Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.03.2011, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 18.03.2011, Blaðsíða 34
Tveir mætir menn komu á framfæri athugasemdum um orðalag í greinarkorni um ágæta bók Þorgríms Gestssonar um Laugarnes- ið. Annar taldi ofsagt að afi og amma Þorgríms, sem settust að í Laugarnesi 1915, hefðu verið „leiðtogar“ í hópi þeirra sem settust að á svæðinu frá Rauðará að Bústöðum á liðinni öld á eignafestu- löndum. Það er rétt að eignafestulönd voru komin í notkun miklu fyrr og þau hjón voru ábúendur á nær þúsund ára býli. Það er áréttað hér með að þar var munur á þótt ekki verði bakkað með að Þorgrímur og Ingibjörg Þóra hafi verið leiðtogar fyrir byggðina á þessum slóðum lengi – í ýmsum skilningi. Hin athugasemdin við greinarkornið laut að gáleysislegu tali um arfleifð Geirs Zoëga og var varpað fram þeirri spurningu hvort nokkuð stæði eftir af húsum hans, utan þau sem hann byggði börnum sínum. Jú, kvað karl einn úr bænum; hesthúsið hans og hlaðan stendur milli húsanna við Ránar- og Vesturgötu og var lengi heimili Gunnars Huseby. Þá var reyndar ótalin lengjan neðst á Vesturgötunni norðanmegin: pakkhúsin, sem þekktust eru sem Naust, og beggja vegna tvö hús sem Geir ku hafa reist. Sóma borgaryfirvalda er í því efni borgið þótt þau hafi heimilað stórbygginguna sem Karl í Pelsinum reisti norðan við Vesturgötulengju Geirs ... alltof stóra -pbb Áréttingar og leiðrétting  Bókardómur IS(not) F imm pólskir ljósmyndarar fengu jafn marga íslenska rithöfunda til liðs við sig, ferðuðust um Ís- land 2010 og er afrakstur þess sam- starfs sýning og bók. Hingað komu nokkrir af ljósmyndurum Póllands af yngri kynslóðinni sem allir tilheyra hópnum Sputnik photos. Þeir kynntust eigin augum, gegnum linsuna og með leiðsögn, frásögn og samfylgd íslensku höfundanna landi sem þeir þekktu bara af orðspori, klisjum auglýsinganna, og fyrir þeim opnaðist nýr heimur sem rímaði illa við yfirskin ferðaiðnaðarins. Bókin, sem dregur sumpart saman í eitt texta og mynd, er fallegur gripur og verður klárlega eftirsóttur safngripur, svo lítið er upplagið. Hún er ekki til sölu en fæst gegn styrk til sýningarhaldsins, en verkefnið er ríkulega styrkt af ýmsum evrópskum sjóðum. Textar Hermanns, Huldars, Kristínar, Sindra og Sigurbjarg- ar birtast að mestu á ensku en að litlum hluta á íslensku og eru í öllum tilvikum hugleiðing/ferðasaga, vitrun í nýjum félagsskap og vitneskja um gestinn sem leitar uppi þau sjónrænu minni sem kalla hæst á hann. Þannig liggur leið tveggja í Árnes- hrepp á Ströndum, annað par þræðir sambýli vatns og þjóðar, tvö leita uppi ófreska menn, tveir einangraða staði og einangrað fólk – svarthvítt stöff – og Huldar sest upp í bíl; hvað annað? Þetta er að öllu leyti vel heppnað verk. Hér má greinilega sjá að gestir líta okkur öðrum augum gegnum linsuna en okkar menn: Hráleikinn er háværari og hin mynd- rænu mótíf koma á óvart þótt í bland flækist kunnugleg minni úr íslenskri samtímaljósmyndun. Mest þykir mér til ferðalagsmynda Rafals Milach og Mic- hals Luczak koma. Textavinnsla íslensku höfundanna er heimabrugg. Áhugasvið þeirra