Prentarinn - 01.10.2000, Blaðsíða 11
ina sem samskiptaiðnað fremur
en prentiðnað, 34% töldu þörf
fyrir aukna menntun og 8% töldu
þörf fyrir nýrri tæki. Fram kom
mikilvægi þess að búa til nýja sýn
á greinina og leggja minni áherslu
á gömlu tímana og meiri á nýja
tímann þ.e. svokallaðan e-Guten-
berg sem endurspeglar umhverfið
sem greinin býr við í dag.
Unnið er að því að gera starfs-
lýsingar yfir öll störf í greininni
til að fólk viti hvaða starfsmögu-
leikar eru fyrir hendi og þá vand-
ast málið. Það sem áður voru
þrjár greinar, þ.e. prentun, bók-
band og prentsmíð, eru nú miklu
fleiri, allt að 100. Einnig var
ákveðið að breyta nafni samtak-
anna til að ná betur yfir það sem
iðnaðurinn býr yfír (visual iðnað-
urinn).
Þannig hefur komið í ljós að
ekki var ráðlegt að fara í að aug-
lýsa iðnaðinn fyrr en búið væri að
vinna heimavinnuna vel.
London College
of Pi-inting
Skólinn hefur allar deildir sem
tengjast grafíska iðnaðinum og
nýtti sér þá stöðu til að ná til til-
vonandi nemenda. Þeir sem ekki
komust inn í aðrar deildir, s.s.
hönnun (skv. tölum yfirvalda í
Bretlandi frá 1996 var 44.000
nemendum neitað um inngöngu í
hönnunamám), fengu sent bréf frá
prent- og frágangsdeildinni þar
sem þeim var kynnt námið og
boðið sæti í því, ef áhugi væri
fyrir hendi, rétt áður en bréfið
með höfnun barst þeim í hendur.
Þ.e. reynt var að freista þeirra
þegar þau voru hálfsærð. Þannig
fékkst nóg af nemendum þetta
árið og öruggt pláss er fyrir alla
nemendurna á vinnumarkaðinum.
skólinn fær mun fleiri fyrirspurnir
um nemendur en hann getur ann-
að í þessum greinum. Jafnframt er
verið að vinna að geisladiski sem
hefur að geyma sýndarprent-
smiðju og dreift verður í gmnn-
skóla til að kynna þessar greinar.
Vonandi dugar það til að ekki
þurfi að grípa til sömu aðferðar
og að ofan er greint frá.
GOC
Hollendingar hafa hrundið af
stað herferð sem kallast G-kracht
eða G-force (G-afl).
G stendur fyrir grafískt og
kracht fyrir vinnuafl. Um er að
ræða kynningarherferð til að ná
til ungs fólks og kynna iðnaðinn
fyrir því á áhugaverðan hátt. Und-
irbúningur hefur staðið í 6 mán-
uði og hefur verið unnið í því að
búa starfsfólk og atvinnurekendur
í greininni undir að kynna hana.
Stilla alla inn á þessa leið og
leiða fólki fyrir sjónir mikilvægi
þess að kynna greinina með ný-
liðun í huga. Meðalaldur hefur
hækkað stöðugt í greininni og er
u.þ.b. 46-50 ár í dag.
GARTA
Chris Green frá Manchester
Metropolitan University kynnti
verkefnið GARTA (Graphic Arts
Recruitment Toolkit Assistance)
sem hrundið verður af stað á ár-
inu með eða án stuðnings Leon-
ardo II áætlunarinnar. Verkefninu
er ætlað að vekja áhuga ungs
fólks á iðnaðinum og örva endur-
nýjun í greininni
M.a. verður hugur ungs fólks,
sem ekki er tengt iðnaðinum, til
iðnaðarins kannaður og jafnframt
er hugmyndin að fá ungt fólk,
sem er að læra, til að kynna iðn-
aðinn og hvað það er að fást við í
námi og hvaða störf bjóðast í
greininni. Ein hugmynd sem hef-
ur vaknað til að vekja áhuga er
t.d. slagorð eins og: Ef þú sérð
þennan texta, þakkaðu prentara!
