja færni í samskiptum
þínum. Náminu lýkur með stöðumati, skrif-
legu og verklegu og fá nemendur diplómu
sem NLP Practitioner – Coach við staðið mat.
NLP Practitioner diplóma veitir aðgang að
næsta þrepi sem er: NLP-Master Practitioner
Coach þar sem farið er enn dýpra í æfingarn-
ar og þær tengdar við nýja tækni sem byggir
á meiri þjálfun til að aðstoða og Coacha aðra.
Fleiri verkefni og viðtalsþjálfun eru hluti af
Master þrepinu og lýkur því námi eins og
Practitoner með skriflegu og verklegu mati
ásamt 30 þjálfunartímum og verkefni.
Hvert nám fyrir sig tekur 120 kennslu-
stundir og er kennt í 4 - 5 lotum, 3 - 4 daga í
senn, tengt helgum.
Námsefnið er upprunalega frá NLP- Hús-
inu í Kaupmannahöfn og er þýtt á íslensku
með leyfi. Bruen stendur fyrir NLP námi
sem fylgir þeim kröfum og stöðlum sem gerð-
ar eru á alþjóða vettvangi.
Kennari er Hrefna Birgitta Bjarnadóttir
sem er alþjóðlega viðurkenndur NLP-En-
neagram kennari, HR-Coach, meðhöndlari
og starfsþróunarþjálfi. Hún hefur áratuga
reynslu af kennslu og námskeiðahaldi fyrir
einstaklinga, fyrirtæki og hið opinbera í Nor-
egi, Danmörku og á Íslandi. Hún hefur kennt
NLP nám síðan 2000 auk þess sem hún hefur
sett upp fjölda námskeiða byggð á hugmynda-
fræði NLP og Coaching og má þar nefna hið
skilvirka námskeið BTM/ Breytingar - Tæki-
færi - Markmið, en það hefur í 12 ár verið til-
boð til atvinnuleitenda og fólks á krossgötum
í þremur löndum. BTM mun frá nóvember
einnig vera í boði fyrir almenning hér á landi
og í Færeyjum.
Hrefna segir um sín fyrstu kynni af NLP:
Ég bjó í Noregi og stóð á krossgötum í lífinu
þar sem ég hafði gengist undir tvær aðgerðir
á baki og gat ekki lengur unnið við það sem
ég var menntuð til. Ég var ráðvillt og vissi
eiginlega ekki hvað ég gæti tekið mér fyrir
hendur úr því sem komið var... ég rakst þá
á auglýsingu um NLP nám sem var að fara
af stað í fyrsta skipti í Noregi. Ekki vissi ég
neitt hvað þetta NLP var og varð litlu nær
þegar ég talaði við kennarann, en ég fór af
stað og var sú fyrsta sem útskrifaðist sem
NLP Practitioner í norskum NLP skóla. Það
er skemmst frá því að segja að ég var komin
á rétta hillu... fór í framhaldsnám í NLP-húsið
í Kaupmannahöfn, tók alþjóðleg kennslurétt-
indi, meðhöndlarapróf, HR- Coach, Enneag-
ram kennsluréttindi og starfsþróunarráð-
gjöf... og enn mun ég vinna að því að bæta
við mig þar sem NLP er í stöðugri þróun.
NLP er upprunnið frá Bandaríkjunum þar
sem upphafsmenn þess, Bandler og Grinder,
hófu þróun þess í kringum 1972 og má segja
að NLP hafi bara vaxið og þróast síðan þá.
Þegar ég hóf mitt NLP nám hjá NLP-Hús-
inu, árið 1997, voru Danir komnir vel af stað
með sína NLP þróun og margir af meðstúd-
entum mínum voru sendir í NLP nám af fyr-
irtækjunum sem þeir unnu hjá. Ég hef frá
þeim tíma verið við nám í NLP-húsinu og það
verður að segjast að það er mikið vatn runnið
til sjávar á 15 árum.
Í Noregi og Danmörku hefur NLP-Coach-
ing, sem og annars staðar í heiminum, rutt
sér til rúms sem eitt virkasta „verkfæri“ fyrir
breytingaferli og stefnumótun hvers konar.
Stjórnendur og fyrirtæki eru farin að nota
í enn ríkari mæli stjórnendastíl þann sem
hugmyndafræði NLP-Coaching fjallar um.
Ég fluttist til Íslands á ný í september 2011
og er hugsjón mín nú að byggja upp og kenna
NL-coaching fræðin á Íslandi þannig að enn
fleiri fái að njóta þess að gera þær breytingar
sem þeir óska á einfaldan og áhrifaríkan hátt.
Ég mun á næsta ári tengja starfsemi Bruen
við erlenda aðila og bjóða þá styttri námskeið
og ferðir til meðal annars Færeyja og Kýpur...
NLP Practitoner Coach námið hefst 6.
september 2012 og NLP Master námið 11.
október. Kynningarfundur um NLP námið og
starfsemi Bruen verður mánudaginn 3. sept-
ember klukkan 17.30 í Bústaðakirkju (þar
sem bókasafnið var, Bústaðavegsmegin)
Á heimasíðu minni www.bruen.is <http://
www.bruen.is> má lesa enn meira um NLP-
Coaching og annað það sem Bruen býður upp
á og einnig má hringja í mig í síma 899 1939
og fá upplýsingar eða skrá sig í námið.
Hvað er NLP / Neuro Lingvistisk Pro-
grammering?
Neuro... - Af því það fjallar um samhengi
milli taugabrauta, þau áhrif sem berast
gegnum skynfærin 5 og það hvernig við
vistum þessi áhrif í heilanum.