fimm er afar mismunandi og komið á erlenda tungu verður hluti textans heimóttar- legur, það bregður fyrir blygðun í honum, einhverri afsökun fyrir að vera til, posttveirnúllnúllátta-trámað étur okkur að innan um sinn. En þau skilja öll konseftið og eru að reyna að skoða okkur að utan; líklega hafa myndir samferða- manna þeirra komið þeim á óvart, rétt eins og þær koma okkur á óvart. Verkefnið er styrkt af Menningarsjóði Póllands og EES/EFTA-ríkjanna, Ís- lands, Liechtenstein og Noregs. Á heima- slóðum gestanna fer sýningin um Danzig hina fornu og í apríl verður opnuð sýning í Bielsko-Biala og í Varsjá í júní. Andrzej Kramarz er sýningarstjóri og ritstjóri bókarinnar IS(not). Hugleiðingar sýningarstjóranna um goðmagn eyjunnar og eðli hennar eru þeim öllum hugstæð. Í verki er verið að skoða jaðarinn á álfunni, norðan við okk- ur er hjarnið og ísbreiðan. Huldar orðar það svo að við förum úr borginni til að sjá skrýtna fólkið sem við höfum komið okkur upp sem er þó bara við sjálf. Sýn- ingin og bókin er því merkilegur spegill sem við skulum skoða okkur til ánægju; í Breiðholti eða Hveragerði. Við þangað.  IS(not) Hermann Stefánsson Huldar Breiðfjörð Kristín Heiða Kristinsdóttir Sindri Freysson Sigurbjörg Þrastardóttir Rafal Milach Agnieszka Rayss Jan Brykczynski Michal Luczak Adam Panczuk Sputnik Photos 2011  Hinir dauðu Viðar Sundstöl Kristín R. Thorlacius þýddi 175 bls. Uppheimar 2011 34 bækur Helgin 18.-20. mars 2011  Bókardómur HInIr dauðu VIðar SundStöl Betri næring – betra líf eftir Kolbrúnu Björnsdótt- ur grasalækni vippar sér í efsta sætið á heildarlista Eymundsson. Í forgrunni er meltingarstarfsemin en góð virkni hennar mun vera undirstaða góðrar heilsu og vellíðanar. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Gagnrýnendur greinir á um ágæti sviðsetningar Stefáns Baldurssonar óperustjóra á Öllum sonum mínum sem byggir reyndar á þeim hræðilegu sögum sem kunnar eru af illa byggðum og gölluðum orustu- flugvélum sem fóru niður á stríðsárunum. Þetta er þriðja sviðsetningin á Sonunum. Sú fyrsta, á vegum LR, var skömmu eftir frumsýninguna vestanhafs. Stefán valdi verkið á svið snemma á árum sínum í þjóð- leikhússtjórastól og nú er það sýnt þriðja sinni. Annað meistaraverk amer- íska natúralismans mun reyndar vera á leiðinni á svið í Þjóðleikhúsinu: Long Days Journey into Night eða Húmar hægt að kveldi eða Löng er dags för inn í nótt eftir því hver þýðir verkið. Í fyrra fréttist að Þórhildur Þorleifsdóttir ætlaði að sækja um styrk til leiklistarráðs til að setja verkið á svið í eigin nafni með Arnari Jóns- syni, Hilmi Snæ og Atla Rafni í hlutverkum þeirra Tyrone-feðga og átti Guðrún Gísla að leika móðurina. Hvort Þórhildur hefur sótt um og ekki fengið fer engum sögum af; leiklistarráð styrkir helst tilraunaverk- efni fyrir yngra liðið, ekki útlend meistaraverk með fullorðnum leik- urum. Sýnir sagan. En nú berast þær fréttir að sýningin komi upp í Þjóðleikhúsinu, sem þýðir þá að Þórhildur er þar komin aftur til starfa – og Hilmir Snær líka. Hin þrjú eru reyndar fastráðnir leikarar í húsinu hvort eð er. -pbb Amerískir meistarar á íslensk svið