Fréttatíminn - 24.08.2012, Page 68
Plötudómar dr. gunna
önnur mósebók
Moses Hightower
Allt gengur upp
Á annarri plötu Moses
Hightower er listrænn popp-
þroski bandsins í blóma.
Lögin tíu eru öll góð og sum
algjörlega framúrskarandi.
Hér er poppað og fönkað
og menn taka áhættur í
framvindu laga. Hin háa
og silkimjúka söngrödd
Steingríms minnir bæði á
Curtis Mayfield og Sigurð
Bjólu og þess vegna finnur
maður stundum Curtis og
Spilverks-keim í bland við
smá dass af Radiohead.
Blandan er þó alveg
einstæð. Steingrímur og
Andri, sem syngur líka, eiga
frábæra spretti saman og
sitt í hvoru lagi, hljóðfæra-
leikur er djúsí og pottþéttur,
hversdagslegir textarnir
fínir og barasta allt gengur
upp í þrælskemmtilegri,
léttri en stundum krefjandi
poppplötu – bestu plötu
ársins (til þessa).
Slowscope
The Heavy Experience
Neðansjávarvaltari
Þetta er önnur útgáfa
kvintettsins The Heavy
Experience. Eins og sú
fyrri (sem var 10” plata)
kemur þessi bara á vinýl,
hnausþykkri 180 gramma
LP jómfrúarvínylblöndu.
CD-diskur fylgir þó með.
Meðlimirnir hafa látið til
sín taka á öðrum vett-
vangi og spilað með í
allskonar dæmum úr
listrænu deildinni, en í
Þungu tilrauninni setja þeir
kúrsinn á þunglamalega
instrúmental-tónlist, sem
sækir í póstrokk og djass
og hljómar oft eins og
löturhægt brimbrettarokk
– þ.e.a.s. ef brettakappar
keyrðu um á völturum á
hafsbotni. Gítarar spinna
seigfljótandi eyrnaslím ofan
á ákveðinn taktgrunn og oft
brestur á með dreymnum
saxófóni. Ansi glúrin og
flott plata, þung en gefandi.
30th anniversary 1982
- 2012
Bodies
Töff á krús kontról
Bodies er hljómsveitin
Utangarðsmenn án Bubba. Á
þessari rafrænu safnút-
gáfu eru tíu lög, þau fjögur
sem komu út á plötu 1982
og sex að auki, sem bandið
tók upp í Tóntækni snemma
árs 1980, skömmu eftir að
Bubbi hafði klárað Ísbjarnar-
blús. Sum lögin breyttust
stuttu síðar í Utangarðs-
mannalög svo þetta er
merkilegt sagnfræðilegt
efni. Gítar-bræðurnir
Michael og Danny Pollock,
með sitt andlega þel beint
frá Ameríku, eru með hráan
rokktöffaraskapinn á krús
kontról og Magnús og Rúnar,
riþmaparið góða frá Raufar-
höfn, eru þéttir og öruggir.
Hér eru glimrandi rokklög
í Stones og Stooges fílingi
og sum aðeins smituð af
hljóðheimi snemm eitís-ins.
Skemmtilegt eðalstöff!
H E LGA R BL A Ð
Í Fréttatímanum á föstudaginn öllum við
um matarræði og hreyngu
í sérkaa um heilsu.
Ekki missa af þessu tækifæri til þess
að koma skilaboðum þínum á
framfæri við markhópinn.
Áhugasamir hað samband við auglýsingadeild
Fréttatímans í síma: 531 3310
eða auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatíminn - Góða helgi!
HEILSA
Í takt við tÍmann Sigurður Þór óSkarSSon leikari
Tenerife-brúnkan hvarf á leiðinni heim
Sigurður Þór Óskarsson er 24 ára nýútskrifaður leikari. Hann er kominn á samning í Borgarleikhúsinu og
þreytir frumraun sína þar í Gulleyjunni í næsta mánuði. Sigurður er sjúkur í Apple-vörur og líður illa ef
hann er ekki með úr á handleggnum.
