Fréttatíminn - 18.03.2011, Qupperneq 30
E rfiðir tímar kalla oft á erfiðar ákvarðanir. Stundum er ekki ljóst hvort ein ákvörðun er
betri en önnur. Það þarf samt að taka
ákvörðun eða taka enga ákvörðun, sem
er líka ákvörðun. Jared Diamond skrif-
aði bókina Collapse – How Societies
Choose to Fail or Survive, sem segir
meðal annars hetjusögu af Íslending-
um í baráttunni við land og veðráttu.
Diamond segir sögu um eyjarskeggja
nokkra á Páskaeyjunni sem hjuggu
niður regnskóga og tortímdu sjálfum
sér þar sem þeir voru háðari skóginum
en þeir gerðu sér grein fyrir. Diamond
velti því fyrir sér hvað sagt hafi verið
þegar eyjaskeggjar voru að fella síðasta
tréð. Eftirfarandi eru nokkrar til-
gátur: „Þetta er MITT tré, MÍN eign!
Ég get gert það sem ég vil við það“;
„Áhyggjur af umhverfinu eru ýktar,
við þurfum frekari rannsóknir“; „Þið
þurfið einungis að trúa, guð mun hugsa
um sína.“
Tilgátur Diamonds um yfirlýsingar eyjarskeggja
minna um margt á orðheppni Íslendinga – sögu-
hetjur bókarinnar – í fjármálasögu síðustu missera.
Íslendingar eru líka eyjarskeggjar. Umræðan um
síðasta tréð minnir líka á umræður um framtíð Íslands.
Sumir virðast vera búnir að slá eign sinni á landið og
ætla að byggja sér minnisvarða úr síðasta trénu; aðrir
vilja snúa sér í hringi í nafni rannsókna og vísinda og
loks eru það þeir sem eru hættir að hugsa og segja:
„Þetta reddast.“ Allt eru þetta ákvarðanir á ögurstund.
Kannski eru þetta ákvarðanir byggðar á skammsýni
og fáfræði. Í skjóli trésins verður að
rækta nýja framtíð.
Það er í sjálfu sér ekki umræðan um
síðasta tréð sem veldur hugarangri
ákvörðunartaka um þessar mundir
heldur öllu heldur síðasti þúsundkall-
inn eða síðasta milljónin. Þegar pen-
ingar eru af skornum skammti verður
að velja hvað á að gera við þær krónur
sem eru til skiptanna. Sumir segja
að Íslendingar eigi að eyða síðustu
krónunum í fjárfrekar framkvæmdir,
sem jafnvel myndu fá John Maynard
Keynes til að snúa sér við í gröfinni í
ljósi þess hvernig hagkerfi hafa breyst
frá „kreppunni miklu“. Aðrir segja að
við eigum að eyða krónunum í að verja
það sem við höfum, þann lífsstíl sem
við þekkjum – af hverju að borða brauð
ef við getum fengið kökur? Enn aðrir
segja að við eigum að geyma þúsund-
kallinn undir koddanum. Þetta eru allt
ákvarðanir sem varða hagsæld þjóðar
til skemmri og lengri tíma.
Síðasti eyjarskeggi Páskaeyjunnar myndi hins
vegar hugsa öðruvísi að fenginni reynslu. Hann myndi
segja að við ættum að eyða síðasta þúsundkallinum í
að fjárfesta í framtíðinni, til að rækta framtíðina. Ein
leið til þess er að fjárfesta í nýsköpun og verðmæta-
sköpun sem ekki er fjárfrek en getur skilað mörgum
störfum og ágætum arði. Þó að fjárfesting í ört vaxandi
fyrirtækjum sé áhættusöm er það fjárfesting í nýjum
gróðri, nýjum blómum og græðlingum sem eiga eftir
að rækta landið á ný. Það er fjárfesting í framtíð Ís-
lands.
Fjárfesting í framtíð Íslands
Síðasti þúsundkallinn
30 viðhorf Helgin 18.-20. mars 2011
Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnesi. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri:
Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga-
stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Í Fréttatímanum fyrir viku upplýsti Valtýr
Sigurðsson ríkissaksóknari að embætti
hans hefði ekki burði til að annast lögbundið
eftirlit með símahlerunum lögreglunnar.
Ástæðan er einföld. Embætti ríkissaksókn-
ara hefur hvorki mannskap né fjármuni til
að sinna eftirlitshlutverki á þessu sviði, né
ýmsum öðrum, eins og því er ætlað. Sagði
Valtýr jafnframt frá því að embætti hans
hefði sent innanríkisráðuneytinu mörg bréf
til að vekja athygli á þessari stöðu.
Hreinskilnisleg svör ríkissaksóknara um
þennan vanda eru til mikillar fyrirmyndar.
Innanríkisráðherra og lög-
reglan berjast nú fyrir rýmk-
uðum rannsóknarheimildum.
Í þeirri umræðu er grundvall-
aratriði að vandlega sé farið
ofan í saumana á því hvernig
löggæslan fer með þær heim-
ildir sem hún hefur nú þegar.
Upplýsingar Valtýs sýna að
mikið vantar upp á að þar sé
allt eins og það á að vera.
