Prentarinn - 06.04.1992, Page 20
Fulltrúar á NGU árs-
fundi 1991. Hér aö
skoöa orlofsaöstöðu
Finnskra félaga í
Virpilampi
til Prenttæknistofnunar. Styrkur þessi
var veittur til að útbúa námsefni og
kennslugögn fyrir nemendur hjá
stofnuninni, námsefni sem einnig ætti
að geta nýst bókiðnadeild Iðnskólans.
Skýrsla bókasafnsnefndar
Bókasafnsnefnd skipa Jón Agústsson,
Svanur Jóhannesson og Bergljót Stef-
ánsdóttir. Nefndin kom saman nokkr-
um sinnum árið 1991 til að ákveðan
hvéfnig ráðstafa ætti þeim fjármunum
sem hún hefur yfir að ráða.
Ýmsar bækur voru keyptar og má
þar nefna íslensku alfræðiorðabókina,
Sögu íslands 4. og 5. bindi og bækur
tengdar veraklýðshreyfingunni.
Mestum fjármunum var eytt í
myndbönd að þessu sinni. Keypt var
fræðslumynd um málefni aldraðra, ör-
yggi á vinnustað og kennslumyndbönd
fyrir Macintoshnotendur.
Bókasafnið á efri hæðinni var gert
hreint og unnið var við að flokka og
skrá skjöl Félags bókagerðarmanna.
Við tiltektir í kjallara fannst eitt og
annað sem komið var á réttan stað í
skjalasafni. Á næstunni verða settar
upp fleiri hillur í bókasafninu í kjall-
aranum til að gera aðgengilegt það
sem bæst hefur við skjalasafnið.
Annálar nítjándu aldar I-IV var
bundið í skinnband og ýmsar aðrar
bækur voru bundnar í rexínband.
Aðaláherslan hefur undanfarið ver-
ið lögð á að fylla upp í eyður í rit-
röðum sem safnið á, kaupa bækur
sem tengjast verkalýðshreyfingunni og
myndbönd sem nýtast félögunum.
Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér
hvað Bókasafn FBM hefur að geyma
geta haft samband við Svan á skrif-
stofu FBM eða Bergljótu hjá Lífeyris-
sjóðnum á skrifstofutíma.
Flestar bækur í eigu safnsins svo og
myndbönd eru til útláns fyrir félags-
menn Félags bókagerðarmanna.
ARSREIKNINGUR BÓKASAFNS FBM 1991
Tek iur:
Tekjuafgangur 1990 ... Kr. 154.650
Framlag FBM 1991 " 250.000
Innkomið fyrir "Bókagerðarmenn" tt 12.000
Innkomið fyrir "Hugvekjur Hallbjarnar" II 700
Innkomnir vextir á tékkareikningi nr. 500A6 II 4.062
Kr. 421.412
Giöld:
Askrift, innlend tímarit ... Kr. 8.698
Askrift, erlend timarit II 31.168
Bækur II 62.455
Hillur í bókasafn II 22.291
Uglan, kiljuklúbbur II 5.300
Myndbönd II 104.375
Bókband II 32.000
Ljósmyndir og innrömmun II 16.791
Vinna við skjalasafn II 45.000
Hreingerning og ritföng II 29.559
Kr. 357.637
Tekjuafgangur II 63.775
Kr. 421.412
Tekjuafgangur: Tékkareikningur nr. 50046 ... Kr. 56.876
Sjóður 6.899
Kr. 63.775
30. marz 1992
20
PRENTARINN 1.12.'92