Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 58
46 bíó Helgin 24.-26. ágúst 2012
Hann
er með
frábært
hlutverk.
Eitt best
skrifaða
hlut-
verkið í
mynd-
inni
vegna
þess að
Sly skrif-
ar mjög
góð ill-
menni.
Frumsýndar The expendables 2 harðjaxlar sameinasT
s ylvester Stallone kann allar helstu þumalputtareglur um framhaldsmynd-ir þannig að The Expendables 2 er öll
stærri í sniðum en sú fyrri. Rambo drap til
dæmis aðeins einn mann í First Blood en ekki
er vinnandi vegur að hafa tölu á þeim sem hetj-
an slátraði í Rambo: First Blood Part II, Rambo
III og sjálfsagt drap hann fleiri í fjórðu mynd-
inni, John Rambo, en í öllum hinum til samans.
Harðjaxlahersingin sem Stallone tefldi fram
í The Expendables hefur nú verði stækkuð og
þétt til muna. Allir snúa þeir aftur úr fyrstu
myndinni nema Mickey Rourke og þáttur
Bruce Willis og Arnolds Schwarzeneggers
er mun meiri að þessu sinni og báðir blanda
þeir sér í blóðuga bardaga. Mestu tíðindin og
fagnaðarefnið fyrir gamalreynda harðhausa-
aðdáendur felast síðan að sjálfsögðu í því að
guðfaðir mynda af þessu tagi, sjálfur Chuck
Norris, mætir til leiks og sallar andstæðinga
Expendables-gengisins eins og hann hafi rétt
lagt frá sér vélbyssuna í Missing in Action 2 í
gær en ekki árið 1985.
Annar hálf útbrunninn slagsmálahundur,
Jean Claude Van Damme, bætist einnig í
hópinn. Að vísu hinum megin við víglínuna
þar sem hann leikur höfuðandstæðing strák-
anna okkar. Hryðjuverkamanninn Jean Vilain
(Stallone er ekkert að grínast með nöfnin á
skúrkunum sínum). Vilain þessi drepur einn
úr málaliðagenginu og er þar að auki að koma
klónum í óhóflegt magn af plútóni. Stallone og
félagar mega því til með að ganga milli bols
og höfuðs á Vilain. Fyrst og fremst til þess að
uppfylla hefndarskyldur sínar en þá munar
að sjálfsögðu ekkert um að bjarga heiminum
í leiðinni. Enda hafa þeir Sly, Arnold og Will-
is bjargað mannkyni svo oft, einir síns liðs, í
gegnum áratugina að einn belgískur brjálæð-
ingur getur varla verið of stór biti.
Sænska vöðvatröllið og gáfnaljósið Dolph
Lundgren hefur mesta reynslu þeirra úr
Expendables-hópnum af því að kljást við Van
Damme en þeir elduðu grátt silfur í Universal
Soldier árið 1992. Þá var Van Damme að vísu
góði gæinn en Dolph illmennið og var slíkt
óféti að hann gerði sér hálsfesti úr afskornum
eyrum fórnarlamba sinna.
Lundgren segir viðsnúninginn í The Exp-
endables 2 áhugaverðan. „Hann er með frá-
bært hlutverk. Eitt best skrifaða hlutverkið í
myndinni vegna þess að Sly skrifar mjög góð
illmenni,“ sagði Lundgren í viðtali við Empire
nýlega. „Hann slær hvergi af og gerir þá mjög
vonda. Sem er miklu betra en að gera einhverja
hálfdrættings skúrka eins og gert er í sumum
myndum.“
Lundren og Stallone eiga sér svo vitaskuld
líka langa sögu en Stallone gerði Svíann heims-
frægan með Rocky IV 1985 þegar Lundgren
lék Rússann Ivan Drago sem Rocky þurfti í
nafni hins frjálsa heims að berja í gólfið í box-
hringnum.
