Fréttatíminn - 18.03.2011, Page 54
Myndaalbúm
fjölmiðlafólks
Fjölmiðlarisinn 365 lagði
eina hæð á Hótel Hilton
við Suðurlandsbraut undir
árshátíð sína þar sem
boðið var upp á ýmsa
skemmtun í herbergjum
hótelsins. Árshátíð þessi
hefði að öllum líkindum
farið fram hjá landslýð ef
fréttavefur fyrirtækisins,
www.visir.is, hefði ekki
gert gleðinni
rækileg skil en
þar voru birtar
rúmlega 260
myndir úr
gleðskapnum þar
sem meðal annars
mátti sjá framkvæmda-
stjórann Ara Edwald, Ólaf
Stephensen, ritstjóra
Fréttablaðsins, Ásgeir
Kolbeins, Auðun Blöndal
og aðra minni spámenn
skemmta sér konunglega.
Vinjettur til höf-
uðs neikvæðni
Fagurkerinn og vinjettu-
höfundurinn Ármann
Reynisson ætlar að leggja
til atlögu við þá þrúgandi
neikvæðni sem legið
hefur yfir landinu með
vinjettuhátíð í Þorláks-
höfn á sunnudaginn.
Ármann hefur
haldið vinjettuhá-
tíðir á 20 stöðum víða
um land og segir þær í
anda kvöldvökunnar sem
„haldin var á Íslandi í 1000
ár en lagðist af á 20 öld.
Hátíðin á sunnudaginn
stendur frá 16 til 18 og þar
les Ármann upp úr verkum
sínum ásamt Leikfélagi
Ölfuss og nemendum úr
Grunnskóla Þorlákshafnar.
Efnilegir nemendur úr
Tónlistarskóla Árnessýslu
annast tónlistarflutning.
M arta María er ekki í nokkrum vandræðum með að réttlæta stórveisluna sem hún býður til
á laugardagskvöld þar sem tíu ár eru liðin
frá því hún byrjaði að starfa við fjölmiðla
með pistlaskrifum um tísku á vefnum
Strik.is sem heyrir nú sögunni til.
„Um þessar mundir er liðinn áratugur
frá því ég byrjaði í blaðamennsku og mig
langaði bara að skála og dansa með vin-
konum mínum.“
Marta María lagðist í andlegan rann-
sóknarleiðangur með nokkrum bestu
vinkonum sínum í ársbyrjun og komst að
því að hún ætti að syngja og dansa meira.
„Mér er ráðlagt að sleppa fram af mér
beislinu í söng og dansi.“
Og það ætlar tískulöggan svo sannar-
lega að gera í góðra vinkvenna hópi. „Mér
finnst bara ekki vera neitt partí nema það
sé dansað,“ segir Marta sem hefur leigt
hljóðkerfi fyrir gleðskapinn sem hún
heldur heima hjá sér.
Vinkonuhópur Mörtu er stór og ætla
má að stelpurnar muni fara með himin-
skautum í dansi og fjörlegum samræðum
enda dömurnar ekki þekktar fyrir annað,
en til veislunnar mæta meðal annarra
fjölmiðlakonurnar Vala Matt, Ellý Ár-
manns, Kolbrún
Pálína Helga-
dóttir og Friðrika
Geirsdóttir. Rithöfundurinn Tobba Mar-
inós lætur sig heldur ekki vanta frekar
en Helga Ólafs fatahönnuður, Stein-
unn Vala skartgripahönnuður og Sigga
Heimis iðnhönnuður, Heiðrún Lind
Marteinsdóttir lögfræðingur og Katrín
Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
„Þetta eru allt konur sem mér þykir
rosalega vænt um,“ segir Marta sem
ætlar ekkert að skipuleggja kvöldið of
mikið, heldur leyfa andanum í hópnum
að stjórna ferðinni. Líklega myndu fáir
karlmenn slá hendinni á móti því að fá að
spóka sig í þessum magnaða hópi kvenna
en Marta María er hörð á því að hér sé
um „gellupartí“ að ræða og karlmenn
eru ekki velkomnir. Hún tekur þetta alla
leið og ætlar að vísa eiginmanni sínum
og tveimur sonum á dyr. „Þeir eru annað
hvort á leiðinni upp í sumarbústað eða í
afplánun hjá tengdaforeldrunum,“ segir
Marta og skellihlær.
