Prentarinn - 01.10.2000, Page 17
Litli fepðahlúbbuninn
Alltaf á leið á toppinn!
Anœgður hópur í
Vestmannaeyjum.
Á þeim átta árum sem Sameinaði
lífeyrissjóðurinn hefur starfað
hefur orðið til vísir að starfs-
mannafélagi sem hefur fengið
nafnið Litli ferðaklúbburinn. Til
þessa hóps teljast starfsmenn
sjóðsins ásamt mökum og einnig
hafa sumir stjórnarmenn verið
með í ferðum okkar. Meðlimum
klúbbsins fjölgar ört með stækkun
sjóðsins og aukningu á þjónustu
hans við sjóðfélagana.
Á skrifstofú sjóðsins starfa nú
15 manns. Mjög góður starfsandi
er á skrifstofunni og má meðal
Eftir velheppnaða máltíð í París.
annars rekja það til þess að Litli
ferðaklúbburinn hefur á vorin far-
ið í helgarferð innanlands þar sem
sameinuð er vinna og skemmtun.
Á laugardeginum frá 9:00 til
14:00 er haldinn starfsmanna-
fundur þar sem tekin eru fyrir mál
er varða starfsemi sjóðsins sem
krefjast lengri tíma til útskýringa
og umræðna en gefst á hefð-
bundnum starfsmannafundum. Á
þessum lengri fundum er velt upp
ýmsum málum sem snerta fram-
tíðarstefnu sjóðsins. Náðst hefur
góð samstaða meðal maka og
hafa þeir ekki verið í neinum
vandræðum með að finna sér eitt-
hvað að gera meðan á fundi
stendur. Um kvöldið er síðan
kvöldverður og sunnudagurinn er
notaður í að njóta þess sem í boði
er í því byggðarlagi sem við
heimsækjum. Þeir staðir sem við
höfum farið til eru Kirkjubæjar-
klaustur, Stykkishólmur og nú í
vor Vestmannaeyjar. Á þessum
stöðum höfum við fengið frábær-
ar móttökur og sú lukka virðist
fylgja okkur að alltaf leikur veðr-
ið við okkur. Það er líka gaman
að því hve mikil fjölbreytni er í
þeim skoðunarferðum sem
byggðarlögin bjóða upp á.
Starfsmenn leggja fyrir í starfs-
mannasjóð og á haustin fer Litli
ferðaklúbburinn í árshátíðarferð
til erlendra borga, hversdagsleik-
inn er rofinn og hlaðið upp orku
fyrir áframhaldandi kraft í starf-
semi sjóðsins.
Auk þessara föstu ferða eru
ýmsar uppákomur svo sem
óvissuferðir og boð einstakra
starfsmanna sem tengd eru t.d. af-
mælum.
Starfsmannafundur í Vestmannaeyjum.
PRENTARINN ■ 17