Fréttatíminn - 24.08.2012, Blaðsíða 38
Í haust bjóðum við upp á 21 námskeið fyrir alla sem hafa náð 4. ára aldri og
upp úr. World Class stöðvarnar
eru nú tíu talsins á höfuðborg-
arsvæðinu og er dansskólinn
starfræktur í fimm þeirra, þ.e.
Laugum, Mosfellsbæ, Seltjarn-
arnesi, Spöng í Grafarvogi og
Ögurhvarfi í Kópavogi. Kenn-
arar eru 13 talsins svo um-
fangið er mikið,“ segir Stella
Rósenkranz, deildarstjóri hjá
Dansstúdíói World Class.
„Undanfarið hefur verið
mikil uppbygging í grunnflokkum hjá okkur, þ.e. í ald-
ursflokkum frá 4-12 ára. Ekkert lát er heldur á áhuga
hjá grunn- og framhaldsskólanemum svo starfið í heild
sinni verður allt að teljast til þess að vera það helsta hjá
okkur í vetur. Það er ýmislegt í boði og allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Stella um helstu nám-
skeiðin í vetur.
Af helstu nýjungum í vetur nefnir Stella að í haust
verður aftur boðið upp á 20 plús námskeið með einum
af vinsælustu kennurunum stúdíósins, Helgu Björns-
dóttur. „Þetta er stelputími og ég hvet allar stelpur sem
hafa dansað áður eða langar til þess að dansa til þess að
prófa. Þetta er tækifæri til þess að koma sér í form með
því að gera góða upphitun með styrktar- og teygjuæf-
ingum og dansa. Tímarnir eru byggðir upp sem hefð-
bundnir danstímar en eru ekki of erfiðir. Alltaf er dansað
við nýjustu tónlistina, það þykir nemendum okkar skipta
máli. Ekki má gleyma því að líkamsræktarkort fylgir
frítt við skráningu, gildir það í 12 vikur og veitir fullan
aðgang að öllum líkamsræktarstöðvum World Class á
höfuðborgarsvæðinu.“
Verða einhverjir gestakennarar hjá ykkur í vetur?
„Já, í fyrsta skipti í vetur gefst nemendum okkar
möguleiki á að æfa þrisvar í viku með því að bæta við
sig valtíma. Valtímar eru kenndir af gestakennurum sem
er sérhæfðir í ákveðnum dansstílum. Kennt verður Acro
Tricks, Contemporary, Hip
Hop, House, Locking, Modern
og samkvæmdisdans, svo eitt-
hvað sé nefnt. Kennarar munu
fara með nemendum í sögu
dansstílsins, tækniæfingar
og samsetningar á dansspor-
um í formi dansrútínu. Kenn-
ari í fyrsta tímanum er Ásgeir
Helgi Magnússon úr Íslenska
dansflokknum, svo þetta er
mjög spennandi námskeið.“
Aðspurð um hvert verði
heitasta námskeiðið í vetur
segir Stella: „16 plús nám-
skeiðið er alltaf fjölmennur tími og stemningin í þeim
tíma minnir mig alltaf á danstímana sem ég sæki er-
lendis. Mér líður oft eins og ég sé í danstímum úti í þeim
tíma, ólýsanlega gaman! Það er ákveðin orka sem á sér
stað þegar dansarar hvetja hvern annan áfram, tónlistin
er í botni, allir sveittir og einbeittir en samt svo ótrúlega
glaðir. Þetta er það sem dansinn snýst um fyrir mig,
það er að deila danslistinni og þeirri ástríðu sem ég hef
fyrir þeirri list með öðrum. Ég hef einnig mikla trú á að
valtíminn fyllist strax enda tækifæri sem dansþyrstir
dansarar láta ekki fram hjá sér fara.“
Námskeiðin hefjast 10. september og spanna 12 vikur.
Skráning er hafin rafrænt á heimasíðu World Class og í
afgreiðslu þeirra stöðva þar sem dansstúdíóið er starf-
rækt. Einnig er hægt að hringja í stöðvar World Class
í síma 553 0000.
„Það eru ýmsir viðburðir tengdir starfi skólans á
haustönn,“ segir Stella. „Dansbikarkeppnin fer fram í
Tjarnarbíói þann 3. nóvember, en þar gefst nemendum
tækifæri til þess að semja sitt eigið dansatriði og nýta
sér það sem þau hafa lært í túlkun, tjáningu og fram-
komu. Jólasýningar í öllum hópum fyrir jólin og svo
framvegis. Ég hvet alla til þess að kynna sér uppfærðan
upplýsingavef dansskólans á heimasíðu World Class, þar
er allar upplýsingar að finna. Einnig er hægt að finna
okkur á Facebook.“
8 námskeið kynningarblað Helgin 24.-26. ágúst 2012
Flest stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku á námskeiðum okkar
Dansnámskeið DansstúDÍó WorlD Class
Dansskóli World Class er starfræktur í fimm af tíu
stöðvum World Class.