Lingvistisk... - Vegna þess að það fjallar
um samhengi milli skynfæranna og máls-
ins (tjáningar) og hvernig við með orðum
og málnotkun höfum áhrif á hugsanir
okkar og annarra.
Programmering... - Af því að við eigin-
lega „prógrammerum“ okkur sjálf til að
vera annað hvort sterk og úrræðagóð eða
orkulaus, glöð eða leið og svo framvegis.
Og af því að við með einföldum aðferðum
getum lært að „umprógrammera“ okkur
sjálf til að ná óskaðri breytingu.
Meira um NLP, Coaching, nám, námskeið og
önnur tilboð er að finna á heimasíðu Bruen,
www.bruen.is <http://www.bruen.is> eða í
síma 899 1939, Hrefna Birgitta.
Sveigjanlegt fólk og fyrirtæki eru skrefi framar
Bruen býður upp á NLP-Practitioner Coach og NLP Master Coach nám í haust
undir handleiðslu Hrefnu Birgittu Bjarnadóttur sem er alþjóðlega vottaður NLP-
Enneagram kennari, HR- Coach, meðhöndlari og starfsþróunarþjálfi.
Hrefna Birgitta Bjarnadóttir.
eNdurmeNNtuN Haustmisseri eNdurmeNNtuNar HáskóLa ÍsLaNds
Leitað til þeirra bestu – kennara Harvard
Haustmisserið
er að hefjast
hjá Endur-
menntun Há-
skóla Íslands
og að vanda
er margt
spennandi í
boði. Hæst ber
koma þriggja
sérfræðinga
frá Harvard,
einum virtasta
háskóla heims,
sem munu
halda nám-
skeið í stjórn-
un, samn-
ingafærni og
upplýsinga-
tækni. Þetta
eru námskeið
sem haldin
hafa verið við
endurmennt-
unardeild
Harvard við
góðan orðstír.
V
ið höfum ávallt verið
með mikið framboð nám-
skeiða fyrir stjórn endur
en í ár vildum við auka
það enn frekar og það
gerum við með að leita til þeirra bestu,
kennara í Harvardháskóla. Háskólinn
er þekktur víða um heim og er það því
mikill fengur fyrir Endurmenntun Há-
skóla Íslands að fá þessa kennara til
liðs við sig. Við hlökkum mikið til að
fá þær til landsins,“ segir Thelma Jóns-
dóttir, markaðs- og kynningarstjóri
Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Kennararnir sem um ræðir eru Marg-
aret Andrews, aðstoðardeildarforseti á
sviði stjórnunar við Harvard Exten-
sion, sem hefur að auki langa reynslu
af kennslu og stjórnun við bestu há-
skóla Bandaríkjanna, Diana Buttu,
lögfræðingur og Harvard kennari,
sem er jafnframt eftirsóttur álitsgjafi í
bandarískum fjölmiðlum, og dr. Zoya
Kinstler, sérfræðingur í upplýsinga-
tæknilausnum og kennari við Har-
vard, sem situr jafnframt í deildarráði
við skólann. Hún hefur einnig 20 ára
reynslu í verkefnum á sviði upplýsinga-
og samskiptatækni í stórfyrirtækjum.
„Mikill áhugi er á þessum námskeið-
um og stefnir í að færri komast að en
vilja. Við göngum þó út frá því að þetta
samstarf eigi eftir að halda áfram og
að fleiri námskeið verði í boði næstu
misserin,“ segir Thelma.
Skrautfjaðrirnar eru fleiri í nám-
skeiðaframboði Endurmenntunar HÍ
þar sem hátt í 200 námskeið eru á dag-
skrá og skiptast þau niður á 12 mis-
mundandi fagsvið.
„Okkur er fátt óviðkomandi og
leggjum við netin víða og fylgjumst
vel með. Samstarf við fagfélög og
fyrirtæki skipta miklu máli þar sem
okkar hlutverk er meðal annars að
efla hæfni og þekkingu fólks í atvinnu-
lífinu. Við erum til dæmis sífellt að
auka námskeiðaframboð á uppeldis-
og kennslusviði og vinnum þá með
fagfélögum á því sviði og greinum
þarfir og áherslur. Á haustmisseri eru
t.a.m. fjölmörg námskeið á uppeldis-
og kennslusviði í boði á fjarfundi sem
þjóna landsbyggðinni sérstaklega.“
Menningarnámskeið og Persónuleg
færni eru námsflokkar sem njóta ætíð
mikilla vinsælda hjá Endurmenntun
HÍ. „Það er ákveðinn hópur fólks
sem bíður þess á hverju misseri með
eftirvæntingu að námsbæklingurinn
okkar komi út og velur sér spenn-
andi námskeið. Þetta eru námskeið
sem eru hugsuð til að auka fróðleik
og skemmta. Meðal spennandi nám-
skeiða í vetur verða Íslendingasög-
unámskeiðin sem hafa verið vinsæl í
yfir 20 ár, Fótbolti, svikráð og pólítík
sem Stefán Pálsson sagnfræðingur
kennir, námskeið um Louis Arms-
trong sem Sigurður Flosason leiðir
og mörg fleiri. Það er alltaf eitthvað
spennandi í gangi hjá okkur,“ segir
Thelma.
Samstarf við
fagfélög og
fyrirtæki skipta
miklu máli
þar sem okkar
hlutverk er
meðal annars
að efla hæfni
og þekkingu
fólks í atvinnu-
lífinu.
Thelma Jónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands.