Fréttatíminn - 18.03.2011, Blaðsíða 4
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Uppþvottavél SN 45E201SK
á frábærum kjörum.
Hvít, 13 manna. Fimm kerfi.
Tímastytting þvottakerfa.
Íslenskur leiðarvísir.
Tækifærisverð:
129.900 kr. stgr.
(Verð áður: 159.900 kr.)
Tækifæri
A
T
A
R
N
A
Vítisenglastefna fyrir dómi
Skaðabótmál tveggja meðlima
hinna norsku Vítisengla gegn ís-
lenska ríkinu er komið fyrir
dómstóla. Oddgeir Ein-
arsson, lögmaður mann-
anna tveggja, segir að
beðið sé eftir því að
dómari verði settur á
málið svo að málsmeð-
ferð geti hafist. Menn-
irnir tveir telja að þeir
eigi rétt á skaðabót-
um vegna brottvís-
unar frá landinu árið 2008 sem
þeir telja hafa verið ólöglega.
Mikið fjaðrafok varð þegar
þáverandi lögreglustjóri á
Suðurnesjum, Jóhann R.
Benediktsson, meinaði
hópi Vítisengla inngöngu
í landið þá – ekki ósvip-
að og norska lögreglan
gerði við meðlimi
MC Iceland
fyrir tveimur
vikum. -óhþ
Rithöfundur rústar
lúxusvillu
Metsölurithöfundurinn Arnaldur Indriða-
son stendur í ströngu þessa dagana. Hann
situr ekki eingöngu við að skrifa nýjustu
bók sína, sem kemur út 1. nóvember
næstkomandi, heldur hefur hann einnig
gert fokhelda lúxusvillu sem hann keypti á
Seltjarnarnesi skömmu fyrir jól. Sést hefur
til vörubíla flytja innréttingar og fleira frá
húsinu. Arnaldur og fjölskylda búa í fallegu
raðhúsi í Mýrinni á
Seltjarnarnesinu
og má búast við
því að nokkrir
mánuðir líði þar
til nýja húsið
verður íbúðar-
hæft.
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS
Peysuveður
Líttu vel út án
þess að sjúga stöðugt
upp í nefið.
Strekkingur af V og SV og nokkuð ein-
dreginn éljagangur um mikinn hluta
landSinS, þó ekki norðauStan- og
auStantil.
höfuðborgarSVæðið: Él veRðA og jAfn-
vel SAMfelld SnjókoMA uM tíMA.
hlánar um tíma SunnanlandS með
rigningu og Slyddu, en annarS froSt og
Víða einhVer Snjókoma yfir daginn.
höfuðborgarSVæðið: Él eðA SnjókoMA
fRAMAn Af degI, en úRkoMulAuSt SeInnI
pARtInn.
hægur Vindur að nýju. él, einkum
SunnanlandS, en Sér til Sólar norðan- og
auStanlandS.
höfuðborgarSVæðið: SkýjAð og eItt-
HvAð uM Él eðA lÉttA SnjókoMu í HItA vIð
fRoStMARkIð.
krumla vetrar
gefur lítt eftir
Mars er stundum skaðræðisvetrarmánuð-
ur. Rétt eins og nú, þar sem heimskauta-
loft úr vestri ræður ríkjum og mildara loft
úr suðri sækir á. niðurstaðan er sú að
það er bæði stormasamt og mikil úrkoma, oftast
sem snjór en líka snarpar leysingar. enn
ein lægðin virðist ætla að skjótast
norðaustur yfir landið á laugardag,
en að þessu sinni sleppum við við
mesta vindinn. en úrkomusamt
verður og lykilorð helgarinnar
er sennilega éljagangur!
4
6 4 5
3 0
5 3
0
3
1
4 3
1
1
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Föstudagur laugardagur sunnudagurveður
Sunnlendingar sýna í
Ráðhúsinu
Sunnlendingar ætla að kynna fjórðunginn
með mikilli sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur
á laugardaginn undir yfirskriftinni Suður-
land, já takk. Þar fylkja Sunnlendingar
liði og kynna það sem efst er á baugi
í fjórðungnum. Það eru Atvinnuþró-
unarfélag Suðurlands, menningarfulltrúi
Suðurlands og Markaðsstofa Suðurlands
sem leiða verkefnið ásamt fjölda annarra,
svo sem ferðamálafulltrúa, sveitarfélaga,
handverkshópa og ferðaþjónustuaðila á
Suðurlandi. Innblásturinn fyrir sýninguna
sækja Sunnlendingar til samkenndar sem
gosið í eyjafjallajökli varð til að styrkja
mjög á svæðinu. Alls ætla um sextíu aðilar
að tefla fram flestu því besta sem finna
má á Suðurlandi á sýningunni, sem verður
opin klukkan 11 til 16.