Staðalbúnaður
Ég er rosa „kasjúal“ í klæðaburði, ég er alltaf
bara í gallabuxum og bol eða peysu. Ég kaupi
mjög sjaldan föt hér heima en tek skorpur þegar
ég fer til útlanda. Reyndar fór kærastan mín til
Bandaríkjanna um daginn og endurnýjaði þá
fataskápinn minn. Hún er hrikalega „fasjón“
og stíliserar mig ef með þarf. Annars er ég líka
búinn að vera áskrifandi að GQ í tvö ár. Það er
tímarit fyrir karlmenn sem vilja vera með putt-
ann á púlsinum. Eitthvað verð ég að gera til að
halda í við kærustuna, hún þarf ekkert að hafa
fyrir þessu. Verst er að ég hef ekki efni á neinu
af því sem er í GQ. Ég er mikill dellukarl þegar
kemur að úrum og þoli eiginlega ekki að vera án
úrs á handleggnum. Ég elska góðar eftirlíkingar
en á líka nokkur alvöru.
Hugbúnaður
Ég drekk ekki kaffi svo ég fer sjaldan á kaffihús.
Þegar ég fer út að skemmta mér fer ég oftast á
Næsta bar. Það er mjög hentugur staður því mað-
ur kemst alltaf fljótt inn úr kuldanum og þar er ró
og næði – ekki þessi hávaði sem þetta unga fólk
er að hlusta á. Á barnum panta ég mér bjór, oftast
Tuborg Classic. Ég reyni að sjá flest af því sem
er í gangi í leikhúsunum og er líka duglegur að
fara í bíó. Uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn er
Arrested Development en ég hef ekki fundið mér
neinn þátt nýlega sem mig langar til að fylgjast
með. Á sumrin stunda ég golf en ég hef reyndar
verið voða latur við það þetta sumarið. Mér finnst
gott að fara í sund – ekki til að synda samt því
mér finnst það ógeðslega leiðinlegt. Það er voða
kósí að fara bara í pottinn eða gufu.
Vélbúnaður
Ég er einn af þeim sem hef kolfallið fyrir Apple-vör-
unum. Ég á þrjár Apple-fartölvur heima, þrjá iPodda
og er á mínum þriðja iPhone. Ætli ég verði ekki að
stefna á þrjá iPadda í vetur til að fullkomna safnið.
Ég á 959 vini og er virkur á Facebook. Ég er líka
virkur á Instagram en hef ekki dottið inn í Twitter.
Ég tvíta kannski á sex mánaða fresti en þegar ég fæ
engin viðbrögð þá nenni ég þessu ekki. Mér finnst
gaman að spila tölvuleiki
en hef ekki mikinn tíma til
þess. Mér finnst hins vegar
mjög gaman að fara í Topp
25 í Apple Store og prófa
alls konar leiki og öpp.
Aukabúnaður
Ég fer alltof mikið út að borða og
eyði allt of miklum peningum í mat.
Staðirnir sem ég fer oftast á eru Saffran, Vegamót og
Búllan og Sushisamba og Tapasbarinn þegar maður
gerir vel við sig. Það er því mjög gott að vera kominn
á vinnustað með ljómandi góðu mötuneyti svo maður
þurfi ekki alltaf að eyða morð fjár í hádegismat. Mér
finnst reyndar gaman að elda og salsakjúlli er sérrétt-
urinn minn. Ég er svo heppinn að ég bý í göngufæri
við Borgarleikhúsið en annars ferðast ég um á 2000
módeli af Yaris. Mér finnst mjög gaman að ferðast,
bæði hér heima með eldgamalt þríhyrningatjald sem
ég á, og erlendis. Í sumar fór ég með kærustunni
til Tenerife og tók stefnuna á að verða jafnbrúnn og
Hersheys-súkkulaði. Það tókst en brúnkan hvarf ein-
hvern veginn í flugvélinni á leið heim. Draumaáfang-
astaðurinn er Taíland. Kærastan mín fór í Asíureisu
og hefur ekki talað um annað síðan.
Sigurður Þór nýtur
leiðsagnar kærustu
sinnar við val á fötum
en sér um að elda á
heimilinu í staðinn.
Ljósmynd/Hari
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
56 dægurmál Helgin 24.-26. ágúst 2012