Ef þú sérð þessa mynd, þakkaðu
prentara!
A ráðstefnunni fór fram hóp-
vinna tengd þessu verkefni og
umræður að henni lokinni. Eins
og fram kemur í niðurstöðum var
áhugi á því að reyna að vinna
áfram að þessu verkefni og því
hollenska.
ÆSKAN
Ungir þátttakendur á ráðstefn-
unni fengu það verkefni að velja
þrjú mest áríðandi atriði til að
kynna iðnaðinn fyrir aldurshóp-
unum 11-18 ára og 19 ára og
eldri. Eftirfarandi niðurstöður
komu út úr þeirri vinnu.
1. títbúa þarf kynningarefni sem
lýsir iðnaðinum á áhugaverð-
an hátt en jafnframt raunsæj-
an. Best er að kynning sé í
höndum ungs fólks úr iðnað-
inum, þ.e. það er meira traust-
vekjandi og sýnir að einhver
framtíð sé fyrir hendi í grein-
inni heldur en ef einungis
eldri menn sem eiga stutt í
starfslok standa í kynningu og
forsvari fyrir iðnaðinn. (Þetta
á við báða aldurshópana þó
mismunandi kynningarefni sé
fyrir hvem aldurshóp.)
2. Mikilvægt er að draga fram
hverjir eru möguleikarnir í
greininni, s.s. starfsumhverfi,
laun, starfsferill o.s.frv.
„Hvað er í þessu fyrir mig?“
er ríkjandi sjónarmið ungs
fólks í dag.
3. a) Mikilvægt er að hafa áhrif
á fyrirmyndir aldurshópsins
11-18, ára þ.e. mömmu,
pabba, kennara. Þessir aðilar
hafa mikil áhrif á framtíð
bama og starfsval.
b) Fyrir aldurshópinn 19 ára
og eldri er mikilvægt að sýna
fram á að iðnaðurinn muni
verða við lýði um ókomna tíð
og starfsmöguleikar séu mikl-
ir og mörg krefjandi störf í
boði.
Fram kom að erfitt væri að
flokka unglinga á aldrinum 11-18
ára sem einn markhóp.
Nibursta&a
Niðurstaða ráðstefnunnar var
að fela fimm manna hópi að und-
irbúa evrópskt verkefni í nýliðun
sem byggðist á G-force hugmynd
Hollendinga og reyna að tengja
fleiri hugmyndir því verkefni, t.d.
Garta verkefnið sem verður unnið
á vegum EGIN. Hópinn skipa
Chris Green frá Manchester
Metropolitan University, Carole
Smith-Milne frá London College
of Printing, Alex de Boer frá
National Printing Training Organ-
isation í Hollandi, Richard Bea-
mish frá Print Graphic Comntun-
ication í Englandi og Hans W.
Berglund frá Graphical Education
Foundation í Svíþjóð.
Sumarbústaður í Miðdal í
Efra hverfi, G götu nr. 6. 3 her-
bergi og svefnloft, ný viðbygg-
ing sem er herbergi og fremri
stofa. Rafmagn, arinn, dúkku-
hús, ísskápur og allt innbú. Mik-
ið af gróðursettum tijáplöntum á
lóðinni. Uppl. í sfma 551 1526.
Sumarhús
til sölu
Til sölu sumarbústaður í Efra
hverfi í Miðdal við F götu 6.
Húsið er fullbúið að utan en eld-
húsinnréttingu vantar. Óskað er
eftir tilboði. Upplýsingar gefur
Sveinn Gústafsson í síma
552 2752 og GSM 893 4333.
Til sölu sumarbústaður í Efra
hverfi í Miðdal við E götu 5.
Upplýsingar gefur Gylfi Geir
Guðjónsson í síma 551 4482 eða
vinnusíma 569 1100. Verð kr.
1.300.000.
PRENTARINN ■ 11