Lundgren var óumdeildur senuþjófur The
Expendables í hlutverki leyniskyttunnar
Gunner Jensen (Stallone er alvara með þessi
nöfn). Gunner reyndist fíkill og fyllibytta og
sveik félaga sína eftirminnilega í fyrstu mynd-
inni. Leikarinn er ekki alveg jafn hress með
hversu lítil tilþrif hann fær að sýna að þessu
sinni.
„Þetta er öðruvísi fyrir mig núna vegna þess
að persónan mín var mjög áhugaverð í fyrri
myndinni,“ sagði Lundgren í vefvarpi Empire
nýlega. „Hann fór frá því að vera góður gaur
yfir í að vera skúrkur, yfir í að vera dauður og
svo aftur lifandi. Í Expendables 2 er ég bara
einn af hópnum. Að gera það sem The Exp-
endables gera.“
Lundgren leist ekki vel á handrit The Exp-
endables 2 í upphafi og féllst ekki á að vera
með fyrr en Stallone var búinn að gera breyt-
ingar og gera Gunner dálítið bilaðan, líkt og
í fyrri myndinni. En er þá hægt að treysta
Gunner núna? „Svona meira eða minna. Í það
minnsta þangað til hann kemst í áfengi, “ segir
Lundgren og hlær.
Aðrir miðlar: Imdb:7.7, Rotten Tomatoes:68%,
Metacritic:51%
Sylvester Stallone hefur hnyklað vöðvana í ófáum harðhausamyndum. Á níunda áratugnum voru
hann og Arnold Schawarzenegger höfuðpáfar ofbeldismynda þar sem ekki þótti annað boðlegt
en að sálga í kringum tvö hundruð illmennum í hverri mynd. Árið 2010 smalaði Stallone saman
harðjöxlum í hasarveisluna The Expendables. Svo vel tókst til að ekki kom annað til greina en að
slá saman í annað partí og draga fleiri fortíðarkempur fram í The Expendables 2.
Þórarinn
Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
The Babymakers er gamanmynd um
hamingjusöm hjón sem telja sig komin á
þann stað í lífinu og sambandinu að rétt
sé að fara að huga að fjölgun mannkyns.
Sama hvað þau reyna gengur hvorki né
rekur og að lokum kemur í ljós að sæðis-
frumur eiginmannsins eru latar og nánast
ósyndar.
Karlinn hafði þó af rælni gefið sæði í
sæðisbanka fimm árum áður og þar sem
flest bendir til þess að sæðið sem lagt var
inn sé öllu sprækara en það sem framleitt
er núna freistar hann þess að endurheimta
innlegg sitt.
Illu heilli er aðeins einn skammtur af
sæði mannsins eftir í bankanum og það
sem verra er þá er sá skammtur pantaður
þannig að góð ráð eru dýr. Félagi hans
stingur upp á því að þeir ræði bankann en
okkar maður er tvístígandi enda getur hann
frekar hugsað sér barnleysi en að dvelja
bak við lás og slá.
Þegar indverskur mafíósi, sem kann ýmis-
legt fyrir sér í afbrotum, blandast í málið
virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að láta
slag standa og ballið byrjar fyrir alvöru.
Aðrir miðlar: Imdb:4.2, Rotten Tomato-
es:10%, Metacritic:30%
Örvæntingarfullt sæðisbankarán
andláT meisTari hasarmyndanna kveður
Anthony Scott (1944-2012)
Verður jafn eftirminnileg
og Evil Dead
Leikarinn Bruce Campell sem fór á sínum
tíma á kostum í Evil Dead-myndum Sam
Raimi er framleiðandi nýrrar endurgerðar
þessarar sígildu splatter-myndar. Hann
hefur nú stigið fram og reynt að róa æsta
aðdáendur frummyndarinnar með því að
lofa þeim að endurgerðin muni ekki gefa
þeirri gömlu neitt eftir.
