Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 17.12.2009, Blaðsíða 14

Fjarðarpósturinn - 17.12.2009, Blaðsíða 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. desember 2009 Ég man vel hvernig tilfinningin var, svo sterk að ég fann fyrir henni í öllum kroppnum. Fiðrildi í maganum í hvert sinn sem ég sá hann. Síðan líður tíminn átökin við lífið og hvort annað hefjast og ýmist skilja okkur að eða færa nær. Þegar að ég fór í vinnuna í morgun er ég þó ekki frá því að alla vega eitt fiðrildi hafi blakað vængjunum þegar ég kvaddi hann þar sem hann lá hrjótandi á kodd anum. Eitt af því sem að krökkunum mínum finnst skemmtilegast er það þegar við rifjum upp sögurnar frá því þegar ég og pabbi þeirra vorum að kynnast. Sögurnar af því þegar börnin fæddust, hvar við áttum heima, hvernig fyrsti bíllin var, hvernig var inni hjá okkur og svo framvegis. Hver sagði hvað og hver var líkur hverjum. Þetta þekkjum við flest, við höfum þörf fyrir að rifja upp sögur sem gefa til kynna að við til - heyrum hvert öðru. Sögur af tíma - mótum. Sögur af þeim sem farin eru á undan okkur en höfðu áhrif. Sögur af erfileikum sem voru yfirstignir, sögur af gleði ástum og samheldni. Það er til fræg saga í fjölskyldunni minni sem segir frá því þegar við hjónin vorum búin að vera saman í eina viku. Þarna vorum við á töluverðum hraða í Ártúnsbrekkunni og hann sagðist eiga von á barni með annarri konu. Ég er ekki frá því að fiðrildið hafi flögrað út um bílgluggann smá stund þarna í brekkunni. Krakkarnir okkar eru með það á hreinu að þessi aðferð hafi verið notuð til þess að ég gæti ekki hlaupið burt. Öllum þessum árum síðar finnst okkur þetta alveg ógurlega fyndin saga af því að við kunnum framhaldið sem er gott og heima hjá okkur býr núna flott 18 ára stelpa sem var ómissandi þáttur upphafsins. Ég hugsa oft um þessa sögu á aðvent - unni. Hugsa um hvernig ein svona lítil saga segir ótal margt um fjölskylduna okkar. Því hún segir frá miklum tilfinningum og sorg og gleði. Segir frá kvíða og óöryggi gagnvart framtíð. Segir frá eftirvæntingu og ást. Segir sögu sem minnir á hvernig lífið er, hvernig óvæntir atburðir breyta öllu sem áður var ætlað. Atburðir sem skora okkur á hólm og skera úr um hvernig við þroskumst og lifum. Sagan af fæðingu Jesú er saga sem við eigum öll saman. Hvert og eitt okkar á þar hlutdeild hvert með sínum hætti. Við kunnum söguna og getum sagt hana öðrum. Það sem þó er mikil - vægast alls er að við verðum hluti hennar með eigin lífi. Að veruleiki sögunnar verði okkur tilefni til að skoða eigið líf í því ljósi. Kanna hvaða merk - ingu hefur það fyrir hvert og eitt okkar að elskan sjálf skyldi fæðast í litlu barni. Kanski hefur Jósef greyinu liðið svona eins og mér þarna í Ártúns brekk - unni þegar hann fékk tíðindin um barnið frá Maríu ég veit það ekki en ég veit að hann valdi að treysta unnustunni og hefja líf þeirra saman þrátt fyrir þessa óvenjulegu uppákomu. Það er margt sem breytist hjá ást - fangnu pari við það að eignast lítið barn. Jósef var viðstaddur eftir því sem ráða má af sögunni án efa fullur kvíða og eftirvæntingar. Hann hefur líka þurft að læra að elska þetta litla barn sem var hans en þó ekki. Það var ferli fyrir mig líka allt frá því að ég sat heima og beið þess að fá hring ingu um að barn væri komið í heim inn til þess að læra að elska þetta litla barn sem var alls ekki mitt en samt. Jósef og María, Guðbjörg og Sig urð - ur allir foreldrar á hverri tíð fá að upplifa yfirþyrmandi gleði og ábyrgð við það að eignast barn. Ábyrgð sem að við höndlum hvert með okkar hætti. Jesúbarnið sem brátt á fæðingarhátíð er okkur falið til umönnunar og umönnun þess er falin í kær leiks verk - un um sem við vinnum hvert öðru. Ein - mitt þess vegna varð Guð að fæðast í litlu barni til þess að við fengjum að skilja þá miklu ábyrgð sem okkur er falin á kærleikanum sjálfum. Ég bið þess að við fáum öll lifað í kærleika í Átrúnsbrekkum lífsins sem og á sólar - dögunum, ávallt með Guð okkur við hönd. Gleðileg jól! Gjöfina færðu hjá okkur! F ja rð a rp ó s tu ri n n 0 8 1 2 – © H ö n n u n a rh ú s ið e h f. Eitt landsins mesta úrval af úrum og skartgripum Jólahugvekja sr. Guðbjargar Jóhannesdóttur Manstu hvernig þér leið þegar þú varðst í alvöru ástfangin í fyrsta sinn

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.