Prentarinn - 01.10.2000, Blaðsíða 15
Theódór Guðmundsson vann farandbikar FBM og var einnig púttmeistari.
Mibdalsmótib, golfmót
Félags bókagerbarmanna,
fór fram á golfvelli Dalbúa
í Mibdal 12. ágúst. Þetta
er í fimmta sinn sem vib
höldum golfmót í Mibdal
og ab þessu sinni voru
43 keppendur.
Eftir kaffiveitingar var keppend-
um raðað á teiga og hófst mótið
kl. 11.00 undir öruggri stjóm
Dalbúa, en þeir Baldvin Arsæls-
son og Baldvin Bemdtsen sáu um
alla útreikninga. Miðdalurinn
skartaði sínu fegursta eins og svo
oft áður og keppendur léku við
hvem sinn fingur eða kylfu í blíð-
skaparveðri. Að vísu gerði eina
smáskúr rétt til að minna kepp-
endur á að stundum rignir í Mið-
dal, en eins og haft var eftir ein-
um grónum Miðdælingi: Það ger-
ir ekkert til þó að rigni, það er
nefnilega sólskin í hverjum
dropa.
í mótslok var boðið upp á léttar
veitingar og tóku þátttakendur
hraustlega við veitingum eftir
skemmtilega keppni. Keppt var
um farandbikar FBM í fimmta
sinn ásamt eignarbikar fyrir fyrsta
sæti með forgjöf. Postillon-bikar-
inn var veittur fyrir fyrsta sæti án
forgjafar, eignarbikar fyrir fæst
pútt og eignarbikar í kvenna-
Glatt var á hjalla í mótslok.
flokki. Einnig voru veittar viður-
kenningar fyrir að vera næst holu
á 5. og 8. braut og lengsta teig-
högg á 3. braut. Aðalstuðningsað-
ili mótsins var Hvítlist er veitti
fjölda verðlauna. Einnig gaf
Morgunblaðið verðlaun og kunn-
um við þeim bestu þakkir fyrir
stuðninginn.
1. verðlaun með forgjöf og Far-
andbikar FBM hlaut Theódór
Guðmundsson, með 64 högg, í
öðru sæti varð Snorri Pálmason,
einnig með 64 högg, og í þriðja
sæti Karl B. Bjömsson með 65
högg. Postillon-bikarinn, 1. verð-
laun án forgjafar, vann Ólafur
Stolzenwald á 76 höggum, í öðru
sæti varð Theódór Guðmundsson
með 77 högg og í þriðja sæti
Snorri Pálmason með 85 högg.
Kvennabikarinn vann Guðrún Ei-
ríksdóttir á 77 höggum með for-
gjöf, í öðru sæti varð Guðný
Steinþórsdóttir með 78 högg og í
þriðja sæti Björk Guðmundsdóttir
með 99 högg. Púttmeistari FBM í
annað sinn varð Theódór Guð-
mundsson. með 22 pútt. Snorri
Pálmason var með lengsta teig-
högg á 3. braut og nándarverð-
laun á 5. braut hlaut Viðar Þor-
steinsson og á 8. braut Jón Gunn-
arsson. Auk þess var dregið úr
skorkortum svo lengi sem verð-
laun dugðu.
Nýtt vallarmet var sett á 9.
holu vellinum í Miðdal á þessu
Guðrítn Eiríksdóttir sigraði í
kvennajlokki.
móti, reyndar tvíslegið, Theódór
setti vallarmet með 37 höggum
en Ólafur bætti það síðan með 36
höggum.
Sem sagt, vallarmet í Miðdal,
Ólafur Stolzenwald með 36 högg,
sett 12. ágúst 2000.
Mjög ánægjulegt var hve
margir létu sjá sig að þessu sinni
í mótinu og greinilegt er að mót-
ið er að vinna sér fastan sess í
huga golfáhugamanna innan
FBM, en með þessu keppnisfyrir-
komulagi, að raða keppendum á
teiga, er völlurinn sprunginn og
fyrirsjáanlegt er að annan hátt
verður að hafa á næsta ári, því þá
gerum við að sjálfsögðu ráð fyrir
fleiri keppendum.
Sjáumst á sjötta Miðdalsmót-
inu um miðjan ágúst árið 2001.
SÁ
Ólafur Stolzenwald setti vallar-
met og vann Postillonbikarinn.
PRENTARINN ■ 15