Fréttatíminn - 18.03.2011, Page 49
tíska 49Helgin 18.-20. mars 2011
Nýtt lyktarsafn frá
Marc Jacobs
Nú er tískumerkið Marc
Jacobs að gefa út enn eitt
lyktarsafnið, Splash Cocktail
Collection, sem kemur á
markaðinn 24. apríl. Þetta
verður ekki bara einn ilmur,
heldur þrír. Afbrigðin verða
mjög ólík; eitt ber keim
af appelsínum, annar af
trjönuberjum og sá þriðji
hefur sterka engiferslykt.
Hver pakkning mun kosta
rúmlega átta þúsund krónur
og kemur til landsins seinna
á árinu.
og hefur nú gert
stærri samning við
fyrirtækið og mun
hanna nýja galla-
buxnalínu sem
ber heitið Hudson
by Georgia May
Jagger. Buxurnar,
sem eru ætlaðar
fjölbreytilegum
kúnnahópi, verða
fáanlegar í búðum
í Bandaríkjunum á
næstu dögum.
Nýtir vöggugjöfina
Fyrirsætan Georgia May
Jagger, dóttir
rokkarans Micks
Jagger og fyrir-
sætunnar Jerry
Hall, hefur ákveðið
að nýta tískuvit-
undina sem hún
fékk í vöggugjöf.
Síðustu misseri
hefur hún verið
andlit tískufyrir-
tækisins Hudson
Athugavert
klæðaval
Fyrsta heftið af Vogue Paris
sem Emmanuelle Alt ritstýrir
kom út nú í marsmánuði. Blaðið
vakti mikla lukku, þrátt fyrir for-
síðuna sem var ekki eins einstök
og búist var við. Hana prýðir
ofurfyrirsætan Gisele
Bundchen í hvítum
Dolce & Gabbana-kjól.
Lesendur Vogue sáu
eitthvað athugavert
við klæðaval Gisele
og við nánari athugun
kom í ljós að sami kjóll var
notaður á forsíðu Vogue Deutsch
í febrúar-blaðinu og Vogue
España í mars.