Fréttatíminn - 24.08.2012, Síða 60
Helgin 24.-26. ágúst 201248 tíska
Ég er ekki tjald!
Þessa stundina er ég stödd í Svíþjóð og ég hef
aldrei átt jafn erfitt með að eyða peningum í
H&M og Monki. Um síðustu páska pissaði ég á
prik og þremur mínútum seinna komumst við að
því að það væri lítill bumbubúi á leiðinni. Ég er
núna rúmlega hálfnuð á meðgöngunni svo kúlan
er orðin ansi stór. Nú hef ég verið að taka eftir
því að fötin mín fara mér ekki eins vel og áður.
Fyrstu vikurnar snerist allt um að fela magann
ég var heppin af því að ég nota mikið víðar flíkur.
Mér fannst það fara mínum vexti betur.
En undanfarið hef ég verið að fá komment frá
mínum heittelskaða um að ég líti út eins og tjald
– það vanti bara hælana. Ég vil njóta þess að vera
ólétt, leyfa bumbunni að standa útí loftið en vera
aðlaðandi um leið svo þessi ummæli fóru ekki
vel í mig. Í kjölfarið fór ég í gegnum fataskápinn
minn. Bómullarbolir og heklaðar stórar peysur
fengu að fjúka – þessar flíkur laga sig nefnilega
ekki að líkamanum heldur hafa þær sinn eigin
vilja. Í staðin fá chiffon skyrtur, flíkur úr gervi-
efni og sokkabuxur að vera fremst á fataslánni.
Ég mæli með því að þið hinar gerið það sama.
Farið vel í gegnum skápinn ykkar og gefið þeim
flíkum sem ykkur finnst ekki fara ykkur smá
pásu. Reynið samt að nota það sem þið eigið til
því sérstök óléttuföt notið þið bara í nokkrar
vikur – það er miklu skemmtilegra að eyða í
krúttleg barnaföt.
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Erna Hrund
Hermanns-
dóttir
tískubloggari hjá trendnet.is
„Ætli ég myndi ekki lýsa honum sem
þægilegum og nýtískulegum,“ svarar
Dagný Eir Ámundadóttir, 21 ára
viðskiptafræðinemi við Háskólann
í Reykjavík, þegar hún er spurð út í
stílinn sinn. „Ég á endalaust mikið af
þröngum buxum og við þær para ég
yfirleitt víða boli og jakka. Fataskápur-
inn minn er gríðarlega marglitaður, þar
sem litagleðin ríkir allan ársins hring.
Fötin mín kaupi ég aðallega á Íslandi og
þá mest í Sautján, Gs Skóm og Topshop
og eru uppáhalds fatamerkin mín
Diesel, Gestuz og Just Femail sem öll
fást í versluninni Sautján.“
Litagleði allan
ársins hring
5
dagar
dress
Föstudagur
Skór: Gs Skór
Buxur: Sautján
Skyrta: Dúkkuhúsið
Jakki: Sautján
Fimmtudagur
Skór: Einvera
Buxur: Sautján
Svartur bolur: Sautján
Bolur: Nasty Gal
Jakki: Júnik
Miðvikudagur
Skór: Gs Skór
Sokkar: Sautján
Sokkabuxur:
Sautján
Bolur: Sautján
Jakki: Sautján
Þriðjudagur
Skór: Gs Skór
Buxur: Sautján
Skyrta: H&M
Peysa: Corner
Hálsmnen: Orginal
Mánudagur
Skór: Gs skór
Buxur: Sautján
Bolur: Sautján
Vesti: Sautján
Fyrsti ilmur Minaj
væntanlegur
Hip-hop söngkonan Nicki
Minaj bíður nú spennt
eftir að hennar fyrsti
ilmur líti dagsins ljós
en hún frumsýndi
hann á twitter
síðu sinni
fyrr í vikunni.
Söngkonan
nefndi
ilminn eftir
plötunni sinni,
Pink Friday,
sem mun
höfða aðeins til kvenna. Ilmvatns-
glasið er eins og hún í laginu. Þegar
aðdáandi hennar spurði hana nánar
út í lykt ilmsins svaraði hún að
hann ilmaði alveg eins og engill.
Skrifar bók um
leyndardómsfulla hönnuðinn
Fyrrverandi kærasti hönnuðarins Calvin Klein, klámmyndaleikar-
inn Nick Gruber, hefur ákveðið að henda saman bók um storma-
samt samband þeirra, sem endaði fyrir fullt og allt fyrr á þessu
ári þegar Nick var tekinn fyrir vörslu á eiturlyfjum. Nick segir
nauðsynlegt fyrir almenning
að vita hvernig leyndar-
dómsfulli hönnuðurinn er
í raun og veru. Hann hefur
fengið rithöfund í lið með sér
enda lumar hann á alls konar
áhugaverðum upplýsingum
um hönnuðinn sjálfan.
Bókin er væntanleg
snemma á næsta ári, að sögn
Nick, og hefur fengið nafnið
„What Came Between Me and
My Calvin“ eða Hvað gerðist
milli mín og Calvin.
Aftur á byrjunarreit
Söngkonan
Jennifer Lopez
skemmti sér í
Las Vegas um
síðustu helgi
þar sem hún
valdi föt sem
tóku okkur
aftur til for-
tíðar. Mittisháu
stuttbux-
urnar og hvíti
magabolurinn
minna mikið á
klæðnaðinn sem hún mætti í á MTV tónlistarhátíðina árið 2000.
Þegar myndir frá báðum viðburðum eru bornar saman er eins og
hún hafi ekki elst um eitt ár.
Hárklútinn sem fyrrverandi kærastinn hennar, Sean John,
gaf henni skildi hún þó eftir heima og valdi sér frekar flott sól-
gleraugu sem aukahlut við dressið í ár.
2000 2012
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt fyrir flottar konur
st. 40 – 58
50% aukaafsláttu
r af merktu
útsöluverði
við kassa
Útsala
á útsölunni
LOKA – ÚTSÖLULOK