„Við erum mjög spenntir og stöndum
heilshugar að baki myndinni en það mun
taka á að fá Evil Dead-aðdáendur til þess
að gera slíkt hið sama. Við erum með-
vitaðir um að við höfum móðgað marga
þeirra og við sýnum reiði þeirra og ákafa
skilning. En við viljum leggja áherslu á að
við klúðruðum þessu ekki. Þessi mynd
verður alveg jafn eftirminnileg og Evil
Dead án þess að um sömu mynd sé að
ræða,“ segir Campell og bætir við að brell-
urnar núna séu miklu betri en þeir félagar
höfðu yfir að ráða árið 1979 auk þess sem
nýju leikararnir séu betri en hann og mót-
leikarar hans voru á sínum tíma.
Kvikmyndaleikstjórinn Tony Scott
stytti sér aldur á sunnudaginn með
því að kasta sér fram af Vincent
Thomas-brúnni í Los Angeles. Með
honum hverfur litríkur og ástríðu-
fullur leikstjóri sem hafði gríðarleg
áhrif á þróun spennu- og hasar-
mynda með stíl sínum og hröðum
klippingum.
Kvikmyndaiðnaðurinn og aðdá-
endur hans syrgja hann þessa dag-
ana en fráfall hans kom öllum og
þá ekki síst hans nánustu í opna
skjöldu. Hann var á kafi í spenn-
andi verkefnum, þar á meðal Top
Gun 2, og allt virtist í góðu lagi hjá
karlinum sem hafði nýlokið tökum á
Out of the Furnance með Christian
Bale í aðalhlutverkinu.
Scott, sem var 68 ára þegar hann
lést, var yngri bróðir hins frábæra
leikstjóra Ridley Scott en þessir
bresku bræður, sem hófu feril sinn í
auglýsingum, hafa báðir sett varan-
legt mark á kvikmyndagerð í Holly-
wood. Tony varð fyrri til en Ridley
að gera stórgróðamynd þegar hann
gerði Tom Cruise endanlega að
stórstjörnu með Top Gun árið 1986.
Hann mun þó ætíð standa í skugga
stóra bróður sem státar af meistara-
verkunum Alien og Blade Runner.
Scott hafa vissulega verið mis-
lagðar hendur og stundum þegar
honum hefur tekist vel upp hafa
áhorfendur brugðist honum. Sú
frábæra spennumynd, The Last
Boyscout, með Bruce Willis, olli
til dæmis vonbrigðum og ein allra
besta mynd hans, True Romance,
naut ekki sannmælis í miðasölunni.
Hana gerði Scott eftir fyrsta hand-
riti Quentins Tarantino og þessir
meistarar voru ekki alveg sammála
um endi myndarinnar. Aðalpersón-
an, Clarence Worley, dó í enda hand-
ritsins en Scott leyfði honum að lifa.
Tarantino varð óður en Scott svar-
aði honum með því að sér hefði bara
„þótt of vænt um þessa krakka.“
Og okkur sem lifum og hrærumst
í kvikmyndum þykir vænt um Tony
og kveðjum karlinn með trega og
söknuði yfir því að fá ekki fleiri
hraðklipptar hasarmyndir að hætti
meistarans.
Þórarinn Þórarinsson
Tony Scott ásamt eiginkonu sinni, Donnu,
og tvíburasonum þeirra Max og Frank.
Paul Schneider og
Olivia Munn leika
hjón sem grípa til
örþrifaráða þegar
þeim gengur illa
að eignast barn.
Campell lék Ash í Evil Dead og missti
höndina í viðureign sinni við þá djöfla-
mergi sem herjuðu á hann og félaga
hans í myndinni.
Draumalið harðjaxlanna
Sylvester
Stallone
gengur lengra
en í The Exp-
endables fyrir
tveimur árum.
Schwarze-
negger og
Bruce Willis
fá nú að grípa
til vopna,
Chuck Norris
mætir og Jean
Claude Van
Damme hristir
af sér slenið.
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
ELLES (ÞÆR)
BLAÐAKONA
RANNSAKAR
UNGAR NÁMS-
MEYJAR SEM
STUNDA
VÆNDI. HVAÐ
BÝR AÐ BAKI?
JULIETTE BINOCHE