Marta sMarta Hækkar allt í botn
Fagnar
með
flottum
vinkonum
Marta María Jónasdóttir, aðstoðar-
ritstjóri Pressunnar, hefur ekki
haldið almennilegt partí fyrir
vinkonur sínar frá því hún hélt upp
á þrítugsafmælið sitt. Hún ætlar
að blása til allsherjar gelluveislu á
laugardaginn og dansa og kjafta frá
sér allt vit með vinkonum sínum sem
allar eru þekktar fyrir glæsileik og
hæfileika á ýmsum sviðum sköpunar
og fagurfræða.
Party Zone Þúsundasti Þátturinn á leið í loftið
Fólk hættir aldrei að dansa
f élagarnir Helgi Már og Kristján Helgi eru bún-
ir að halda danstónlistarþætti
sínum Party Zone úti í ís-
lensku útvarpi í tvo áratugi og
standa nú á þeim tímamótum
að þúsundasti þátturinn fer í
loftið á Rás 2 hinn 24. mars.
Tveimur dögum síðar ætla
strákarnir sér að fylla Laug-
ardalshöllina í félagi við CCP
og láta fjölda tölvuleikjanörda
hrista skankana á lokahátíð
EVE Fanfest.
„Við byrjuðum í október
árið 1990 á Útrás og þetta eru
orðnar 170 vikur,“ segir Helgi
Már.
Eftir Útrás gerði þátturinn
stuttan stans á Sólinni og átti
svo stutt og líflegt skeið á
Aðalstöðinni en fluttist síðan
yfir á X-ið. „Þar vorum við í
fimm ár og þetta var mikill
uppgangstími. Við fylltum
Tunglið þegar okkur sýnd-
ist, gáfum út diskana okkar
og byrjuðum að halda Party
Zone -kvöldin. Við hættum
svo á X-inu 1997 þegar stöð-
in breytti um stefnu og varð
rokkstöð.“
Þá lá leiðin á Mono 87,7 í
skamma stund en eftir smá
hlé fluttu þeir Helgi og Krist-
ján þáttinn yfir á Rás 2 þar
sem þeir hafa verið í 11 ár.
Helgi segir engin þreytu-
merki á þeim félögum enda
engin hætta á að fólk staðni
í danstónlistarbransanum.
„Fólk hættir aldrei að dansa
þannig að við getum haldið
áfram svo lengi sem við höf-
um gaman af þessu.“ -þþ
Þrátt fyrir alls kyns háðsglósur á bloggi og
Facebook-síðum er ljóst að gömlu kemp-
urnar í hljómsveitinni The Eagles verða
velkomnir gestir á klakanum í sumar.
Miðar á tónleika sveitarinnar hafa rokið
út og allar líkur eru á að miðarnir klárist
fyrr en seinna. Miðar í forsölu kláruðust á
tæpri klukkustund á miðvikudag og þegar
almenn sala hófst á fimmtudag spændust
miðarnir út. Ísleifur B. Þórhallsson hjá
Senu, sem flytur bandið inn, sá því nokkuð
eftir peningum sem hann greiddi fyrir
heilsíðu auglýsingu um miðasöluna á
fimmtudag og gerði málið upp með bros-
kalli og þessum orðum á Facebook-síðu
sinni: „Tilgangslausasta heilsíða allra tíma
;)“. Aukatónleikar eru ekki inni í myndinni
þannig að aðdáendur Dons Henley og
félaga ættu ekki að draga lappirnar og
tryggja sér miða í tæka tíð.
Tilgangslaus auglýsing
Þetta eru allt
konur sem
mér þykir
rosalega vænt
um.
54 dægurmál Helgin 18.-20. mars 2011
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Rafknúnir
hægindastólar
sem auðvelda
þér að setjast
og standa upp
Fjölbreytt úrval
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Marta María kann
að gera góða veislu;
sendir karlinn burt,
pantar hljóðkerfi
og hóar í góðar
vinkonur í dans og
kvennahjal.
Sjónvarpskokkurinn Friðrika
Geirsdóttir og ráðherrann Katrín
Júlíusdóttir verða líklega frekar
til fjörsins hjá Mörtu Maríu.
Helga Má og Krist-
jáni Helga líkar
vistin í Efstaleitinu
ágætlega en þeir
vilja þó fá laugar-
dagskvöldin sín
aftur. „Við vorum
einhverra hluta
vegna færðir á
fimmtudagskvöld,“
segir Helgi og segir
öflugan þrýstihóp
vera að myndast
á Facebook þar
sem hamrað er
á kröfunni um
laugardagana.
Ljósmynd/Atli Már
Hafsteinsson
Við
fylltum
Tunglið
þegar
okkur
sýndist ...