Bókbindarinn - 01.03.1956, Page 12

Bókbindarinn - 01.03.1956, Page 12
12 BÓKBINDARINN vinnuveitenda um 15% launahækkun. 5. Febrúar. Aðalfundur. Kosnir í stjóm: Guðbjörn Guðbrandsson, formaður; Jónas P. Magnússon, ritari, og Einfríður Guðjóns- dóttir, gjaldkeri. 28. marz. Félagsfundur. Nýir samning- ar hafa verið gerðir. 28. nóvember. Fyrsti formlegur fundur frá 28. marz. Björn Bogason þá tekinn við formannsstörfum. 1920 4. janúar. Félagsfundur. Samþykkt eft- irfarandi ályktun sem svar við gagntil- boði vinnuveitenda um nýja kjarasamn- inga. „Framanritað uppkast að samningi milli vinnuveitenda og vinnuþiggjenda í þók- bandsiðn, getur sveinafélagið ekki sam- þykkt, svo langt sem það fer frá því upp- kasti, er vér höfum lagt til grundvallar að samningum. Fyrst er dregið úr kaup- kröfunni mikillega, sumarfrí og helgidaga- borgun, sem lengi hefur viðgengizt, fellt burt og engu sinnt tilmælum okkar um greiðslu kaups í sjúkdómstilfellum né stytting vinnutímans. Við viljum eindreg- ið sneiða hjá verkfalli og skorum því á yður, háttvirtu herrar, að koma á fund með samninganfend þeirri, er sveinafé- lagið hefur samþykkt, og að þáðir máls- aðilar reyni þar að jafna það sem á milli ber." 14. janúar. Samþykktur nýr kjarasamn- ingur, þar sem öllum aðalkröfum sveina hefur verið náð, og eru þetta helztu ákvæði hans: Vinnutíminn er eftir somkomulagi á hverri vinnustofu. Þó ekki skemmri en 8 klst. og ekki lengri en 9 klst. á dag. Lágmarkslaun sveina kr. 99.42 á viku. Nemendur skulu eigi vera fleiri en: 1 á móti minnst 2 sveinum. 2 á móti minnst 5 sveinum. 3 á móti minnst 8 sveinum og þar yfir. Stærri vinnustofur mega hafa 2 stúlkur hver, þær smærri eina hver. Námstími þeirra nemenda, sem læra iðnina að fullu, er fjögur ár, og skal eigi greiða þeim minna kaup en hér segir: Á 1. ári 15 kr á viku. Á 2. ári 20 kr. á viku. Á 3. ári 25 kr. á viku. Á 4. ári 40 kr. á viku. Námstími kvenna, sem læra aðeins al- menna „jómfrú"-vinnu, er tvö ár og má kaup þeirra eigi vera lægra en hér segir: Fyrir 1. hálft ár greiðist minnst kr. 12.00 á viku. Fyrir 2. hálft ár greiðist minnst kr. 15.50 á viku. Fyrir 3. hálft ár greiðist minnst kr. 19.50 á viku. Fyrir 4. hálft ár greiðist minnst kr. 24.00 á viku og síðan kr. 49.71 á viku. Sé vinnutíminn 9 klst. á dag og eigi tekið sérstaklega tillit til þess í kaupgjaldi, ber að greiða fullt dagkaup fyrir lögboðna helgidaga, aðra en sunnudaga. Sömuleið- is eiga þá sveinar rétt á að minnsta kosti þriggja daga sumarleyfi með fullu dag- kaupi. Samningurinn gildir til 31. des. s. á. (Samningur þessi er eitt af þrem skjölum þessa félags, sem enn eru varðveitt). 12. febrúar. Aðalfundur. Kosnir í stjórn: Eiríkur Magnússon, formaður; Sveinbjöm Eiríkur Magnússon (Form. uj20)

x

Bókbindarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókbindarinn
https://timarit.is/publication/951

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.