Ástríðu fyrir danslistinni deilt
É g hef margsinnis verið spurður að því á námskeið-um hjá mér af hverju þessi
hraðlestaraðferð sé ekki kennd í
skólum. Ein ástæðan er sennilega
sú að ekki hefur verið til náms-
efni á íslensku í hraðlestri en með
þessari ritröð stendur til að bæta
úr því,“ segir Jón Vigfús.
Fyrsta bókin sem er væntanleg
á haustdögum er hraðlestur fyrir
10 til 12 ára, en þar
næst kemur út bókin
Hraðlestur fyrir alla
og í framhaldi af munu
bækurnar taka á sér-
tæku efni, til dæmis
hraðlestur í námi, á
vinnustað eða hrað-
lestur skáldsögu.
„Upprunalega hug-
myndin var sú að búa
til kennsluefni fyrir
skóla og er fyrsta bók-
in unnin í samstarfi
við grunnskólakenn-
ara. En bækurnar eru
þannig uppbyggðar að
fólk getur nýtt sér þær
utan skóla,“ segir Jón
Vigfús en bætir við að
bókunum fylgi kenn-
arabók sem nýtt er við
kennslu.
Hraðlestur er aðferð
sem notuð hefur verið
í tugi ára með góðum
árangri og kennd hér-
lendis á fjórða tug ára.
En hvað er hraðlestur?
„Verið er að uppfæra
gömlu góðu lestrar-
tæknina sem við
lærðum í skóla. Við
þurfum að uppfæra
lestarvenjurnar, eins
og aðrar venjur. Flestir
lesa eins og þeir lærðu
að lesa þegar þeir voru sex eða
átta ára gamlir og hafa lítið sem
ekkert uppfært tæknina. Það má
líkja þessu við hlaupara sem ætlar
sér að komast á ólympíuleikana en
myndi enn beita sömu hlaupaað-
ferðum og þegar hann lærði að
hlaupa, það segir sig sjálft að hann
myndi aldrei ná neinum almenni-
legum hraða,“ segir Jón Vigfús.
Með þjálfun og réttri tækni er
hægt að þjálfa og auka lestarhrað-
ann og bæta færni.
„Þetta er ekki flókin tækni,
nota þarf augun og hugann aðeins
hraðar. Venjurnar sem við erum að
laga eru þær að heyra öll orð upp-
hátt í huganum sem við lesum og
er nauðsynlegt þegar við erum að
læra að lesa. En smám saman för-
um við að þekkja orðin eins og þau
koma fyrir og engin þörf á að lesa
hvern staf fyrir sig, heldur er nóg
að sjá orðin til að þekkja þau. Við
getum lesið mikið hraðar, því bæði
heilinn og augun ráða vel við aukin
lestarhraða og það sem meira er,
þau vilja lesa hraðar. Einbeitingar-
leysi má oft rekja
til þess að við erum
að draga úr hrað-
anum ef við höldum í
gamlar venjur og þá
vill hugurinn gera
eitthvað annað og
hann reikar,“ segir
Jón Vigfús og nefnir
að hluti af hraðlest-
arþjálfun felst í því
að kenna augunum
að renna í gegnum
textann án þess að
stökkva til baka til
að lesa eitthvað sem
við teljum okkur
hafa misst af.
„Þegar augun
stökkva til baka,
tefur það okkur
gríðarlega í lestri.
Ef við hins vegar
leiðum augun áfram
þá hefur það sýnt sig
að þessi stökk hætta
jafnvel alveg og
hraðinn verður jafn-
ari og auðveldara að
keyra hann upp.“
Lestur er sívax-
andi hluti af starfi
fólks og finnur Jón
Vigfús fyrir því.
Hluti af hraðlest-
arnámskeiðum hjá
Hraðlestarskólanum
hafa að miklu leyti tengst námi og
þeim fylgir kennsla í námstækni
en atvinnulífið er ekki að sækjast
eftir því.
„Ein af þeim bókum sem von er
á fjallar um hraðlestur á vinnu-
stað og í kjölfarið verðum við með
námskeið í samstarfi við Fyrir-
tækjaskólann. Mikið er um að fólk
þurfi að lesa talsvert í starfi, tölvu-
póst, skýrslur, greinar og fleira.
Stjórnendur á vinnustað þar sem
starfsfólk hefur hlotið þjálfun í
hraðlestri tala um að fundir verða
markvissari þar sem allir hafa haft
tök á að kynna sér lesefnið fyrir
fundinn.“
Við þurfum að
uppfæra lest-
arvenjurnar,
eins og aðrar
venjur. Flestir
lesa eins og
þeir lærðu
að lesa þegar
þeir voru sex
eða átta ára
gamlir og hafa
lítið sem ekk-
ert uppfært
tæknina.
Hraðlestur laga þarf lestrarvenjurnar
Augun og hugurinn
vilja fara hraðar yfir
Með haustinu er von á fyrstu bókinni í nýrri ritröð um hraðlestur
sem gefin er út af Hraðlestarskólanum. Höfundur bókanna, Jón
Vigfús Bjarnason, er jafnframt skólastjóri og aðalkennari Hrað-
lestrarskólans sem hefur verið starfræktur á Íslandi í 34 ár.