Prentarinn - 23.07.1992, Side 12
Miðdalsfélagið
50 ára
í tilefni hálfrar aldar afmælis Miðdals-
félagsins, félags sumarbústaðaeigenda
í Miðdal, var haldið hóf þann 21. mars
sl. í Akogessalnum í Sigtúni. Mættu
um 90 manns á þennan fagnað.
Formaður Miðdalsfélagsins, Krist-
ján G. Bergþórsson, bauð gesti vel-
komna og sagði m.a. í ávarpi sínu að
það mætti halda langa ræðu um frum-
byggja prentara í Miðdal og framsýni
þeirra sem stóðu að kaupum á Miðdal
á sínum tíma og færði þeim þakkir
fyrir störf í þágu þeirra, sem nú njóta
góðs af.
Ymislegt var til skemmtunar og
flutti Jón Ágústsson hátíðarræðu
kvöldsins. Fjallaði hann aðallega um
fyrstu ár prentara í Miðdal og þá
erfiðleika sem þeir áttu í við byggingu
fyrstu húsanna, en það var um 1942.
Formaður FBM, Þórir Guðjónsson,
flutti ræðu þar sem hann reifaði m.a.
fyrirhugaðar framkvæmdir í dalnum,
svo og hvað stæði til eftir að ábúðar-
samningur við núverandi ábúanda
rynni út, en hann gildir til fardaga
1994. í tilefni dagsins færði hann fé-
laginu gjafabréf upp á kr. 100.000,00
til kaupa á plöntum til gróðursetning-
ar í orlofslandi Miðdals.
Formaður Miðdalsfélagsins þakkaði
Þóri höfðinglega gjöf FBM til félags-
Kristján G. Bergþórsson
ins og hvatti félaga til að standa sam-
an að plöntun á komandi sumri.
Tveir félagar Miðdalsfélagsins voru
heiðraðir í tilefni dagsins. Þeir eru:
Jón Otti Jónsson, fyrrverandi formað-
ur Miðdalsfélagsins og einn ötulasti
félagi þess í áraraðir og Jón Ágústs-
son, fyrrverandi formaður HIP og
hjálparhella Miðdælinga til margra
ára. Formaður færði þeim fyrir hönd
félagsins stækkaðar myndir af orlofs-
svæðinu í Miðdal sem Mats Wibe
Lund tók. I tölu formannsins kom
fram að það hefði ekki reynst erfið
ákvörðun fyrir meirihluta stjórnarinn-
ar, tók hann fram að Jón Otti, sem er
enn í stjórn, hefði ekki tekið þátt í at-
kvæðagreiðslu né umræðu.
Einnig var á dagskrá fjöldasöngur,
happdrætti og að lokum var stiginn
dans fram eftir nóttu.
Veislustjóri kvöldsins var Ragnar
Magnússon. Stjórnaði hann veislunni
með mikilli prýði.
Þegar gestir mættu til hátíðarinnar
blasti við þeim sjónvarpstæki. í því
var sýnt myndband, sem FBM hafði
látið gera eftir kvikmynd, sem tekin
var á árunum 1950-1955 og sýndi fólk-
ið sem þar var og bjó á þessum árum
og hvernig það hafði það. Var mynd-
bandið fengið að láni hjá FBM. Sátu
eldri félagar gjarnan oft fyrir framan
tækið meðan á hófinu stóð, en mynd-
in var sýnd nokkrum sinnum.
Var það mat manna að sjaldan
hefði verið haldin betri hátíð á vegum
Miðdalsfélagsins.
A.H.
Jón Otti Jónsson þakkar Miðdalsfélögunum fyrir gjöfina
12