Fréttatíminn - 18.03.2011, Blaðsíða 52
52 dægurmál Helgin 18.-20. mars 2011
Það var
ekkert
vandræða-
legt við
þetta.
JEPPADEKK
BFGoodrich
Reykjanesb
æ
Rey
kjavík
Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - www.benni.is
Nesdekk - Fiskislóð - 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - 420 3330
Sérfræðingar í bílum
L eikarinn Bjartur Guð-mundsson birtist í fyrsta sinn sem persónan Hlölli í gaman-
þáttunum Makalaus á Skjá einum á
fimmtudagskvöld og innkoma hans
fór vart fram hjá nokkrum áhorfanda
þar sem kappinn berháttaði sig fyrir
framan tökuvélarnar í atriði þar sem
Hlölli lendir í klónum á hinni kræfu
og vergjörnu Ósk, bestu vinkonu
aðalpersónunnar Lilju.
„Jájá, mikið rétt, ég var alveg alls-
ber,“ segir Bjartur hinn hressasti.
„Tökuliðinu var haldið í lágmarki
á meðan á þessu stóð svo að það
myndaðist ekki einhver vandræðaleg
stemning þarna. En þetta var hins
vegar einhvern veginn aldrei neitt
mál. Tökufólkið er allt fagfólk fram
í fingurgóma og fókusinn var allur
á að gera þetta bara vel og að þetta
kæmi allt eðlilega út. Það var ekkert
vandræðalegt við þetta.“
Bjartur segir að atriðið hafi í eðli
sínu kallað á að hann sýndi allt. „Ég
sá þetta ekki áður en þátturinn fór út
og treysti mér nú ekki til þess að lofa
því að allt verði sýnt,“ sagði Bjartur á
útsendingarkvöldinu en hann átti þó
síður von á því að það allra heilagasta
slyppi við að verða viðrað á öldum
ljósvakans. „Tökurnar voru í það
minnsta þannig að allt var í mynd.“
Bjartur var þó með öllu kvíðalaus
fyrir útsendinguna á fimmtudags-
kvöld og sagðist ekki hafa séð neina
sérstaka ástæðu til að vara fólk við
því að hann gæti mögulega birst á
tillanum á skjánum. „Ég er búinn að
búa konuna mína undir þetta og þá
allra nánustu. Þetta hefur þá bara
komið hinum á óvart og ég vona að
það hafi ekki verið of mikið sjokk.“
-þþ
bjartur Guðmundsson Fór úr öLLu í makaLaus
Ekkert vandræðalegt við að
sýna það allra heilagasta
I lmvötn listakonunnar og ilmhönnuðarins Andreu
Maack eru nú fáanleg í
tíu löndum. Ilmvötnin
eru íslensk-frönsk og eiga
uppruna sinn að rekja til
myndlistarverka Andreu.
Þau eru þrjú talsins; Smart,
Craft og Sharp. Önnur tvö
eru væntanleg seinna á
árinu.
Andrea er einn af
fjölmörgum styrkþegum
Aurora hönnunarsjóðsins
en Rannsóknarmiðstöð
skapandi greina hjá Við-
skiptafræðistofnun Háskóla
Íslands kynnti í vikunni
árangursmat á starfsemi
Hönnunarsjóðs Auroru og
Kraums tónlistarsjóðs.
Andrea hefur í tvígang
hlotið styrk úr hönnunar-
sjóði Auroru, sem veitti
henni mikla hjálp við fram-
leiðsluna.
„Þegar ég sótti fyrst
um styrk hjá Auroru var
ilmurinn sjálfur tilbúinn,
en umgjörðin ekki. Okkur
vantaði fjármagn til að þróa
vöruna betur, umbúðirnar,
markaðssetningu og fleira.
Í það fór fyrsti styrkurinn
sem mér var veittur úr
sjóðnum. Ég hafði loksins
fjármagn til að klára það
sem ég var byrjuð á,“ segir
Andrea. „Eftir að ég fékk
fyrsta styrkinn fór boltinn
að rúlla. Þegar ég fékk
síðari styrkinn var varan
tilbúin og hann var því
helst notaður í markaðs-
setningu og kynningu
erlendis. Styrkirnir tveir
hafa hjálpað mér mikið og
komið mér þangað sem ég
er í dag. Ég er gríðarlega
þakklát.“ -kp
andrea maack FLeIrI ILmIr á LeIðInnI
Selur ilmvötn
í tíu löndum
Tökum á
Makalaus lauk
fyrir viku og
Bjartur heldur
nú að mestu til í
Borgarnesi þar
sem hann leik-
stýrir mennt-
skælingum í
Dark Side of
the Moon sem
byggist á sam-
nefndri plötu
Pink Floyd.
Powerade, einbeiting
og enginn svefn
Listmálararnir Sigtryggur B.
Baldvinsson og Þorri Hrings-
son opna um helgina sýningu á
nýjum verkum í Hafnarborg í Hafn-
arfirði. Þeir eiga það sameiginlegt
að sækja innblástur í náttúruna á
nánast ofurraunsæjan ljósmynda-
legan hátt.
„Stundum er þetta eins og
realismi en stundum verða verkin
mjög abstrakt. Á þessari sýningu
eru reyndar flest verkin í fyrri
flokknum,“ segir Sigtryggur um
sinn hluta sýningarinnar.
Vatn er í aðalhlutverki í verkum
Sigtryggs, þar á meðal í mann-
hæðar hárri mynd sem kennd er
við Fjaðrá. Að sögn Sigtryggs var
sú mynd máluð í tveimur löngum
lotum. „Þetta voru tvær sólar-
hringslangar tarnir, sem snerust
um einbeitingu, Powerade og skort
á svefni. Til að ná þessari áferð
mátti málningin ekki storkna
meðan á vinnunni stóð.“
Sýning þeirra félaga kallast
Varanlegt augnablik. Hún var í
Listasafninu á Akureyri í byrjun
árs en verður opnuð í Hafnarborg á
laugardag klukkan 15.
haFnarborG sIGtryGGur oG ÞorrI
Getur þú
styrkt barn?
www.soleyogfelagar.is