Fréttatíminn - 18.03.2011, Page 18
þessu drasli framan í sér. Allar
skinkur Íslands reyna að vera
eins og Ásdís. Tekst bara ekki
því hún ber höfuð og herðar
yfir allar.“
„Parmaskinkan hlýtur að vera
Ásdís Rán, hún er heimsmeistari
í þessu!“
„Ásdís Rán er í raun frum-
kvöðull á þessu sviði og var
að skinkast um strax í byrjun
níunda áratugarins á Astró
og á síðum klassatímaritsins
Heimsmyndar.“
„Aðalskinka landsins er án efa
Ásdís Rán, sem er ekki bara
frægasta skinka Íslands heldur
Búlgaríu líka. Svo hefur hún
„actually“ gefið út skinkulag!
Parmaskinka og engin er í
sama klassa og hún!“
Flottustu
skinkur
landsins
Ásdís Rán virðist almennt yfir
aðrar skinkur hafin en að henni
frátalinni er VIP-partístelpan
Hildur Líf óumdeild skinka
Íslands og var tilnefnd í fyrsta
sæti af langflestum álitsgjöfum
Fréttatímans. Hildur Líf nýtur
þess að þurfa ekki að spóka sig
mikið í skugga Ásdísar Ránar
á Austur, Re-Play og öðrum
viðurkenndum skinkustöðum
þar sem Ásdís er upptekin við
landvinninga fjarri Íslands-
ströndum.
Eplið féll þó ekki langt frá
eikinni því að Hildur Líf sigraði í
Skvísukeppni janúarmánaðar á
síðu Ásdísar Ránar á Pressan.is
í fyrra. Þá tók hún þátt í Sam-
keppni hins fornfræga karla-
tímarits Samúels sem nú lifir
á fornri frægð og föngulegum
stúlkum á netinu. VIP-partíið
sem Hildur Líf hélt ásamt
stöllu sinni Lindu Ýr á Re-Play
í lok febrúar, og sú gríðarlega
athygli sem það vakti, gerði
Hildi Líf svo að stærsta
meginlandinu á dúnmjúku
skinkuhafinu þar sem hún vex
nú og dafnar í örygginu innan
landhelgi heimsálfunnar Ás-
dísar Ránar.
„Birtist landsmönnum eins
og fullsköpuð skinka. Hún
er svona nýskinka með eftir-
hermukrem og meik framan í
sér. Vaknar snemma til að setja
framan í sig – það er staðfest og
jafnvel þinglýst.“
„Hildur Líf og Linda Ýr – verð
að fá að tilnefna þær saman,
þær eru skinkusamloka.
Spurning hvað þær setja á
milli ...“
„Hildur Líf hlýtur að teljast
skinka númer eitt, enda getur
hún halt sín partí sjálf, þessi
elska.“
Bjarnheiður Hannesdóttir
Innanhússhönnuðurinn
Bjarnheiður Hannesdóttir stal
Edduhátíðinni eins og hún
lagði sig frá frægðarfólki sjón-
varps- og kvikmyndabransans
með því að mæta til leiks í
níðþröngum, vel flegnum og
eftirminnilegum hlébarðasam-
festingi. Fyrir nokkrum vikum
vissu fáir hver Bjarnheiður var
en nú er nafn hennar á allra
vörum og hún er örugg í öðru
sætinu yfir mestu skinkur
landsins.
„Hlébarðakonan var
skemmtileg viðbót í hóp
opinberra skinka en hún er
bæði þrælappelsínugul og fílar
spandex. Bæði óhjákvæmilega
hluti af grunnfræðunum.“
„Bjarnheiður Hannesdóttir hlé-
barðaskinka sló í gegn á verð-
launahátíð um daginn og fékk
fólk til að frussa fyrir framan
tækin og tók ekkert aukalega
fyrir. Geri aðrir betur.“
„Mjög gott þetta tiger-dress
sem hún skartaði á Eddunni og
hannaði sjálf – skinka par ex-
cellance sem veit hvað hún vill
þegar kemur að sparidressi!“
Tobba Marinós
„Ekki í sama flokki og hinar.
Eðalskinka með klassa og
er mega flott, töff og klár í
þokkabót.“
„Hún er skinka. Hún verður
bara að horfast í augu við það.“
„En hún virðist vakna um 4:00
til að dúndra drasli framan í
sig. Alltof mikið af alltof miklu.
Þarf ekki. Hún er alveg sæt.“
Linda Ýr
„Hildur Líf og Linda Ýr
VIP-partígellur. Þarfnast ekki
útskýringar.“
Egló Gunnþórsdóttir
„Móðir Ásdísar Ránar er
skinku-amman. Tönuð í drasl
og strekkt í rusl.“
Gurrý Jónsdóttir
„Gurrý Jónsdóttir, kærasta
Gillz og þátttakandi í Ungfrú
Reykjavík, er suddaskinka.“
Vala Grand
„Hmmm ... „bæjon“-skinka.“
„Hún náttúrlega auglýsir Lolitu.
is í þáttunum sínum, verslun
sem selur mikið af mjög sníps-
stuttum hvítum kjólum með
semelíusteinaskrauti, himnaríki
fyrir skinkurnar.“
Ósk Norðfjörð
„Ásdís Rán. Ósk Norðfjörð. Er
þetta ekki ein og sama mann-
eskjan?“
Ornella Thelmudóttir
„Hún er gangandi dæmi um
svarthærðu skinkuna, glamúr-
módel með sílíkonvarir getur
hreinlega ekki klikkað.“
Í
slenskan er komin nokkuð
til ára sinna en er sprell-
lifandi, iðandi af fjöri og
móttækileg fyrir stöðug-
um nýjungum í síkvikum
heimi. Íslendingar hafa því
í gegnum tíðina ekki átt í
teljandi vandræðum með að búa til orð
yfir ný fyrirbæri, auk þess sem endur-
nýting gamalgróinna orða hefur virkað
ágætlega með merkingarbreytingum.