Handhafarnir
þrír undir-
rituðu í fjar-
veru hans
tvenn lög á
öllu árinu, á
sama degi –
22. júní.
Forsetaembættið Gjörðir handhaFa Forsetavaldsins
Skrifuðu undir 31
lög á tveimur árum
F orsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar eru hand-hafar forsetavalds og fara með
valdið þegar forsetinn er erlendis. Sem
hann er nokkuð oft eins og auglýsingar
í Stjórnartíðindum bera vott um. Þannig
var Ólafur Ragnar Grímsson erlendis í 59
daga á árinu 2009 samkvæmt Stjórnar-
tíðindum, 94 daga á árinu 2010 og hefur
verið erlendis 26 daga af þeim 77 dögum
sem liðnir eru af þessu ári. Samkvæmt
útreikningum Fréttablaðsins fær hver
handhafi forsetavalds um tuttugu þúsund
krónur á dag í fjarveru forsetans og
kostar dagurinn því íslenska ríkið sextíu
þúsund krónur. Ef mið er tekið af ferða-
lögum Ólafs Ragnars fengu handhafarnir
greiddar samtals 3,5 milljónir 2009, 5,6
milljónir 2010 og hafa fengið 1,6 milljónir
það sem af er þessu ári. Þetta gerir launa-
uppbót upp á 97 þúsund til 208 þúsund
krónur á mánuði fyrir hvern handhafa
eftir því hvaða ár er tekið.
Árið 2009 voru handhafar forsetavalds-
ins Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, og Árni Kolbeinsson,
forseti Hæstaréttar. Forsetinn var í burtu
59 daga á því ári. Handhafarnir þrír
undirrituðu í fjarveru hans tvenn lög á
öllu árinu, á sama degi – 22. júní. Annars
vegar var um að ræða lög um breytingu á
lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða,
með síðari breytingum, og hins vegar var
um að ræða lög um breytingu á lögum nr.
99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og
sölu á búvörum, með síðari breytingum.
Alls staðfesti forsetaembættið 122 lög
þetta ár og því undirritaði Ólafur Ragnar
98,4 prósent af öllum lögum sem sam-
þykkt voru á árinu
Árið 2010 jókst álagið töluvert á hand-
hafana því Ólafur Ragnar var 94 daga á
erlendri grund á því ári. Handhafarnir
skrifuðu undir 29 lög í fyrra. Ingibjörg
Benediktsdóttir, forseti Hæstaréttar,
skrifaði undir í öll skiptin, Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra skrifaði und-
ir 26 sinnum, Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir, forseti Alþingis, skrifaði undir
23 sinnum, Ragnheiður Ríkharðsdóttir
skrifaði undir sex sinnum sem staðgengill
Ástu Ragnheiðar og Steingrímur J. Sig-
fússon skrifaði þrívegis undir sem stað-
gengill Jóhönnu Sigurðardóttur. Einnig
skrifaði Steingrímur J. undir Icesave-lög-
in sem forsetinn hafnaði 5. janúar í fyrra.
Auk þess þurftu handhafarnir að rita einn
forsetaúrskurð um sendiráð, fastanefndir
hjá alþjóðastofnunum og sendiræðisskrif-
stofur sem og bréf um að Alþingi kæmi
saman til framhaldsaðalfundar. Forseta-
embættið samþykkti 125 lög á árinu 2010
og því samþykkti Ólafur Ragnar 96 lög
eða 76,8 prósent laganna.
Á þessu ári hafa handhafarnir sam-
þykkt þrenn lög í fjarveru forsetans.
Jóhanna Sigurðardóttir og Ingibjörg
Benediktsdóttir hafa samþykkt öll þrenn,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur sam-
þykkt tvenn og Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir hefur samþykkt ein.
Forsætisráðuneytið gat ekki gefið
neinar upplýsingar um athafnir handhafa
forsetavalds í fjarveru forseta heldur var
blaðamanni bent á Stjórnartíðindi. Allar
upplýsingar sem fram koma í þessari frétt
eru fengnar þaðan. Þó gat ráðuneytið upp-
lýst að handhafar inntu af hendi margvís-
leg störf, meðal annars að vera í fylgdar-
liði forsetans þegar hann fer erlendis
– sem er að fylgja honum út á flugvöll.
óskar hrafn þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
ólafur Ragnar grímsson,
forseti íslands, er maður
víðförull og því þurfa
handhafar valds hans oft
að vera til taks.
Handhafar forseta-
valds skrifuðu undir
31 lög á árunum
2009 og 2010. Alls
samþykkti forsetinn
247 lög á þessum
tveimur árum.
Handhafar forsetavalds-
ins fylgja forsetanum
út á flugvöll þegar hann
fer af landi brott.
4 fréttir Helgin 18.-20. mars 2011