Fréttatíminn - 18.03.2011, Blaðsíða 6
www.skjargolf.is
GOLFKORTIÐ VEITIR
40% AFSLÁTT
AF GOLFVÖLLUM UMHVERFIS ÍSLAND
AUK ANNARRA GLÆSILEGRA FRÍÐINDA
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT STRAX!
Elínu Jóns
dóttur,
forstjóra
Bankasýslu
ríkisins, finnst
of margir
starfa við
fjármálaþjón
ustu á Íslandi.
FjármálaFyrirtæki aðlögun eFtir hrun
S tarfsmönnum í íslenskum bönkum hefur ekki fækkað mikið þrátt fyrir að umsvif bankakerfisins íslenska hafi dregist verulega saman eftir hrunið
haustið 2008. Tölur sem Fréttatíminn hefur undir hönd-
um sýna að á meðan umsvif bankakerfisins hafa skroppið
saman um tæp 80% hefur starfsmönnum aðeins fækkað
um 20%. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur gert athuga-
semdir við þetta atriði í skýrslum sínum um íslenskt fjár-
málalíf og Bankasýsla ríkisins, sem fer með meirihluta
ríkisins í Landsbankanum og nokkrum sparisjóðum, lýsti
einnig yfir áhyggjum sínum af því í skýrslu sinni í fyrra.
Þar var bent á að hlutfall starfsmanna í fjármálaþjónustu
væri það fjórða hæsta í Evrópu á eftir löndum eins og
Lúxemborg og Sviss og hærra en í Bretlandi, þar sem ein
stærsta fjármálamiðstöð heims er.
Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslunnar, segir í sam-
tali við Fréttatímann að það sé umhugsanarvert hversu
hátt hlutfall íslensks vinnuafls sé starfandi í fjármála-
þjónustu miðað við hversu mikið umsvifin hafa minnkað.
„Það er ljóst að það hafa orðið breytingar á starfsum-
hverfi bankanna, allt er orðið erfiðara. Það er samdráttur
í inn- og útlánum, álögur á bankana hafa hækkað og
við höfum rætt þetta ítrekað við fólkið sem situr í stjórn
bankanna fyrir okkar hönd,“ segir Elín.
Hún segir marga gera sér grein fyrir stöðunni og
nauðsyn þess að skera burt fituna. „Það er líka eðlilegt
að krafan komi frá hluthöfum frekar en stjórnendunum
sjálfum enda er þetta ekki skemmtilegt verkefni,“ segir
Elín og bætir við að Bankasýslan muni beita sér á þann
hátt að setja bönkunum raunhæf rekstrarmarkmið frekar
en að krefjast einstakra aðgerða.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Óeðlilega hátt
hlutfall vinnandi
fólks í bönkum
Starfs
mönnum
í bönkum
fækkar
ekki þrátt
fyrir minni
umsvif.
Alþjóða
gjald-
eyris-
sjóðurinn
hefur gert
athuga-
semdir
við þetta
atriði í
skýrslum
sínum ...
var bent á
að hlutfall
starfs-
manna í
fjármála-
þjónustu
væri það
fjórða
hæsta í
Evrópu ...
Byltingarkenndur
sparslspaði
Í vikunni var tilkynnt að byltingarkenndur
sparslspaði frá Flügger hefði unnið til fyrstu
verðlauna í einni stærstu og virtustu hönnunar
samkeppni heims, „Red dot design award“. Í
fyrra sigraði iPad frá Apple í sömu keppni. Hið
danska Flüggerfyrirtæki er vel þekkt á
Íslandi en auk málningar og verkfæra
framleiðir það veggfóður. Þriggja ára
þróunarvinna er að baki spaðanum góða.
Hann er 33 prósent léttari en samsvarandi
verkfæri. Á ári sparar það málurunum vinnu
sem svarar mörgum tonnum við að
lyfta spaðanum. Flüggerspaðinn
sigraði samkeppnisaðilana í sínum
flokki, en í honum voru 4.433
vörutegundir frá 60 löndum.
Hjón keyptu bíl
númer 100 og 101
Hjónin Guðbjörg Benónýsdóttir og
Gunnar Sizemore lentu í skemmtilegri
uppákomu í síðustu viku þegar þau
fengu afhenta tvo Chevrolet Spark
bíla frá Bílabúð Benna. Bílarnir
voru númer 100 og 101 í röðinni
af Chevroletbílum sem
hafa selst á Íslandi
á árinu og fengu
hjónin blómvönd frá
umboðinu að því
tilefni. -óhþ
Helgin 18.20. mars 2011