Þannig var skjár gluggi löngu áður en
sjónvarpið kom til sögunnar og sími
var einfaldlega þráður þótt í seinni
tíð hafi fólk byrjað að slá á hann með
símtækjum. Og nú er skinka orðin allt
annað og miklu meira en álegg.
Þótt skinkurnar þyki öðrum stúlk-
um þokkafyllri eru þær ekki allra og
illar tungur herma að skinkurnar séu
þekktar fyrir það eitt að ýfa kynhvöt
karla með stinnum rössum í þröngum
flíkum og áberandi brjóstaskorum sem
oftar en ekki hafa verið magnaðar upp
með sílíkonpúðum. Þeir sem hafa horn
í síðu skinkunnar bera allar skinkur
saman við Paris Hilton og færa þannig
rök fyrir því að skinkurnar séu með
áherslu sinni á ytra útlit að bæta sér
upp almennan greindarskort.
Í þessum skilningi má segja að
hugtakið „skinka“ leysi „ljóskuna“ af
hólmi og framan af var orðið „skinka“
fyrst og fremst notað yfir barmmiklar,
stífmálaðar gellur með aflitað hár og
naflann beran í efnislitlum toppum.
Hugtakið hefur síðan orðið æ um-
fangsmeira og nú geta skinkur bæði
verið karlar og konur og þá ekki síður
dökkhærðar en ljóshærðar. Frum-
skilyrðið er þó enn ofurmeðvitund um
klæðaburð, líkamsvöxt og fegurð sam-
kvæmt alþjóðlegum stöðlum Barbie-
dúkkunnar, Playboy-tímaritsins og
klámfenginna tónlistarmyndbanda.
Skinkuvæðing samfélagsins veldur
mörgum áhyggjum enda fer skinkum
ört fjölgandi og aldur stelpna sem
kjósa að „skinka sig upp“ færist
stöðugt neðar. Fréttatíminn leitaði til
hóps fólks sem fylgist vel með í hinum
ýmsu menningarkimum og bað það
að tilnefna mestu skinku Íslands og
svo flottustu skinkuna; þá sem skaraði
fram úr öðrum þegar kæmi að sígild-
um skinkueiginleikum. Einhvers kon-
ar parmaskinku Íslands. Það segir ef
til vill sína sögu að einn álitsgjafanna
baðst undan af þeirri einföldu ástæðu
að „skinkurnar eru svo margar um
þessar mundir að mann bara svimar
og ég treysti mér ekki til að kafa ofan í
þetta kjötfjall.“
Flottustu skinkur
Íslands og heitustu
beikonsnáðarnir
Samkvæmt orðabókarskilgreiningu er skinka „reykt (og soðið) svínakjöt, oftast haft í sneiðum
sem álegg“. Á síðustu misserum hefur skinkan þó tekið á sig allt aðra merkingu sem á ekkert
skylt við álegg en nú verður fólki tíðrætt um skinkur þegar átt er við föngulegar stúlkur sem eru
gjarnar á að láta skína í hold sem er ekki síður lystugt en þunnskorið og fölbleikt svínakjötið.
Einnig nefndar sem parmaskinkur
Tobba Marinós, Dísa í World Class,
Rósa Ingólfsdóttir, Dorrit Moussaieff,
Bjarnheiður Hannesdóttir, Elma Lísa
Gunnarsdóttir og Hildur Líf.
Aðalskinkur Íslands
1 Hildur Líf
2 Bjarnheiður Hannesdóttir
3 Linda Ýr
4 Tobba Marinós
5 Ósk Norðfjörð
6 Sigrún Lilja Guðjónsdóttir
7 Vala Grand
8 Ornella Thelmudóttir
9 Hlín Einars
10 Eygló Gunnþórsdóttir
Líklega kemur fáum á óvart að
fyrirsætan Ásdís Rán er í hugum
flestra flottasta skinka landsins
enda má segja að hún sé frummynd
skink unnar, parmaskinkan, sem hinar
skuggamyndirnar á veggjum VIP-
hellanna reyna sem mest að líkjast.
Nánast hver einn og einasti álitsgjafi
Fréttatímans nefndi Ásdísi Rán til
sögunnar og yfirgnæfandi meirihluti
vildi setja hana skörinni ofar en aðrar
skinkur.
„Parmaskinka Íslands. Falleg og
flott. Virðist ekki hafa neitt fyrir öllu
Parmaskinkan
Lj
ós
m
yn
d
A
rn
ol
d
Lj
ós
m
yn
d
A
rn
ol
d
Framhald á næstu opnu
18 úttekt Helgin 18.-20. mars 2011