Rétt rúm tvö ár eru liðin síðan ný lög
gengu í gildi þar sem ríkissaksóknara var
falið eftirlitshlutverk með símahlerunum
lögreglunnar og öðrum rannsóknaraðgerð-
um sem skerða friðhelgi fólks. Verkefnið
fékk embættið vegna þess að réttarfars-
nefnd, sem endurskoðaði lögin um meðferð
sakamála, taldi „verulegan misbrest“ hafa
orðið á því að lögreglustjórar sinntu þeirri
skyldu að upplýsa einstaklinga, að lokinni
rannsókn, um að þeir hefðu verið beittir
símahlerunum. Aðkoma ríkissaksóknara
átti að „tryggja að tilkynningarskyldan verði
virt í framtíðinni“ eins og það var orðað í at-
hugasemdum réttarfarsnefndarinnar.
Nú hefur það hins vegar verið upp-
lýst í Fréttatímanum að engin trygging er
fyrir því að bætt hafi verið úr fyrrnefndum
verulegum misbresti. Þetta er auðvitað
grafalvarlegt mál. Það hlýtur að vera eðlileg
og sanngjörn krafa að innanríkisráðherra
hafi frumkvæði að því að láta vinna vandaða
úttekt á starfsháttum lögreglunnar áður en
lengra er haldið í því að rýmka rannsóknar-
heimildir hennar.
Valtýr Sigurðsson hefur gert áframhald-
andi umræðu um þetta mál mikinn greiða
með hreinskilni sinni. Hann lætur brátt af
störfum og er því ef til vill í annarri stöðu
en ýmsir aðrir embættismenn þegar kemur
að því að ræða hvernig stofnanir þeirra eru
í stakk búnar til að sinna þeim verkefnum
sem eru á þeirra könnu.
Stjórnmálamenn landsins fara með fjár-
veitingarvaldið og ef þeir láta ekki aukið fé
fylgja auknum verkefnum sem þeir leggja
á embætti stjórnkerfisins er auðvitað ekki
víst að þeim verði sinnt af neinu viti. Sú varð
raunin með vanmáttugt Fjármálaeftirlitið
sem stóð andspænis tröllauknu bankakerfi á
sínum tíma. Eins og í tilviki ríkissaksóknara
voru lagaákvæðin um eftirlitsskylduna af-
dráttarlaus. Raunveruleikinn var svo einhver
allt annar.
Veikburða stjórnsýsla
Hreinskilni Valtýs
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
Í
Eyþór Ívar Jónsson
framkvæmdastjóri Klaks —
Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnu-
lífsins og stjórnarformaður
Sprotaþings Íslands
Það hlýtur að vera eðlileg og sanngjörn krafa að innan-
ríkisráðherra hafi frumkvæði að því að láta vinna vandaða
úttekt á starfsháttum lögreglunnar áður en lengra er haldið
Fært til bókar
Varla var það Tom Jones?
„Ég hef í raun ekki fengið neinar hald-
bærar skýringar á því hvers vegna SFO
[Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar]
leitaði eftir því að spyrja mig um mál
sem ekki tengdust starfi mínu hjá KSF
[Kaupthing Singer&Friedlander].“ Svo
segir Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi
forstjóri KSF, í yfirlýsingu þar sem hann
hafnar því að rannsókn SFO beinist að
þeim hluta Kaupþingssamstæðurnnar sem
hann stýrði. Það er því ekki ljóst að hverju
efnahagsbrotadeildin var að leita. Tæplega
var það sá samningur sem gerði Ármann
frægan á Íslandi á sínum tíma, þ.e. að fá
stórsöngvarann Tom Jones til að syngja
í áramótapartíi. Ármann er raunar laus
við mörg vandamál sem fylgdu nýríkum
bankamönnum á sínum tíma. Í bók sem
hann gaf út um íslenska viðskiptalífið sagði
hann m.a. að ýmis vandamál hefðu komið
upp gagnvart starfsfólkinu: „Bílstjórinn
var latur, heimilshjálpin þreif illa og barn-
fóstran ætlað aldrei að vakna á morgnana.
Börnin kvörtuðu undan því að vera alltaf
að ferðast til staða eins og Courchevel,
St. Tropez og Dubai og vildu frekar vera
heima og fara út að hjóla. Val á vínum
olli nú heilabrotum. Nokkrum árum áður
drukku allir gin og tónik. Nú þótti hallæris-
legt að drekka rauðvín sem var yngra en
maður sjálfur.“
2007 hvað?
Miðar á tónleika gömlu brýnanna í Eagles
í Laugardalshöllinni í júní seldust grimmt
eftir að sala hófst í fyrradag, en tíu þúsund
miðar eru í boði. Tvenns konar verð er
á miðunum, 19.900 krónur og 14.900
krónur. Dýrari miðarnir ku hafa runnið út
á fáum mínútum, að því er greint var frá
í fréttum. Það kostar því um 40 þúsund
krónur fyrir par að hlusta á rokksveitina
fornfrægu. Miðar á alla þá tónleika sem
í boði eru í Hörpunni, eftir að það mikla
musteri verður tekið í gagnið, hafa enn
fremur runnið út. Bætt hefur verið við
aukatónleikum til þess að anna eftirspurn.
Það er óneitanlega svolítill 2007 stæll á
þessu.