Tveir bræður í skóginum Pólskar myndir, íslensk orð Síðasta laugardag var opnuð ljósmyndasýning hér syðra sem hafði verið uppi mánuðinn fyrr í Hofi Akureyrar. Sunnan heiða er henni tvískipt milli sýningarstaða, Listasafns Árnesinga í Hveragerði og Gerðubergs í Breiðholtinu. Sýningin ber enskt heiti IS(not) eða (EI)land. Hún er nýstárleg, fallega uppsett og opnar okkur nokkuð aðra sýn á land og þjóð en við erum vön. Samfara henni kemur út bók og henni fylgir mynddiskur. Hér má greinilega sjá að gestir líta okkur öðrum augum gegn- um linsuna en okkar menn: Hráleikinn er háværari og hin myndrænu mótíf koma á óvart þótt í bland flækist kunnugleg minni úr ís- lenskri sam- tímaljós- myndun. BetrI nærIng – Betra líF Mannlíf við Sund Eugene O’Neill, höfundur Long Days Journey into Night. Hinir dauðu nefnist ann- ar hluti af þríleik Viðars Sundstöl sem kom út nýlega hjá forlagi Upp- heima. Sundstöl mætti hingað upp í vikunni til að tékka á fjölmiðlaflór- unni og kynna bálkinn. Fyrsta bókin um Lance Hansen kom út í fyrra, Land draumanna, og kynnti okkur þennan þumbaralega löggumann við Miklavatn á slóðum norskra landnema og índíánaættbálka. Þar kom í sögunni að Lance mátti hafa sig allan við að skoða dráp á norskum strák þar við vatnið í skógi og þótt honum bættist liðstyrkur frá Noregi dugði það ekki til. Ódámurinn sem drap drenginn og svívirti fannst ekki. Lance kynnti okkur fyrir helstu vinum sínum, bróður, dóttur, fyrrum eiginkonu, gamalli kærustu og tengdaföður í þessari fyrstu bók sem var, eftir á að hyggja, langur inngangur að meiri tíðindum. Sem kemur nú í ljós. Lance var sökker fyrir gömlum sögum – í fyrstu bókinni var hann upptekinn af hundrað ára sögu – nú og svo hafði hann illan bifur á bróður sínum; grunaði hann um manndráp, jafnvel morð. Í miðbókinni um hina dauðu fer Lance í veiði- ferð með bróður sínum. Það er vetur og þeir eru einir inni í barrskógaþykkninu þar sem kunnugir menn villast. Gamlir svipir eru á ferðinni: aldar- gömul saga er rakin í skáletri – og við fylgjumst með Lance á rápi um veiðilendurnar – þeir bræður fá sér kaffi og halda áfram leit – sinn í hvoru lagi að bráð. Þá skellur á ógnvekjandi veður – sams konar hitastig og olli ísingunni á sjó hér á miðunum – niður fellur regn sem frýs um leið og það lendir á jörð. Yfir allt leggst klakabrynja. Lance fer að verða viss um að hann sé ekki einn ... Hinir dauðu er fantavel skrifuð bók, spennandi og tælandi í þýðingu Kristínar Thorlacius. Hún verður nánast óbærilega spennandi er á líður og Sundstöl kann mikið fyrir sér í nákvæmum lýs- ingum á veðurfari í skóglendi, myrkri og kulda. Nógu lofi var hlaðið á Land draumanna; Riverton- verðlaununum norsku og tilnefningu til Glerlykils- ins 2009. Þessi saga er miklu merkilegri í frásögn og sniði, svolítið mórölsk í samslætti tveggja tíma – Kain og Abel og það allt – en flottur krimmi. pbb Viðar Sundstöl Úr myndröðinni Hid- den people eftir Adam Panczuk en fyrir hana hreppti hann annað sæti í ljósmynda- keppninni Picture of the Year International nú í febrúar. Opið Alla daga frá 12:00 til 18:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.