Fjarðarpósturinn - 17.12.2009, Blaðsíða 18
Þá er nú blessað haustið liðið
og samkvæmt dagatalinu er
veturinn kominn þó veðurfarið
beri þess varla merki, ennþá!!
Óneitanlega hrannast upp ótal
minningar frá yndislegu sumri
og viðburðaríkum vetri nú þegar
elskurnar okkar sem út skrif uð -
ust af Norðurbergi í vor, komu
nýverið í heimsókn til okkar í
Lund, nýju deildina í leik skól an -
um. Þau eru að hefja grunn -
skóla göngu sína, reynslu boltar
sem stóðu sig eins og hetjur í
hús næðisþrengingum, sorg
vegna missis kærs félaga og vin -
ar og færni í að takast á við ótrú -
legustu aðstæður sem við buðum
þeim upp á liðnu skólaári.
Í tjöldum við skátaskálann
Útskriftarferðin í skóginn við
Hvaleyrarvatn í júní var að sjálf -
sögðu hápunktur vetrar starfsins
og mikið tilhlökkunar efni sem
tókst með eindæmum vel. Við
gist um í tjöldum í lundi við
skáta skálann og nutum lífsins
frá morgni til kvölds við leiki,
söng, gönguferðir um skóg inn
og kringum vatnið, matar gerð,
kvöldvöku við varðeld o.m.fl.
Fjársjóðsfundur
Óvæntur „fjársjóðsfundur“
við vatnið hleypti litlum hjört um
alveg upp í háls, því nokkrir
glöggir kappar í hópnum rákust
á gamlan bakpoka sem lúrði
einmana og slitinn inn á milli
runna. Var hann dreginn var -
færn islega fram til skoðunar, því
aldrei að vita nema eig andinn
leyndist einhvers staðar nálægt á
hleri og upp hófust nú mikil hróp
og köll um hvað gera skyldi í
stöðunni!! Öllum að óvörum
birt ist blaðamaður Fjarðar pósts -
ins á staðnum og settumst við á
rökstóla í grænni lautu og
andaktugir fylgdust skógarbúar
með því er hver hlutur var dreg -
inn varlega upp úr pokanum og
skoð aður gaumgæfilega, enda
kenndi þar margra grasa. Meðal
þess sem við veltum vöngum
yfir var t.d. leðurpyngja með
smá steinum í, lúnir karlmanns -
sokkar, silfur-og gulluglur, pípa,
eldgamlir peningar og fjársjóð s -
kort, hnjáhlífar, bönd, orðabók,
húfa, stækkunargler og egypskt
höfuðdjásn svo eitthvað sé
nefnt. Skyldi eigandinn vera
spæjari, hellarannsóknarmaður,
bankaræningi eða bara réttur og
sléttur safnari? Myndirnar tala
sínum máli.
Mörgum spurningum var þó
enn ósvarað þegar nóttin lagðist
yfir og fuglasöngurinn hljóðn -
aði. Þó suðuðu enn í kollunum,
sem gægðust upp úr svefn pok -
unum; allir þeir atburðir dagsins
sem lítil kríli, höfðu upplifað og
notið í góðra vina hópi í útjaðri
bæjarins okkar, þegar júnínóttin
lagðist yfir.
Þakkir
Við viljum þakka bæjar yfir -
völdum, fræðslu yfir völd um,
skála verði St. Georgs gildisins,
skóla stjóra og starfs fólki Engi -
dalsskóla og Hólm fríði Finn -
bogadóttur hjá Skóg ræktar -
félag inu Þöll, fyrir alla aðstoð
s.l. vetur með því að bregð ast
svo skjótt og vel við og gera
okk ur kleift að vinna úr von -
litlum aðstæðum yfir í að gera
drauminn að „skógar skóla“ að
veruleika.
Síð ast en ekki síst ber að
þakka öllum stóra útskriftar -
hópn um okkar og foreldrum
þeirra fyrir að treysta okkur og
hvetja í hvívetna.
Það er von okkar að öll börn á
Norðurbergi geti átt vísa upp -
lifun í Höfðaskógi við Hval -
eyrarvatn í framtíðinni.
F.h. starfsmanna í leik skólan -
um Norðurbergi, Fríða Ragn -
arsdóttir, grunnskólakennari.
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem
býður uppá að gefandinn ákveði upphæðina og
viðtakandinn velji gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.
Ein gjöf sem
hentar öllum
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000
N
B
I h
f.
(L
an
d
sb
an
ki
nn
),
k
t.
4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
39
73
9
Ævintýri í skóginum!
Ýmis fjársjóður kom upp ú bakpokanum sem fannst í skóginum.
Það var auðvitað spennandi að sofa í tjöldum.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Stækkunarglerið vakti áhuga.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
18 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. desember 2009